Fréttablaðið - 22.09.2005, Page 24

Fréttablaðið - 22.09.2005, Page 24
Á valdatímabili ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins og Fram- sóknarflokksins sl. 10 ár hafa stjórnvöld haft 40 milljarða af öldruðum og öryrkjum. Þetta er mikið fé og alger svívirða, að þetta skuli hafa viðgengist. Til þess að skila þessu fólki aftur því, sem ranglega hefur af því verið haft hefði því þurft að láta það fá meginhlutann af peningunum, sem fengust fyrir sölu Símans en það voru sem kunnugt er 67 millj- arðar. En svo mikil var óskamm- feilni ríkisstjórnarinnar, að hún lét ekki aldraða og öryrkja fá eina krónu af þessu fé! Árið 1995 ákváðu stjórnvöld að skera á tengsl milli lífeyris aldr- aðra og öryrkja frá almanna- tryggingum og lágmarkslauna á almennum vinnumarkaði. Fram að þeim tíma höfðu lífeyris- greiðslur hækkað sjálfvirkt um leið og lágmarkslaun hækkuðu. Við þessa breytingu var ákveðið, að lífeyrisgreiðslur ættu frá þeim tíma að taka mið af launaþróun. Þáverandi forsætisráðherra lýsti því yfir við þessa breytingu, að lífeyrisgreiðslur myndu ekki skerðast við breytinguna, heldur þvert á móti verða tryggar og rúmlega það. Það yrði bæði tekið mið af launabreytingum og verð- lagsbreytingum.Tryggingin yrði tvöföld. Reynslan hefur orðið önn- ur. Á þessu 10 ára tímabili, sem liðið er síðan, hefur kaupmáttur lífeyrisgreiðslna aldraðra og ör- yrkja aðeins aukist um helming þess,sem hann hefur aukist hjá verkafólki með lægstu laun. Alls hefur ríkisstjórnin haft af öldruð- um og öryrkjum á þessu tímabili 40 milljarða króna. Með öðrum orðum: Ef lífeyrir aldraðra og ör- yrkja, grunnlífeyrir og tekju- trygging, hefði áfram hækkað í samræmi við hækkanir á launum verkafólks og haldið raungildi sínu eins og þær bætur voru 1995 hefðu þessar lífeyrisgreiðslur verið 40 milljörðum hærri á tíma- bilinu en þær voru. Grunnlífeyrir og full tekjutrygging aldraðra og öryrkja væru 17 þús. kr. hærri á mánuði nú en þær bætur eru, ef þær hefðu hækkað í samræmi við hækkun lágmarkslauna frá 1995. Á sama tíma og framangreind þróun hefur átt sér stað varðandi kaupmátt lífeyris aldraðra og ör- yrkja hefur skattpíning þessa fólks aukist. Skerðing skattleysis- marka hefur bitnað þunglega á öldruðum og öryrkjum: Skerðing- in frá 1989, sem að mestu verður eftir 1995, er samkvæmt upplýs- ingum fjármálaráðuneytis 36,4 milljarðar (m.v. 2003). Ríkissjóður tók því 36,4 milljörðum meira til sín árið 2003 en verið hefði ef skattleysismörk hefðu fylgt launa- vísitölu eins og eðlilegt hefði ver- ið. Ef miðað væri við neysluvísi- tölu nemur upphæðin 16,3 millj- örðum, sem ríkið hefur tekið meira til sín en verið hefði ef skattleysismörk hefðu fylgt þeirri vísitölu. Hér er um háar fjárhæðir að ræða. Ríkisstjórnin hefur notað þessa fjármuni til þess að lækka skatta á fyrirtækjum. Það hefur haft forgang. Skattleysismörk eru kr. 71.296 í ár en ættu að vera kr. 114.015, ef þau hefðu fylgt launa- vísitölu en kr. 85.709, ef þau hefðu fylgt neysluvísitölu. Þessi þróun hefur leitt til þess, að öryrkjar og aldraðir, sem áður greiddu enga skatta greiða nú háar fjárhæðir í skatta. 29 þús. manns með tekjur undir 100 þús kr. greiddu á sl. ári 2 milljarða í skatta! Lífeyris- þegi,sem engar tekjur hefur aðrar en bætur almannatrygginga er nú farinn að greiða sem svarar einum og hálfum til tveggja mánaðabót- um á ári í skatta. Framkoma stjórnvalda við aldraða og öryrkja er til skammar. 