Fréttablaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 53
ÞRIÐJUDAGUR 23. nóvember 2004 37 „Mér fannst spennandi að koma til Íslands því það er eins langt frá Nýja-Sjálandi og hægt er að kom- ast,“ segir nýsjálenska djassöng- konan Hattie en hún er komin hingað til lands ásamt þýska píanóleikaranum Andreas Kerst- hold til að halda þrenna tónleika. „Við spilum þekktan djass í bland við latintónlist, swing og frum- samin lög“ segir Hattie en píanó- leikari hennar Andreas Kersthold er meðal þekktustu djasspíanó- leikara í Evrópu. „Við Hattie höf- um unnið saman um árabil í Þýskalandi og höfum safnað að okkur góðu efni allt frá fjórða ára- tugnum til 2050,“ segir Andreas og glottir. „Djassinn er alþjóðlegt tungumál og við spilum djasstón- list sem höfðar til breiðs hóps svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi,“ en lögin „It Don't Mean a Thing if It Ain't Got That Swing“ og „Old Devil Moon“ eru meðal þeirra sem koma til með að hljóma á tónleikunum. Bassaleikarinn Tómas R. Einarsson og trommuleikarinn Pétur Grétarsson verða Hattie og Andreas til halds og traust í tón- leikahaldinu á Íslandi. „Við erum búin að taka nokkrar æfingar með þeim síðan við komum til lands- ins,“ segir Hattie. „Þetta eru al- gjörir snillingar og mikill heiður að fá að spila með þeim.“ Hattie hefur vakið mikla at- hygli fyrir tónlistarhæfileika sína á Nýja-Sjálandi og í Þýskalandi þar sem hún er nú búsett. Þetta ku vera í annað sinn sem Hattie sæk- ir Ísland heim. „Það var Íslend- ingur sem ég hitti í Kaupmannah- öfn sem bauð mér að koma til landsins í fyrsta sinn. Ég þáði boð- ið og var hérna í október 2003 en þá spilaði ég á nokkrum krám, meðal annars Dubliners og Dillon. Í þeirri ferð fór ég út á land, sá Gullfoss og Geysi og heillaðist gjörsamlega af landinu. Ég gat einhvern veginn ekki gleymt Ís- landi og þess vegna hugsaði ég mig ekki tvisvar sinnum um þegar mér bauðst tækifæri til að koma aftur hingað til lands og halda tónleika.“ Tvíeykinu gefst þó ekki mikinn tími til að fara út á land í þessari Íslandsheimsókn þar sem fram- undan er stíft tónleikahald. Fyrstu tónleikar The Hattie St John Icy Jazz Quartett, eins og Hattie og Andreas kjósa að kalla sig, eru á Nordica Hotel í kvöld, en djassgeggjararnir verða einnig í stuði á Þjóðleikhúskjallaranum á sunnudagskvöldið og Grand Rokk miðvikudagskvöldið 24. ágúst. Tónleikarnir hefjast allir klukkan 22.00. N‡sjálensk djassdrottning á Nordica í kvöld THE HATTIE ST JOHN ICY JAZZ QUARTETT Djassgeggjararnir Miss Hattie og Andreas Kersthold segja það mikinn heiður að fá að koma fram með tónlistar- mönnunum Tómasi R. Einarssyni og Pétri Grétarssyni á Íslandi. Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 • Skífan Smáralind • Skífan Kringlunni • www.skifan.is ...skemmtir þér ; ) Leaves - The Angela TestPétur Kris tjánsson -Gamlar myndir 1.999 kr. 1.999 kr. Jakob Sveistrup Raevonettes-Pretty In Black Supergrass - Road To Rouen Sonic Youth - Nurse Magic Numbers Pottþétt 38 Lights On The Highway SUMAR TILBOÐ! Allar nýjar og vinsælar geislaplötur á sumartilboði í verslunum Skífunnar 1.999 kr.1.999 kr. 1.999 kr. 1.999 kr. Eagles-Farewell DVD 1.999 kr. 1.999 kr. 1.999 kr. ■ ■ TÓNLEIKAR  20.00 Kammersveitin Ísafold verður með lokatónleika í Íslensku óperunni. Flutt verða verk eftir Igor Stravinsky, Tigran Mansurian, Luciano Berio, Maurice Ravel, Witold Luto- slawski og Þuríði Jónsdóttur. Ein- söngvari er Guðrún Jóhanna Ólafs- dóttir messósópran. Stjórnandi er Daníel Bjarnason.  20.00 Tríóið Flís verður með út- gáfutónleika í Iðnó í tilefni af út- komu plötunnar Vottur þar sem leik- in eru lög sem Haukur Morthens gerði vinsæl. Sveitin er skipuð þeim Davíð Þór Jónssyni á píanó, Valdi- mari Kolbeini Sigurjónssyni bassa og Helga S. Helgasyni á trommur.  21.00 Blues bandið Mood heldur tónleika á Pravda Bar. Sveitina skipa þeir Bergþór Smári (gítarleik- ari/söngvari), Ingi S. Skúlason (bassaleikari) og Friðrik Geirdal Júlí- ussyni (trommuleikari). Miðaverð er 500 krónur.  21.00 Tónleikar með möntrusöngv- aranum Shri Yogi Hari og tablaspil- aranum/trommuleikaranum Stein- grími Guðmundssyni í Jógamið- stöðinni, Ármúla 38, 3.hæð.  21.30 Tríó Benjamin Koppel saxó- fónleikara leikur í Deiglunni á Akur- eyri.  22.00 David Bowie tribute tón- leikar á Grand Rokk. Guðmundur Pétursson, Eðvarð Lárusson, Birgir Baldursson, Ásgeir Sæmundsson og Ásgeir Jónsson, fyrrum Bara-flokks söngvari, leika fyrir gesti. Um er að ræða rokkað 20 laga prógram með eldra efni Bowies.  22.00 The Hattie St John Icy Jazz Quartett með tónleika á Hótel Nordica. ■ ■ FUNDIR  20.00 Umræðufundur um málefni tengd leikritinu Penetrator eftir Ant- hony Neilson í Klink og Bank. Penetrator er rannsóknarverkefni Reykvíska listaleikhússins og Hug- arafls en verkið kemur meðal annars inn á geðhvarfasýki, meðvirkni, ein- elti, stjórnun, stjórnleysi og kúgun. Kristín Eysteinsdóttir leikstýrir verkinu en Ingvar E. Sigurðsson leikari er umsjónarmaður verkefnisins. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 15 16 17 18 19 20 21 Fimmtudagur ÁGÚST
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.