Fréttablaðið - 22.09.2005, Side 20
20 22. september 2005 FIMMTUDAGUR
NEYTANDINN: MARGRÉT FRÍMANNSDÓTTIR ÞINGKONA
Bestu kaupin sem ég hef gert hin síðari ár voru
í mexíkóskum arni til að hafa úti á verönd,“
segir Margrét Frímannsdóttir þingkona en hún
og maður hennar kveikja á honum nánast á
hverju kvöldi yfir sumarið og langt fram á
haust. „Það er svo rosalega notalegt að sitja við
eldinn. Hann ásamt hitara lengir sum-
arið og veru okkar úti,“ segir hún og
bætir við að nágrannarnir viti alltaf
hvenær þau séu heima því þá legg-
ur viðarlykt yfir nágrennið. Þá
komi þeir oft til að sitja með
þeim og spjalla.
Margrét er enn með samvisku-
bit yfir verstu kaupum sínum.
Fyrir mörgum árum langaði
hana mikið í myndavél sem kost-
aði hér heima um fimmtíu þús-
und krónur. Þegar hún var eitt
sinn stödd í Bandaríkjunum kom
hún í búð og sá þar svipaða
myndavél á mun betra verði. „Af-
greiðslumaðurinn sagði að ég væri
að gera mjög góð kaup og hann
fullyrti að þetta væri sama vél og ég
var að spyrja um,“ segir Margrét
sem fljótlega komst að því að
hún hefði keypt köttinn í
sekknum. „Það var ekki bara
að þetta væri gamalt módel
heldur var búið að fikta það
mikið í innvolsinu að hún var
algerlega ónothæf,“ segir Mar-
grét sem tók ekki eina einustu
mynd á þessa forláta myndavél.
„Þegar ég fór til að skila vélinni
kannaðist afgreiðslumaður ekkert
við mig.“
Sirrý er hætt að kaupa gos í flöskum. „Ég
mæli með fólk taki fram gamla góða sódastr-
eam-tækið og blandi Ribena sólberjasaft sam-
an við vatnið. Þetta er eins og gott frískandi
gos nema það
eru engin auka-
efni en uppfullt
af vítamínum,“
segir Sirrý.
Sirrý hefur gott
ráð fyrir þá sem
huga að hollust-
unni sérstaklega
fyrir yngstu kyn-
slóðina. „Ég geri
mikið af því að frysta vínber í öllum litum og
þetta er eins og besti brjóstsykur. Þetta er líka
mjög skemmtilegt út í djús sem klaki,“ segir
Sirrý en hún telur að lítil börn hafi mjög gam-
an af þessu. „Frosin vínber eru líka miklu betri
og sætari frosin en fersk,“ segir Sirrý og bætir
við að eins sé hægt að frysta rifsber og nota
sem klaka og skraut í sólberjagosið.
GÓÐ HÚSRÁÐ
■ Sigrí›ar Arnardóttur
hagur heimilanna
■ HVAÐ KOSTAR… VEIÐILEYFI?
Veiðikortið þarf að
endurnýja á hverju ári
Skotveiðimenn þurfa að sækja námskeið og borga ýmis gjöld áður en
hægt er að leggjast í veiðar. Boðið er upp á tvenn námskeið hjá umhverf-
isstofnun. Annars vegar skotvopnanámskeið sem kostar 18.000 krónur og hins veg-
ar veiðikortanámskeið sem kostar 7.000 krónur.
Til að stunda fuglaveiði þarf að hafa bæði skotvopnaleyfi og veiðikort. Hins vegar
geta menn veitt til að mynda lunda í háf með veiðikorti og skotið á leirdúfur með
skotvopnaleyfi. Ef námskeiðin eru tekin saman kostar það 25.000 krónur.