22. september 2005 FIMMTUDAGUR24 A› leika sér í umfer›inni Eftirfarandi er saga sem hefur ít- rekað átt sér stað. Það er undir lesandanum komið hvort þessi saga endurtekur sig. Sögupersón- ur geta verið á öllum aldri og sögulok eru ófyrirsjáanleg og háð tilviljunum: Nú fyrir nokkrum dögum síðan fór rúmlega tvítugur maður út að leika sér. Hann var með nýja dýra leikfangið sem hann hafði dreymt lengi um. Kraftmikinn, sportleg- an, gljáfægðan og glansandi nýjan bíl. Leið hans lá um þröngar og misgreiðar götur þar sem 30 km hámarkshraði gildir. Hann lét bíl- inn fara upp í 60 km/klukkustund enda engin umferð í götunni. Hon- um fannst þetta reyndar mjög lít- ill hraði og beið þess spenntur að geta þeyst enn hraðar. Hann „fræsti“ hraðahindranirnar eins og félagar hans kölluðu það þegar þeir óku yfir þær án þess að slá af. Hann var gagntekinn frelsistil- finningu. Fannst hann ekki þurfa að hafa áhyggjur af neinu nema sjálfum sér, enda engan bíl að sjá. Hann gæti leyft sér nánast allt. Hann var líka ótrúlega góður öku- maður og taldi hann sig hafa mikla reynslu. Var búinn að keyra í rétt rúm þrjú ár. „Úps!“ Hann snarhemlaði. Þarna munaði litlu. Það hljóp kött- ur fyrir bílinn en hann slapp – sem betur fer. Unga manninum var brugðið enda var hann mikill katta- og dýravinur. Mátti ekkert aumt sjá. Nú var hann kominn inn á götu þar sem honum fannst hann mega fara miklu hraðar. Þar var 50 km hámarkshraði og honum fannst sem honum væri alveg óhætt að fara miklu hraðar en það. Köttur- inn hafði sloppið þannig að nú var allt í góðu lagi. Bíllinn var kominn upp í 115 km hraða og allt var bara „cool“. Aðeins neðar í götunni stóð lítið sex ára gamalt barn við gang- stéttarbrún. Það var á bakvið kyrr- stæðan bíl. Barnið gerði nákvæm- lega eins og það hafði lært í Um- ferðarskólanum og hjá foreldrum sínum. Það gáði til beggja hliða. Horfði í dágóða stund. Sá bílinn sem virtist langt í burtu. Það skynjaði ekki almennilega hraðann á bílnum vegna fjarlægðar hans en hann virtist langt í burtu. Öllu virt- ist óhætt og því steig barnið skref- ið út á gangbrautina. Skyndilega heyrðist stutt, sker- andi og hvellt hljóð. Barnið stöðv- aði og sá hvar inn á götuna kom lögreglubíll með blá blikkandi ljós. Um leið sá það hvar bíll unga mannsins snarhemlaði og það skrítna var að nú var hann aðeins örfáa metra frá barninu og kom æðandi að því. Skelfingu lostið stökk það aftur upp á gangstéttina. Það fann þytinn og heyrði ærandi hemlahljóðin rétt fyrir aftan sig þegar bíllinn þaut hjá. Lögreglan vissi ekki að hún hafði bjargað lífi barnsins. Ungi maðurinn sem í huga sér blótaði lögreglunni vissi ekki að honum hafði verið forðað frá því að verða banamaður barnsins. Barnið vissi ekki að bíllinn fór svona hratt. Við vitum oft ekki hvað er framundan á vegi okkar. Gerðu ráð fyrir því óvænta og búðu þannig í haginn að þú getir brugðist við því. Ákæruvaldið í gervi Jóns H. B. Snorrasonar glotti breitt einsog uppistandari á búllu þegar ljós- vakamiðlarnir kröfðust skýringa eftir að héraðsdómur hafði vísað málinu á hendur Baugi frá. Það var erfitt að skilja. Í frávísuninni fólst svo herfileg útreið fyrir emb- ætti ríkislögreglustjóra að ég man ekki eftir öðru eins hjá nokkurri ríkisstofnun. En það vottaði hvorki fyrir skömm né iðrun. Efnislega sagði dómurinn að ákærurnar hefðu verið ótæk moð- suða. Þetta er slíkt áfall fyrir emb- ættið eftir það sem á undan gekk að það er ófært að stjórn þess verði látin standa óbreytt. Nú er komið að því að dómsmálaráð- herra taki í taumana því það er á hans ábyrgð að stofnanir ráðu- neytisins séu ekki í höndum fúskara. Stjórn embættisins er augljóslega í slíkum molum að það er ekki boðlegt í