Fréttablaðið - 18.08.2005, Síða 62

Fréttablaðið - 18.08.2005, Síða 62
LATIBÆR Magnús Scheving og félagar í Latabæ hafa verið að gera það gott í Bandaríkjunum og eru nú á leiðinni til Noregs þar sem börnum þar í landi verður kennt mikilvægi góðrar hreyfingar. Það er engin lognmolla í kringum Latabæ og hefur bæjarstjórinn Magnús Scheving verið á fullu við að kynna bæinn í Bandaríkjunum. Sú kynning hefur skilað sér, því ný- verið sýndi barnasjónvarpsstöðin Nickelodeon tvöfaldan Latarbæja- þátt undir heitinu „Lazy Town’s New Super Hero“. Hann var á besta tíma í bandarísku sjónvarpi eða klukkan átta um kvöldið. Niðurstöð- urnar úr áhorfendakönnuninni und- irstrikuðu vinsældir bæjarins í Am- eríku því hann mældist með mesta áhorfið hjá aldurshópnum tveggja til ellefu ára. Latibær lætur ekki þar við sitja því frá Bandaríkj- unum er förinni heitið til Nor- egs. Þar ætlar TV2 sjónvarps- stöðin að tilkynna formlega um samstarf sitt við bæinn og hven- ær þættirnir fara í loftið en búið er að talsetja þá yfir á norsku. Íslendingar munu ekki fara var- hluta af Latabæjaræðinu. Ríkis- sjónvarpið ætlar að taka þættina til sýningar 2. september og er unnið hörðum höndum að því að talsetja þættina. Þeir verða á dag- skrá sjónvarpsins á undan Disney- kvikmyndinni á föstudagskvöld- um. Alls hafa nú fjörutíu og átta lönd tryggt sér sýningarréttinn að Latabæ en stefnan er sett á að bæta þrjátíu löndum við. ■ 46 18. ágúst 2005 FIMMTUDAGUR LÁRÉTT 2 bein 6 á fæti 8 lík 9 umrót 11 þys 12 ávöxtur eikartrés 14 byggingarein- ing prótína 16 Ð 17 sjáðu 18 óðagot 20 rykkorn 21 skjótur. LÓÐRÉTT 1 skaddast 3 skammstöfun 4 minnka 5 fugl 7 læstur 10 forskeyti 13 hækkar 15 vansæmd 16 F 19 þurrka út. LAUSN 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Stór humar Risarækjurnar komnar Latibær vinsælastur í Bandaríkjunum [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á bls. 8 1 3 2 Á laugardaginn. Þjóðþing Suður-Kóreu. Íslenska gámafélagið. Það verður af nógu að taka í vetrardagskrá Ríkissjónvarps- ins sem er í þann mund að hefj- ast. „Þetta verður mjög öflugur vetur og mikið af góðu tónlistar- efni,“ segir Rúnar Gunnarsson, dagskrárstjóri Rúv. Þrír tónlistarþættir verða sýndir í vetur og verður einn þeirra, sem ber vinnuheitið Hljómsveit kvöldsins, sýndur á sama tíma og Gísli Marteinn hefur verið til þessa en laugar- dagsþáttur Gísla heyrir nú sög- unni til. Um verður að ræða fjórtán þætti af Hljómsveit kvöldins fram að áramótum og verður hver þeirra 25 mínútna langur. Þar fá ólíkar íslenskar hljómsveitir að spreyta sig í sjónvarpssal og er markmið þáttarins að gefa áhorfendum góða mynd af því sem er að ger- ast í íslensku tónlistarlífi. Ekki hefur enn verið ákveðið hver verður kynnir þáttarins. Annar tónlistarþáttur Sjón- varpsins nefnist Með á nótun- um. Þar munu þau Jónas Ingi- mundarson og Sigrún Hjálmtýs- dóttir, Diddú, taka tóndæmi og flytja lög. Jónas mun fjalla um uppbyggingu ákveðinnar gerðar af tónlist og síðan mun Diddú syngja lögin á sinn hátt. Þriðji þátturinn heitir Íslenskir ein- leikarar þar sem sígild tónlist verður í aðalhlutverki. Þarna koma einleikarar á borð við Sigrúnu Eðvaldsdóttur, Ásthildi Haraldsdóttur og Gunnar Kvar- an í heimsókn til Jónasar Sen og spila á hljóðfæri sín. Þættirnir verða klukkutíma langir. Spaugstofan verður á sínum stað í vetur og hefst nú fyrr en áður, eða 17. september, auk þess sem Gísli Einarsson mætir aftur með sex aukaþætti af Út og suður. Hefst sá fyrsti 6. september. Ópið snýr einnig aftur og verða þáttastjórnend- urnir tveir í þetta skiptið, þær Þóra Tómasdóttir og Ragnhildur Steinunn. Latibær fer einnig í loftið 2. september en sá þátt- ur hefur slegið í gegn í Bandaríkjunum upp á