Fréttablaðið - 22.09.2005, Qupperneq 1
Sérbla› um skotvei›i,
heilsu og útivist fylgir
Fréttabla›inu í dag.
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
ÚTIVERUBLAÐIÐ
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
ÍÞRÓTTIR Fjöldi íslenskra eldri
borgara hyggur á þátttöku í fim-
leikasýningunni Gullnu árin 2005
sem Fimleikasamband Evrópu
efnir til á Kanaríeyjum í nóvem-
ber. Sýningin er nú haldin í fyrsta
sinn en stefnt er að því að hún fari
fram fjórða hvert ár í framtíðinni.
Anna Möller, framkvæmda-
stjóri Fimleikasambands Íslands,
segir að kynning sýningarinnar
meðal eldri borgara hafi gengið
vel og að áhugi á þátttöku sé mikill.
„Við förum með fulla flugvél til
Kanaríeyja 18. nóvember og þar
mun fólkið taka þátt í sýningum
og kynningum,“ segir Anna og
bætir við að verkefnið sé afar
skemmtilegt. 189 eldri borgarar
hafa þegar skráð sig til þátttöku
og eru þeir frá 63 og upp í 86 ára.
Leikfimiæfingar af ýmsum toga
verða sýndar en einnig aðrar
íþróttagreinar, til dæmis boccia.
Hópurinn ráðgerir að leika list-
ir sínar á Íslandi 5. nóvember áður
en haldið verður utan.
- bþs
Evrópsk fimleikahátíð eldri borgara verður haldin á Kanaríeyjum í nóvember:
Íslenskir eldri borgarar s‡na á fimleikahátí›
SNJÓKOMA EÐA SLYDDA á Vest-
fjörðum og norðan til á landinu. Skúrir eða
slydduél austan til, annars úrkomulítið. Hiti
0-6 stig, mildast syðst. Víðast næturfrost.
VEÐUR 4
FIMMTUDAGUR
22. september 2005 - 255. tölublað – 5. árgangur
OPIÐ TIL
21 Í KVÖLD
TÍSKUVIÐBURÐIR Á MI
LLI
19
O
G
21
TÍSKU
DAGAR
15.-25.
SEPTE
MBER
Semur námsefnið sjálfur
Ólafur Gaukur stofnaði gítar-
skóla fyrir 30 árum. Honum
er það jafn eðlilegt að
spila og kenna eins og
að anda og ganga.
TÍMAMÓT 28
Í höndum óhæfra
Össur Skarphéðinsson alþingismaður
segir að örlög ákærunnar í Baugsmál-
inu sýni að embætti Ríkislögreglustjóra
sé í höndum óhæfra
manna. Í öllum réttar-
ríkjum „væru þeir nú
settir til hliðar og í önn-
ur verkefni meðan reynt
er að tjasla því saman
sem eftir er af emb-
ættinu“.
UMRÆÐAN 24
Ástarsaga í kirkjugarði
Leikstjórinn Tim Burton
fylgir velgengni Kalla og
súkkulaðiverksmiðjunnar
eftir með frumlegri
brúðuteiknimynd sem
hefur alla burði til að
slá í gegn.
KVIKMYNDIR 44
Frábær endurkoma
Guðmundar
Guðmundur Guðmundsson
er kominn aftur í íslenska
boltann og strákarnir hans í
Fram byrjuðu á því að leggja
Íslandsmeistara
Hauka að velli.
ÍÞRÓTTIR 32
Fann skyrtuna í
fataskáp afans
STEINARR LOGI NESHEIM
Í MIÐJU BLAÐSINS
● heimili ● tíska ● heilsa
▲
ÁLIÐNAÐI MÓTMÆLTI Félagar í Náttúruvaktinni komu saman við Ráðhús Reykjavíkur í gær og mótmæltu virkjanaframkvæmdum og álverum.
Í Ráðhúsinu var móttaka vegna ráðstefnu sem haldin er í Reykjavík þar sem rætt er um skautverksmiðju fyrir áliðnað.
Einn hefur látist og fjórir
veikst af hermannaveiki
Fimm hafa veikst af hermannaveiki fla› sem af er flessu ári, a› sögn Haraldar
Briem sóttvarnalæknis. Af fleim lést einn úr veikinni. N‡jasta tilfelli› kom upp
í ágúst. Hann segir bakteríuna lúmska og a› hún geti leynst hvar sem er.
HEILBRIGÐISMÁL Fimm Íslendingar
hafa veikst af hermannaveiki það
sem af er þessu ári, að sögn Har-
aldar Briem sóttvarnalæknis hjá
Landlæknisembættinu. Einn af
þessum fimm lést af völdum veik-
innar. Síðasta tilfellið sem kom
upp var í ágústmánuði.
