Fréttablaðið - 18.08.2005, Side 40

Fréttablaðið - 18.08.2005, Side 40
16 FASTEIGNIR Sölu annast Húsakaup, fasteignasala, Suðurlandsbraut 52, S ími 530 1500, husakaup@husakaup. is GRÆNLANDSLEIÐ 14-20 – N Ý B Y G G I N G A R Á Ú T S Ý N I S S T A Ð Í G R A F A R H O L T I N U – Um er að ræða þrjár 166 fm efri sérhæðir með 38 fm bílskúr og fjórar 2ja herbergja 83 fm neðri sérhæðir. SÖLUMENN SÝNA ÍBÚÐIRNAR Í DAG FRÁ KL. 17 – 18 Glæsilegar og óviðjafnanlega vel staðsettar sérhæðir í nýjum parhúsum á einstökum útsýnisstað. Húseignirnar skiptast annars vegar í glæsilegar efri sérhæðir með óvenju stórum innbyggðum bílskúr þar sem allt er sér, s.s. inngangur, þvottahús og hiti. Úr þessum hæðum er útgengt út á um 40 fm timurverönd vestan megin við húsin og austan við húsin er um 30 fm hellulögð verönd þar sem gert er ráð fyrir glerskála og liggja fyrir samþykktar teikningar af honum. Hins vegar er um að ræða glæsileg 2ja herbergja neðri sérhæðir. Húseignirnar eru fullbúnar að utan en tilbúnar til innréttinga að innan, fyrir utan eina neðri sérhæð sem selst fullfrágengin. Húsin eru vönduð að allri gerð og mjög fallegur arkitektúr. Þau eru staðsteypt og múruð með marmarasalla. Lóð húsanna er grófjöfnuð og bílaplan tilbúið fyrir hellulögn Staðsetningin er mjög skemmtileg á stórkostlegum útsýnisstað en þessar húseignir eru innst í lokuðum botnlanga þaðan sem þær njóta óskerts útsýnis yfir nánast alla Reykjavík, Esjuna og út á flóann.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.