síðkastið. Gamanþáttur- inn Kallakaffi, sem eru skrifaður af Guð- mundi Ólafssyni en leikstýrt af Hilmari Odds- syni, verður frumsýndur í lok septemb- er en þættirn- ir verða tólf talsins. Með helstu hlutverk fara Valdimar Örn Flygenring, Rósa Guðný Þórsdóttir, Þórhallur „Laddi“ Sigurðsson, Lovísa Ósk Gunn- arsdóttir, Ívar Örn Sverris- son og Davíð Guðbrandsson. Einnig verður nóg fram- boð af erlendu efni í vetur. Nýjar þáttaraðir af dönsku þáttunum Kroniken og Ern- inum verða sýndar en ekki hefur verið ákveðið hvenær þeir fara í loft- ið. Þátturinn Extras með Ricky Gervais úr The Office verður á dagskrá, sem og breski gaman- þátturinn Little Britain. Einnig verða nýjar þátt- araðir af Desperate Housewives og Lost sýndar upp úr áramót- um. Næsti skammtur af mafíuþættinum The Sopranos er síðan vænt- anlegur í mars. freyr@frettabladid.is KALLAKAFFI Leikarar í gamanþættinum Kallakaffi sem verður frumsýndur í lok september. SJÓNVARPIÐ: FJÖLBREYTT VETRARDAGSKRÁ AÐ HEFJAST: Þrír nýir tónlistarþættir í loftið LEIÐRÉTTING TÓNLISTIN Coldplay hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér, en upp á síðkastið hef ég verið að hlusta mikið á Franz Ferdinand og hlakka mikið til að fara á tónleikana með þeim hér heima. Síðan hef ég ver- ið að hlusta á nýja diskinn með Leaves, Angela test, sem er frábær diskur. BÓKIN Ég var að klára að lesa Kleifarvatn eftir Arnald Indriðason. Hún hélt mér alveg fram að lokum og var því gríðarlega spennandi. BÍÓMYNDIN Ég held mikið upp á Eternal Sunshine of a Spotless Mind, en sá síðast Wedding Crashers og þótti nokkuð fyndin. Ég er mikið fyrir gamanmyndir því mér finnst svo gott að hlæja og koma brosandi út úr bíóhúsum borgarinnar. BORGIN Mér þykir vænst um Stokkhólm því þar bjó ég um tíma og kynntist borginni frekar vel. Stokkhólmur er með fegurstu borgum og einstaklega gott að búa þar en mér þykir skemmtileg- ast að vera umkringd ríkulegu mannlífi og þar sem hlutirnir ger- ast. Því þótti mér New York afar spennandi og fílaði mig í botn í þeirri heimsborg. BÚÐIN Ég á mér í raun enga eina uppáhalds búð, en ég get nefnt H&M því þar er alltaf hægt að finna eitthvað skemmtilegt og við- ráðanlegt fyrir budduna. Mér hefur alltaf þótt gaman að versla skart- gripi og þá eru Pilgrim-skartgrip- irnir í ISIS í uppáhaldi. VERKEFNIÐ Ég er byrjuð að vinna á fullu hjá Íslenska dansflokknum. Það eru spennandi tímar framund- an. Við erum að æfa þrjú verk eins og stendur, og förum í sýningar- ferð til Danmerkur í október. Ég mun einnig stunda nám í öldunga- deild MH og sit því ekki auðum höndum í vetur. ...fær Þorsteinn J. Vilhjálmsson fyrir að vekja athygli á stöðu aldraðra. HRÓSIÐ Coldplay, gamanmyndir, Stokkhólmur og skartgripir AÐ MÍNU SKAPI EMILÍA BENEDIKTA GÍSLADÓTTIR DANSARI HJÁ ÍSLENSKA DANSFLOKKNUM. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL G AR Ð U R RICKY GERVAIS Þátturinn Extras með Ricky Gervais, sem sló í gegn í The Office, verður sýndur í Sjónvarpinu í vetur. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL G AR Ð U R Myndir af Sölva Snæ Magnússyni markaðsfulltrúa, og þremur öðrum mönnum fylgdu frétt um Íslenska pipar- sveininn sem birtist á þessari síðu mánudag- inn 15. ágúst. M y n d r æ n a framsetningu og fyrirsögn mátti skilja á þann veg að fjórmenningarnir myndu keppast um hlutverk ísl- enska piparsveinsins. Það er ekki rétt og Sölvi Snær og aðrir sem kunna að hafa orðið fyrir óþæg- indum vegna þess misskilnings sem framsetning greinarinnar bauð upp á eru beðnir velvirðing- ar. LÁRÉTT: 2Legg,6Il,8Hræ,9Los,11Ys, 12Akarn,14Amínó,16Eð,17Sko,18 Fum, 20Ar, 21Frár. LÓÐRÉTT: 1Bila,3Eh,4Grynnka,5 Gæs,7Lokaður, 10Sam,13Rís,15 Óorð,16Eff, 19Má.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.