Lögregluumdæmin hafa umsjón með útgáfu skotvopnaleyfa. Um leið og nauðsyn-
legum gögnum er skilað inn þarf að greiða fyrir sakavottorð og A-réttindi krónur
4.650. Veiðikortið kostar 2270 krónur og þarf að endurnýja á hverju ári.
Ef allur pakkinn er tekinn í einu kostar það því 31.920 krónur.
■ VERSLUN OG ÞJÓNUSTA
Ókeypis lögfræðiaðstoð Orators
Orator veitir ókeypis lögfræðiaðstoð alla fimmtudaga í vetur milli klukkan 19.30 og
22.00 í síma 551-1012. Þar er tekið við fyrirspurnum um öll svið lögfræðinnar og
reynt er að svara eftir bestu getu. Í lögfræðiaðstoðinni eru að jafnaði laganemar af
fjórða og fimmta ári í Háskóla Íslands en reyndir lögmenn eru með í ráðum og að-
stoða ef þörf er á.
Lögfræðiaðstoð Orators hefur jafnframt umsjón með vefnum www.islog.is þar sem
hægt er að senda inn fyrirspurnir um lögfræðileg álitaefni.
Þessi þjónusta var fyrst í boði árið 1933 og var ætluð þeim sem ekki höfðu efni á
að leita til lögmanns. Þjónustan lagðist af um tíma en var endurreist um 1960 og
hefur starfað síðan. Dómsmálaráðuneytið styrkir starfið.
■ VERSLUN OG ÞJÓNUSTA
Framkvæmdatilboð í Seating concept
Húsgagnaverslunin Seating concept við Laugaveg 95 býður
viðskiptavinum upp á sérstakan afslátt af völdum vörum
vegna framvæmda í götunni, en beint á móti versluninni
er verið að reisa bílastæðahús.
Að sögn kaupmannsins er með þessu verið að koma til móts við viðskiptavini sem
gera sér ferð niður á Laugaveg og verða fyrir hugsanlegum óþægindum af völdum
framkvæmdanna. Afsláttur af völdum vörum á bilinu 10 til 60 þúsund krónur.
Tilboðið stendur þar til langt verður liðið á framkvæmdir, en búist er við að þeim
ljúki í nóvember.
Arinninn lengir sumari›
27
6
kr
.
56
6
kr
.
199019851980 1995
64
7
kr
.
2000
55
1
kr
.
2003
33
8
kr
.
42
kr
.
ÚTGJÖLDIN > KÍLÓ AF KJÚKLINGI
Á VERÐLAGI NÓVEMBER HVERS ÁRS
Á haustin fyllast kjötborð
verslana af hjörtum, nýr-
um og lifur úr nýslátruðu
sauðfé. Innmatur getur
verið veruleg búbót því
hann kostar ekki nema
brot af því sem jafnan er á
boðstólum í kjötborðunum.
„Innmatur er sælkerum samboð-
inn sé hann rétt matreiddur og
kostar nánast ekki neitt,“ segir
Margrét Sigfúsdóttir, skólastýra
Hússtjórnarskólans í Reykjavík.
Algengt verð á hjörtum er um
285 til 300 krónur kílóið, víða kost-
ar lifur tæpar 200 krónur kílóið og
hægt er að fá nýru á verðbilinu
120 til 170 krónur kílóið. Kjöt-
kaupmenn sem Fréttablaðið
ræddi við segja að innmatur selj-
ist jafnan vel en þeim ber saman
um að kaupendur séu oftar en
ekki í eldri kantinum.