Mun fleiri hafa veikst á þessu
ári en verið hefur undanfarin ár. Í
fyrra veiktust tveir, árið þar áður
greindist einn, þrír árið 2002. Þeir
sem greinst hafa í ár hafa komið
úr hinum ýmsu landshlutum.
„Þessi baktería er alls staðar,“
segir Haraldur um aðstæður sem
eru fyrir hendi við sýkingu her-
mannaveikinnar. Hann segir að
fjórir af þessum fimm ein-
staklingum sem veiktust á árinu
hafi smitast hér heima. Einn hafi
sýkst erlendis. Hermannabakter-
ían sé til að mynda algeng í Suð-
ur-Evrópu.
„Kjöraðstæður hermannaveiki-
bakteríunnar eru 20-30 gráðu heitt
vatn. Hún getur verið í sturtuhaus-
um, krönum og vatni sem er kyrr-
stætt um tíma. Hún getur verið í
því sem kallað er lífhúðir, sem
myndast oft í vatni og þá sem sleipt
lag, til að mynda á steinum í poll-
um. Yfirleitt veikist fólk sem veikt
er fyrir. Útbreiðslan er því tilvilj-
anakennd. Þessi veiki smitast ekki
á milli manna,“ segir Haraldur.
Hann bendir á að fólki eigi að láta
renna um stund úr krönum og
sturtum sem ekki hafa verið notuð
lengi. Með því móti skolist bakterí-
an burt, sé hún á annað borð fyrir
hendi. Svo drepist hún í 60 til 70
gráðu heitu vatni.
„Það má vel vera að það sé tals-
vert meira um smit á þessari
bakteríu en greint er. Fólk veit þá
bara ekki af því að það gengur
með hana. Það fær einhverja
„flensu“. Síðan myndar viðkom-
andi mótefni gegn bakteríunni
þannig að hún drepst og er þar
með úr sögunni. - jss
VEÐRIÐ Í DAG
ÆFINGAR ELDRI BORGARA Myndin er frá
20 ára afmælishátíð Íþróttafélags aldraðra
fyrr á árinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn:
Fálkanum
gefi› frelsi
DÝRALÍF Grænlandsfálka, sem dvalið
hefur í Fjölskyldu- og húsdýragarð-
inum frá því í sumar, var sleppt við
Hengil fyrripartinn í gær.
„Fálkinn sem er kvenfugl kom
í garðinn eftir að hafa fundist
grútarblautur
á Snæfells-
nesi. Grútur-
inn var þveg-
inn af fugl-
inum en til
þess þurfti tvo
þvotta. Að
þeim loknum
fékk hún að
jafna sig í úti-
búrum í garð-
inum og náði
fyrra þreki,“
segir í tilkynn-
ingu frá garð-
inum. Vonir
standa til að
fuglinn nái að að spjara sig í ís-
lensku umhverfi, en haft er eftir
Ólafi Nielsen, vistfræðingi á Nátt-
úrufræðistofnun, að flestir Græn-
landsfálkar séu farnir af landi
brott til vetrarstöðva. - óká
Mótmæli við Ráðhúsið:
Unglingur
handtekinn
MÓTMÆLI Fjórtán ára piltur var
handtekinn við Ráðhús Reykja-
víkur í gærkvöld þar sem Nátt-
úruvaktin, baráttusamtök fyrir
náttúruvernd, stóð fyrir mót-
mælum. Mótmælandinn ungi
beraði á sér afturendann og
færði lögregla hann á lögreglu-
stöð þangað sem foreldrar sóttu
hann.
Í ráðhúsinu stóð yfir móttaka
gesta á ráðstefnu um skaut-
smiðju fyrir áliðnað.
Lögregla segir mótmælin hafa
farið friðsamlega fram og áætlar
að um fimmtíu manns hafi tekið
þátt í þeim. Mótmælendur telja
þó að þarna hafi verið hátt í 150
manns. Einnig var mótmælt við
Nordica hótel í gærmorgun, en
þar er ráðstefnan haldin. - saj
BAKTERÍAN ALLS STAÐAR Bakterían sem
veldur hermannaveiki getur leynst í sturtu-
hausum og krönum sem hafa ekki verið
notaðir lengi.
GRÆNLANDSFÁLK-
INN Fálkanum sem
dvalið hefur í Fjöl-
skyldu- og húsdýra-
garðinum var í gær
sleppt við Hengil.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI