Fréttablaðið - 18.08.2005, Síða 25
Smáauglýsingar
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er fimmtudagur 18.08,
230. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 5.28 13.32 21.33
AKUREYRI 5.03 13.16 21.27
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Kristjana Skúladóttir leikkona
unir sér best í hæginda-
stólnum heima fyrir með
börnin í fanginu.
„Þar sem lazy boy-stólinn er þar er
uppáhaldstaðurinn og núna er
hann í barnaherberginu en hann
hefur verið mikið notaður og
flakkað um íbúðina,“ segir Krist-
jana Skúladóttir leikkona sem
leikur um þessar mundir í söng-
leiknum Kabarett. Hún er móðir
tveggja barna sem eru að verða
eins og þriggja ára og líf hennar
snýst að mestu leyti um þau.
„Mjög auðvelt er að sofna í stóln-
um ef maður þarf að fá sér dúr,
auk þess sem hægt er að sofa í
honum með óvært barn í fanginu,
og svo les ég fyrir börnin í stóln-
um,“ segir Kristjana. Kostir stóls-
ins eru þó ekki upptaldir því hún
segist sitja í honum og fara yfir
textann sinn og líta í blöðin á með-
an börnin eru að sofna á kvöldin.
„Ég keypi hann notaðan gegn-
um smáauglýsingar fyrir þremur
árum og hann var í fínu standi og
sér ekki á honum. Ég held reyndar
að þetta sé ekki alvöru lazy boy-
týpa en hann er alveg eins,“ segir
hún og hlær.
„Um leið og ég sest í hann þá
sest sonur minn í fangið og vill
láta lesa fyrir sig, það er alltaf
þannig,“ segir Kristjana og bætir
við að hún hafi eytt mörgum nótt-
um í stólnum með börnin sofandi á
sér. Ólíkt flestum hægindastólum
af þessari gerð hefur þessi stóll þó
aldrei fengið að vera fyrir framan
sjónvarpið. „Við horfum lítið á
sjónvarp á þessu heimili, og reyn-
um að finna aðrar leiðir til þess að
slaka á.“
kristineva@frettabladid.is
Sefur gjarnan í stólnum tiska@frettabladid.is
Hjartaknúsarinn Mark
Wahlberg fékk svo mikið af
Calvin Klein-nærfötum þegar
hann vann sem fyrirsæta fyrir
fyrirtækið að
hann henti einu
pari á hverjum
degi. Wahlberg
sat fyrir á
risastórum
auglýs-
ingaskilt-
um fyrir
Calvin
Klein á tí-
unda ára-
tugnum
og notaði
fríu nær-
fötin
óspart þar sem hann vissi að
hann fengi alltaf meira.
Ofurfyrirsætan Christy Tur-
lington á von á öðru barni
sínu, samkvæmt tímaritinu US
Weekly. Fyrirsætan deildi
góðu fréttunum með vinum
sínum á góðgerðarsamkomu
fyrir stuttu en hún og maður
hennar Ed Burns eiga fyrir 22
mánaða dóttur sem heitir
Grace.
Fyrirsætan Sophie Dahl er
nýtt andlit nýjustu
línu tískukeðjunnar
Monsoon.
Dahl, sem er
27 ára, fékk
tækifæri til að
sýna nýja vöxt-
inn sinn í
myndatök-
unni en hún
hefur verið
harðlega
gagnrýnd fyrir
að fara úr stærð
16 í stærð 8.
Hún varð fræg
árið 1997 þeg-
ar Isabella
Blow uppgötvaði hana vegna
kvenlegs vaxtar síns.
Fótboltastjarnan David Beck-
ham er nýjasta skotmark
dýraverndunarsinna. Dýra-
verndunarsinnarnir í hópnum
Viva! eru bálreiðir út í Beck-
ham fyrir að vera í fótbolta-
skóm frá Adidas sem búnir
eru til úr kengúruskinni. Tals-
menn Adidas segja skóna
vera búna til samkvæmt lög-
um og reglum í Ástralíu.
Beckham er svo hræddur við
Viva! hópinn að hann hefur
aukið öryggisgæslu á heimili
sínu í Madríd og Hertford-
shire.
Rapparinn Jay-Z mun leika í
Roc-a-wear auglýsingaher-
ferðinni fyrir
haust og
vetur 2005.
Hiphop-
stjarnan er
einn af
stofn-
endum
Roc-a-
wear-
merkis-
ins
ásamt
Damon
Dash.
Jay-Z
mun
auglýsa
karl- og
kven-
fatalín-
urnar sem verða settar á al-
þjóðlegan markað í næsta
mánuði. Merkið var stofnað
árið 1999 og fjöldamargar
stjörnur hafa auglýst fyrir fyrir-
tækið. Victoria Beckham setti
merkið á markað í Bretlandi
og hannar gallabuxnalínu fyrir
merkið sem hefur vakið mikla
lukku.
Kristjana Skúladóttir situr í stólnum og les fyrir börnin sín tvö.
LIGGUR Í LOFTINU
í tísku
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Mamma, heldurðu
að Jesú hefði hlegið
meira ef hann hefði
verið giftur eins og
þú og pabbi?
Bollar úr Múmíndal
BLS. 3
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.