Margrét hefur líka tekið eftir
þessari þróun og segir að sam-
kvæmt sinni reynslu sé ungt fólk
búið að bíta í sig þá bábilju að inn-
matur sé vondur og tengi hann
fyrst og fremst við fátækt og hok-
ur fyrri alda þegar flest var étið
burtséð frá bragði. „Þetta er hins
vegar af og frá. Víða í heiminum
er innmatur brúkaður í margs
konar rétti, til dæmis nota Bretar
nýru í marga af sínum bestu rétt-
um.“
Klassíska matreiðslan á inn-
mat er að skera hjörtun og nýrun
niður í smærri bita, velta þeim
upp úr hveiti og kryddi og pönnu-
steikja ásamt lauk. Þetta er síðan
soðið í potti í 45 mínútur en hveit-
ið þykkir sósuna og gerir hana
bragðsterka. Maturinn er borinn
fram með kartöflumús. „Þetta er
alveg ferlega gott,“ segir Mar-
grét, „en fólk verður að muna að
lifrina má ekki sjóða í meira en
þrjár til fjórar mínútur, því ann-
ars verður hún bragðvond.“
Barnafólk ætti að taka lifrinni
fagnandi hendi að mati Margrét-
ar. „Börn eru sólgin í lifur. Góð
uppskrift er að skera hana í þunna
strimla og steikja með kryddi á
pönnu og bera fram með spagettí
og tómatsósu. Krakkarnir sporð-
renna því.“
Margrét bendir á að innmatur
sé ekki aðeins heppilegur í hvunn-
dagsmáltíðir, heldur líka fullboð-
legur í fínar matarveislur og læt-
ur tvær uppskriftir fylgja máli
sínu til stuðnings.
bergsteinn@frettabladid.is
Innmatur er hollur og ód‡r
KJÖTBORÐIÐ Í NÓATÚNI Kjötkaupmönnum sem rætt var við bar saman um að flestir þeir sem keyptu innmat væru í eldri kantinum.
Korma lambalifur
1 kg lambalifur
3 dl jógúrt
5 cm engifer saxað smátt
6 heilar kardimomur
11/2 tsk. malað cummin
1/2 tsk. túrmerik
100 g kókósmjöl
3 dl vatn (Má nota kókosmjólk)
6 msk. olía
2 laukar saxaðir
2 hvítlauksrif marinn
1/2 tsk. salt-malaður pipar
1/2 tsk. cayenne-pipar
1 kanelstöng
4 negulnaglar
3 tómatar afhýddir og skornir í fjóra hluta
1/2 sítróna
Lifrin skorið í bita. Blandið saman
jógúrt, engifer, muldum kardi-
mommum, cumini og túrmerik, setjið
lifrina út í og látið standa í tvo til sex
klukkutíma. Sjóðið kókosmjölið í vatni
í 15 mínútur og sigtið (geymið vökv-
ann). Hitið olíuna, steikið lauk og
hvítlauk, bætið lifrinni í og steikið
áfram. Setjið marineringuna út í
ásamt vatninu af kókósmjölinu og
öllu kryddinu. Sjóðið í um fjórar
mínútur. Að lokum er sítrónusafa
bætt við. Látið standa í um 10 mín.
Borið fram með hrísgrjónum, kókos-
mjöli, hráum lauk, tómötum, mango
chutney, bananasneiðum og brauði.
800 g lambanýru
2 laukar
1 msk.smjör
2 msk. olífuolía
2 msk. hveiti
1 dl vatn
Salt og pipar
4 stórir tómatar
1 búnt steinselja
1/2 dl rauðvín
Skerið nýrun í tvennt, fjarlægið himnu
og leggið í kalt vatn í eina klst. Þurrkið
nýrun og skerið í fjóra hluta. Saxið
laukinn. Hitið smjör og olíu á pönnu
og kraumið laukinn þar til hann er
glær. Hækkið hitann og steikið nýrun
með. Stráið hveiti yfir og blandið vel
saman. Hellið vatni í, stráið salti og
pipar yfir og sjóðið við vægan hita í
fimm mínutur. Afhýðið tómatana og
skerið niður, blandið saman við ásamt
steinselju og rauðvíni og látið sjóða í
4-5 mínútur. Borið fram með kartöflu-
mús og salati.
Lambanýru í rauðvíni
MARGRÉT SIGFÚSDÓTTIR Bábilja að
innmatur sé vondur matur.