Fréttablaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 8
1Hvenær verður Menningarnótt haldiní Reykjavík? 2Hvaða þjóðþing heimsóttu ráðamennNorður-Kóreu í fyrsta skiptið í fyrra- dag? 3Hvaða fyrirtæki hefur keypt Vélamið-stöðina? SVÖRIN ERU Á BLS. 46 VEISTU SVARIÐ? 8 18. ágúst 2005 FIMMTUDAGUR Rannsókn á tildrögum flugslyssins í Venesúela: Menga› eldsneyti líklega orsökin MACHIQUES, AP Aðskotaefni í elds- neytistönkum er líklega orsök flugslyssins í Venesúela í fyrra- dag þegar MD-82-þota West Caribbean Airways fórst með 160 manns innanborðs. Björgunarsveitir héldu áfram í gær að leita að líkum og líkamshlut- um þeirra sem fórust með flugvél- inni, nærri borginni Machiques, skammt austur af kólumbísku landamærunum. Svo virðist sem vélin hafi skollið af fullu afli í jörð- ina með nefið á undan og því splundraðist flakið í smátt. Aðkom- an var sögð hrikaleg, blóðugar lík- amsleifar lágu eins og hráviði á stóru svæði. Svörtu kassarnir tveir fundust svo í gær en þeir eru taldir geta gefið mikilvægar vísbendingar um hvað fór úrskeiðis. Vitað er að bilun kom upp í báðum hreyflum vélar- innar nánast samtímis og því beinist grunur sérfræðinga helst að því að aðskotaefni í eldsneytistönk- um hafi valdið slysinu. Flugmála- yfirvöld í Panama, þaðan sem vélin lagði af stað, segja hins vegar að ekkert hafi fundist athugavert við eldsneytið á flugvellinum. Þó má vera að mengun hafi komið upp eftir að bensíni var dælt á tankana. Eins er hugsanlegt að fuglar hafi flogið inn í hreyflana og brotið skrúfublöð innan í þeim.■ LÖGREGLUFRÉTTIR RÁÐIST Á MANN Á HVERFISGÖTU Tveggja manna á rauðum bíl er leitað eftir líkamsárás á Hverfis- götu skömmu eftir miðnætti í fyrrakvöld. Flytja þurfti fórnar- lamb árásarinnar á slysadeild en hann var illa lemstraður að sögn lögreglu. Virtist hann ekki þekkja árásarmennina en það lá þó ekki ljóst fyrir í gær. ÁTTATÍU MANNS LEITUÐU SKJÓLS Tæplega áttatíu manns leituðu skjóls í félagsheimilinu í Vík í fyrrinótt vegna vonskuveðurs. Mjög hvasst var í Mýrdal og þar rigndi mikið í fyrradag að sögn lögreglu. Hreppurinn skaut því skjólshúsi yfir fólkið, þar sem ekki viðraði til tjaldvistar. ERLENDIR FERÐAMENN VELTU BÍL Einn erlendur ferðamaður var fluttur á Heilsugæslustöðina á Hvolsvelli þegar bifreið með fjórum ferðamönnum valt skammt innan við Múlakot í Fljótshlíð um hádegisbil á þriðju- dag. Meiðsl mannsins reyndust minniháttar en bílaleigubifreið ferðamannanna er talin gjörónýt. MEÐ AMFETAMÍN Í FÓRUM SÍN- UM Ökumaður sem stöðvaður var við eftirlit lögreglunnar á Self- ossi í fyrradag reyndist hafa þrjú grömm af ætluðu amfetamíni í fórum sínum. Leitað var á mann- inum og í bíl hans og hann síðan fluttur á lögreglustöðina á Self- ossi til yfirheyrslu. Þar gekkst hann við að eiga efnin og var í kjölfarið sleppt. BORGARSTJÓRNARMÁL Össur Skarp- héðinsson, fyrrum formaður Sam- fylkingar, ætlar að íhuga á næstu vikum hvort hann gefi kost á sér sem leiðtoga samfylkingarmanna í borgarmálunum. „Fólkið sem ég vinn fyrir telur að mín starfsorka og framkoma sem stjórnmálamaður og skoðanir séu þess eðlis að það telji ákjósan- legt að ég vinni fyrir það mikilvæg störf eins og að vera borgarstjóri. En það er ekkert sem ég hef tekið ákvörðun um og er ekki einu sinni farinn að hugsa enn. En það getur vel verið að ég velti því fyrir