réttarríkinu. Ríkislögreglustjóri hefur nú fengið harkalegan skell í tveimur málum. Embættið klúðraði stóra myndfölsunarmálinu – þar sem al- varleg afbrot voru framin – með hreint ótrúlegum hætti eftir margra ára fokdýrar rannsóknir. Það var harður áfellisdómur yfir embættinu sem vakti strax alvar- legar spurningar um faglega getu þess, og þarmeð stjórnun embætt- isins. Á þriðjudaginn voru svo allar verstu grunsemdir um vangetu embættisins staðfestar þegar hér- aðsdómur vísaði frá öllum ákær- um þess á hendur Baugi af því þær uppfylltu hreinlega ekki lág- marksskilyrði. Ákæruvaldið gat ekki sagt hverjir hefðu stolið, hve miklu né frá hverjum. Á mæltu máli þýðir þetta að dómurinn sagði að Haraldur Johannessen og Jón H.B.S. væru fúskarar sem kynnu ekki til verka og hefðu ekki dómgreind í lagi. Ríkislögreglustjóri er til við- bótar svo gersneyddur veruleika- skyni að fulltrúi ákæruvaldsins í málinu, Jón H.B.S., hélt því blákalt fram að dómurinn væri síður en svo áfall yfir embættinu – heldur partur af ferlinu? Hvaða ferli, með leyfi að spyrja? Heldur ríkis- lögreglustjóri og cand. juris Jón H.B.S. að þegar ákært er í nafni embættisins séu þeir í einskonar Gettu Betur spurningakeppni þar sem menn fá að giska, og geta bet- ur, og giska aftur – þangað til þeir slampast hugsanlega á rétt svar? Opinberar ákærur snúast um líf fólks, um réttlæti og en fyrst og síðast um grundvallarreglur í rétt- arríkinu. Ég ber enga sérstaka virðingu fyrir Baugsfeðgum og mér geðjast ekki að vinnubrögð- um þeirra. En ég ber virðingu fyr- ir réttarríkinu. Það gerir sér ekki mannamun. Það veitir öllum jafnt skjól. Líka þeim sem mér líkar ekki við. Þannig vil ég hafa það af því þannig tryggir réttarríkið rétt- indi allra, hárra sem lágra – líka harðdrægra og ósvífinna við- skiptamógúla. Ef ákærurnar standast ekki – þá standast þær ekki. Það er eng- inn millivegur. Þá eru þær fúsk sem hefði betur verið sett ofan í skúffu í stað þess að gera fjölda manns miska, embættinu óbætan- legan skaða, bletta lögreglukerfið í landinu – og valda skattgreiðend- um tugmilljóna tjóni. Fúsk Jóns og Haraldar Johannessen kostaði skattgreiðendur í gær tæpar 40 milljónir. Þá er ótalin sú bótaá- byrgð sem ríkinu er hugsanlega bökuð með gáleysi þeirra í starfi og kann að hlaupa á margfalt stærri upphæðum sem við skatt- greiðendur munum líka þurfa að greiða. Baugsmálið og stóra myndföls- unarmálið leiða einfaldlega að þeirri niðurstöðu að embætti rík- islögreglustjóra er í höndum óhæfra manna. Í öllum eðlilegum réttarríkjum væru þeir nú settir til hliðar og í önnur verkefni með- an reynt er að tjasla því saman sem eftir er af embættinu. Það er það verk sem nú bíður dómsmálaráðherra ef eitthvað blóð er í honum og sjálfsagt að Al- þingi hjálpi honum ef þarf. Embætti í höndum óhæfra Grunnlífeyrir og full tekjutrygg- ing aldra›ra og öryrkja væru 17 flús. kr. hærri á mánu›i nú en flær bætur eru, ef flær hef›u hækka› í samræmi vi› hækkun lágmarkslauna frá 1995. Fjörutíu milljar›ar haf›ir af öldru›um og öryrkjum ALDRAÐIR BORGARAR „Til þess að skila þessu fólki aftur því, sem ranglega hefur af því verið haft hefði því þurft að láta það fá megin- hlutann af peningunum, sem fengust fyrir sölu Símans,“ segir greinarhöfundur. ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON ALÞINGISMAÐUR UMRÆÐAN EMBÆTTI RÍKIS- LÖGREGLUSTJÓRA EINAR MAGNÚS MAGNÚSSON UPPLÝSINGAFULLTRÚI UMFERÐARSTOFU UMRÆÐAN UMFERÐIN BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON UMRÆÐAN KJÖR ALDRAÐRA OG ÖRYRKJA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.