Fréttablaðið - 18.08.2005, Qupperneq 49
FÓTBOLTI Í nýútkominni bók sinni
greinir John Terry, fyrirliði Chel-
sea, frá þeirri angist sem greip
um sig meðal leikmanna liðsins
eftir að þeir féllu úr Meistara-
deildinni gegn Liverpool í undan-
úrslitum, annað árið í röð í vor og
segir að tapið hafi fengið hvað
mest á þrjá leikmenn liðsins.
„Við vorum vissir um að við næð-
um að sigra Liverpool og allir
voru að segja að þetta yrði árið
okkar. Stemmingin á þessum leik
var sú rosalegasta sem ég hef orð-
ið vitni að á ferlinum og hárin risu
á handleggjunum á mér þegar ég
heyrði söng áhorfendanna þegar
ég gekk inn á völlinn.
Þegar það lá hins vegar fyrir að
við hefðum tapað á Anfield, greip
um sig örvænting sem ég á erfitt
með að lýsa,“ sagði Terry.
„Ég táraðist þegar Eiður Smári
brenndi af úr síðasta færi okkar í
uppbótartíma og ljóst var að við
hefðum tapað. Það er átakanlegt
þegar fullorðnir menn brotna
svona niður eftir að þeir missa af
takmarki sínu.
William Gallas var frávita af
örvæntingu og það sama má segja
um okkur Eið Smára. Við grétum
og vorum algerlega í rusli eftir
þetta.
Þjálfarinn sagði okkur að okk-
ar tími ætti eftir að koma í Meist-
aradeildinni, en það stoðaði lítið á
þessari stundu. Þetta var versti
dagur í lífi mínu sem fótbolta-
manns,“ sagði John Terry í bók
sinni sem selst væntanlega eins
og heitar lummur næstu daga í
Bretlandi enda er Terry óhemju
vinsæll leikmaður. - bb
FIMMTUDAGUR 18. ágúst 2005 33
LEIKIR GÆRDAGSINS
Undankeppni HM 2006:
1. RIÐILL:
Makedónía-Finnland 0–3
0–1 Eremenko (7.), 0–2 Eremenko (45.),
0–3 Roiha (87.).
Rúmenía-Andorra 2–0
1–0 Mutu (29.), 2–0 Mutu (40.).
2. RIÐILL:
Kasakstan-Georgía 1–2
3. RIÐILL:
Lettland-Rússland 1–1
Liechtenstein-Slóvakía 0–0
4. RIÐILL:
Færeyjar-Kýpur 0–3
0–1 Konstantinou (39.), 0–2
Konstantinou, víti (86.), 0–3 Krassas
(90.).
Vináttulandsleikir:
Úkraína-Serbía og Montenegro 2–1
1–0 Rebrov (61.), 2–0 Nazarenko (72.),
2–1 Kezman (90.).
Ungverjaland-Argentína 1–2
0–1 Maxi (17.), 1–1 Torghelle (29.), 1–2
Heinze (62.).
Eistland-Bosnía 1–0
1–0 Viikmäe (35.).
Búlgaría-Tyrkland 3–1
0–1 Tekke (21.), 1–1 Berbatov (24.), 2–1
Petrov (38.), 3–1 Berbatov (43.).
Noregur-Sviss 0–2
0–1 Frei (50.), 0–2 sjálfsmark (59.).
Danmörk-England 4–1
1–0 Rommedahl (60.), 2–0 Tomasson
(63.), 3–0 Gravgaard (67.), 3–1 Rooney
(87.), 4–1 Larsen (90.).
Malta-Norður Írland 1–1
0–1 Healy (9.), 1–1 Woods (35.).
Pólland-Ísrael 3–2
1–0 Szymkowiak (19.), 1–1 Badir (35.),
1–2 Katan (46.), 2–2 Rasiak (77.), 3–2
Rasiak (89.).
Belgía-Grikkland 2–0
1–0 Mpenza (19.), 2–0 Mpenza (24.).
Svíþjóð-Tékkland 2–1
1–0 Larsson (20.), 1–1 Koller, víti (22.),
2–1 Rosenberg (25.).
Austurríki-Skotland 2–2
0–1 Miller (5.), 0–2 O´Connor (39.), 1–2
Ibertsberger (83.), 2–2 Standfest (87.).
Holland-Þýskaland 2–2
1–0 Robben (3.), 2–0 Robben (46.), 2–1
Ballack (49.), 2–2 Asamoah (81.).
Írland-Ítalía 1–2
0–1 Pirlo (10.), 0-2 Gilardino (31.), 1–2
Red (32.).
Wales-Slóvenía 0–0
Frakkland-Fílabeinsströndin 3–0
1–0 Gallas (27.), 2–0 Zidane (62.), 3–0
Henry (66.).
Króatía-Brasilía 1–1
1–0 Kranjcar (32.), 1–1 Ricardinho (42.)
Spánn-Úrúgvæ 2–0
1–0 Sjálfsmark (25.), 2–0 Vicente, víti
(38.)
Portúgal-Egyptaland 2–0
1–0 Meira (50.), 2–0 Postiga (70.).
Landsbankadeild kvenna:
Valur–ÍBV 3–1
0–1 Olga Færseth (24.), 1–1 Laufey
Ólafsdóttir (57.), 2–1 Guðný Óðinsdóttir
(68.), 3–1 Margrét Lára Viðarsdóttir (71.).
STAÐA EFSTU LIÐA:
BREIÐABLIK 12 11 1 0 37–8 34
VALUR 12 10 0 2 53–13 30
KR 12 7 1 4 38–16 22
ÍBV 12 7 0 5 36–26 21
MARKAHÆSTAR:
Margrét Lára Viðarsdóttir, Val 21
Hrefna Huld Jóhannesdóttir, KR 12
Laufey Ólafsdóttir, Val 11
Bryndís Jóhannesdóttir, ÍBV 9
Hólmfríður Magnúsdóttir, ÍBV 9
Nína Ósk Kristinsdóttir, Val/Keflavík 9
Greta Mjöll Samúelsdóttir, Breiðabliki 9
HLÁTUR OG GRÁTUR Eiður og Terry gátu
glaðst yfir Englandsmeistaratitlinum, en
vonbrigðin á Anfield fengu mikið á þá.
FRÉTTABLAÐIÐ/NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
John Terry, fyrirliði Chelsea, hefur gefið út bók:
Vi› Ei›ur grétum saman