mér svona á næstu vikum, bara til þess að gleðja menn,“ sagði Össur spurð- ur um málið í Morgunútvarpinu, þætti Fréttablaðsins á Talstöðinni í gær. Össur ræddi þar um Reykjavík- urlistann og sagði ístöðuleysi og staðfestuleysi flokksmanna Vinstri- hreyfingarinnar - græns framboðs hafa birst þegar þeir sögðu sig frá samstarfi um R-listann. Hann sagði vinstrimenn munu hafa skömm af ákvörðun meirihluta flokksmanna Vinstri grænna í Reykjavík, því með samstarfsslitunum fyrir næstu borgarstjórnarkosningar sé verið opna fyrir þann möguleika að þeir geti farið í „dökkleitt hrossakaupa- bandalag“ við Sjálfstæðisflokkinn um stjórn borgarinnar og borgar- stjórastólinn í sínar hendur. Össur sagðist hafa verið stuðn- ingsmaður R-listasamstarfs. Hann hafi þó spurt sig af hverju málefnin væru ekki rædd. Samstarf félags- hyggjuflokkanna hafi snúist upp í ógeðfelld átök um völd og stóla; að því hafi ekki verið stefnt í upphafi. Össur sagði fyrirhugað brotthvarf Vinstri grænna úr R-listanum ákvörðun sem æðsta forysta flokks- ins hafi átt sinn þátt í. Það hafi sést þegar formaður flokksins Stein- grímur J. Sigfússon steig fram og ræddi framboðsmálin: „Hvað þýddi það þegar Steingrímur var sendur svona fram til að verja nýja stefnu? Það þýddi tvennt að mínu viti: Að það var bullandi ágreiningur um stefnuna innan VG og í öðru lagi að hin nýja stefna hefði verið mótuð af eða í samráði við æðstu forystu VG.“ gag@frettabladid.is Össur útilokar ekki borgarstjórastólinn Vinstri grænir opnu›u fyrir dökkleitt hrossakaupabanda- lag vi› sjálfstæ›ismenn um stjórn borgarinnar og borgar- stjórastólinn flegar fleir ákvá›u a› starfa utan R-listans. FYRRVERANDI FORMAÐUR OG RÁÐHERRA ÍHUGAR BORGARMÁLIN Össur Skarphéðinsson sagði að vegna stuðnings og hvatningar fólks ætlaði hann jafnvel að íhuga á næstu vikum hvort borgarmálin heilli. Ættleiðingar samkynhneigðra para: Ekkert land heimilar ættlei›ingu RÉTTINDI „Eins og staðan er í dag getum við ekki sent út umsókn um ættleiðingu frá samkynhneigðu pari,“ segir Ingibjörg Jónsdóttir, formaður Íslenskrar ættleiðingar. „Samstarfslönd okkar vinna eftir sinni löggjöf og ekkert þeirra landa sem við erum í sambandi við heim- ilar ættleiðingar til samkyn- hneigðra.“ Ríkisstjórnin samþykkti á þriðjudag undirbúning frumvarps sem tekur á réttarstöðu samkyn- hneigðra. Meðal þess sem leggja á til í frumvarpinu er að heimila ætt- leiðingar samkynhneigðra erlendis frá. Ingibjörg segir samtökin fylgj- ast vel með málum í Svíþjóð en þar hafa ættleiðingar samkynhneigðra para verðir leyfðar um nokkurt skeið. Ein umsókn liggur á borði stærstu ættleiðingarskrifstofunn- ar þar í landi en sú umsókn hefur ekki verið send utan þar sem ekk- ert land hefur fundist sem tekur við henni. Ingibjörg segist ekki telja að lög- leiðing ættleiðinga samkynhneigðra geti haft slæm áhrif á möguleika annarra til að ættleiða börn erlend- is frá. Ástæða sé þó til þess að stíga varlega til jarðar, enda málaflokk- urinn viðkvæmur. - ht VERKSUMMERKI RANNSÖKUÐ 152 ferðamenn frá Martiník létu lífið í flugslysinu, auk átta manna kólumbískrar áhafnar. INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR Formaður Íslens- krar ættleiðingar segir ekki mögulegt að senda utan umsókn samkynhneigðs pars um ættleiðingu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.