Fréttablaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 27
[ ]
SMÁAUGLÝSINGAR
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er fimmtudagur 22.09,
265. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 7.10 13.20 19.29
AKUREYRI 6.55 13.05 19.14
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Söngvarinn og auglýsingaframleiðand-
inn Steinarr Logi fann uppáhalds-
skyrtuna inni í skáp hjá afa konu
sinnar. Hann notar hana mikið þrátt
fyrir að vera bolakarl að eðlisfari.
„Ég er voðalega mikill bolakarl,“ segir
Steinarr Logi Nesheim aðspurður hvort
hann eigi sér uppáhaldsflík. Hann hugsar
sig betur um og bætir við að það sé reynd-
ar ein flík sem honum þyki sérstaklega
vænt um. „Það er skyrta sem ég fann inni í
skáp hjá afa konunnar minnar og finnst
með þeim flottari. Hún hafði hangið þar
óhreyfð mjög lengi svo ég fékk bara að eiga
hana.“ Skyrtan, sem er minnst fimmtíu ára
gömul, var upphaflega spariskyrta. Núna
er hún að sögn Steinarrs einfaldlega
töffaraskyrta sem hann notar mjög mikið,
þar á meðal á tónleikaferðum sínum. Stein-
arr segir margt geta leynst í gömlum fata-
skápum en hann hefur gaman af að spá í
föt. „Ég hef alltaf verið frekar mikið í ein-
litu en fyrir nokkru síðan datt ég inn í
svolitla litagleði. Nú er allt hjá mér í gulu,
rauðu og skærum litum. Það er ekkert
nema gott að breyta dálítið til.“
Á daginn framleiðir Steinarr auglýsing-
ar fyrir ýmis fyrirtæki og hefur brjálað að
gera. Þar fyrir utan syngur hann í hljóm-
sveit sinni Kung Fú. „Við unnum jólalaga-
keppni Rásar 2 fyrir tveimur árum og þá
fór boltinn að rúlla. Við höfum gefið út
nokkur lög en fyrir jólin kemur út plata.“
Hljómsveitarmeðlimirnir, sem koma úr
rokkgrúppum á borð við Dead Sea Apple
og Strigaskóm nr. 42, ákváðu einn daginn
að fara í alveg öfuga átt og stofna Kung Fú
sem spilar alíslenskt sveitaballapopp.
Hljómsveitarmeðlimir sitja ekki auðum
höndum þessa dagana því á laugardaginn
ætla þeir að standa fyrir stórdansleik í
Valhöll á Eskifirði. „Austurlandið hefur
verið okkur mjög gott. Þar höfum við spil-
að á æðislegum böllum og verið mjög vel
tekið.“
mariathora@frettabladid.is
Fann skyrtuna í fataskáp afans
Hápunktur tískudaganna í
Kringlunni verður í kvöld eftir
klukkan 18. Þá munu módel
sem útskriftarnemar í fata-
hönnun hafa dressað upp í
djarfan og frumlegan fatnað
svífa um ganga og lifandi tón-
list hljóma. Opið verður til 21
eins og ávallt á
fimmtudögum.
Oasis opnaði nýja
verslun í Smáralind
síðastliðinn föstudag.
Nýja verslunin er á 2.
hæð, beint á móti
Zöru. Oasis var með
tvær verslanir fyrir, í
Kringlunni og í Deb-
enhams í Smáralind. Verslunin í
Debenhams verður starfrækt
áfram svo Oasis verður með
tvær verslanir í Smáralind.
Lumex hefur hafið sölu á krist-
alsljósakrónum frá þýska hönn-
unarfyrirtækinu Anthologie
Quartett. Fyrirtækið er þekkt
fyrir athyglisverða hönnun og
margir þekktir hönnuðir hafa
starfað með því. Þar má nefna
Andrea Branzi, Marcel Breuer
og Jasper Morrison.
Lýðheilsuáætlun Evr-
ópusambandsins og
verkefnastyrkir henni
tengdir verða umfjöll-
unarefni á kynningar-
fundi á vegum heil-
brigðis- og trygginga-
málaráðuneytisins og
Lýðheilsustöðvar sem
haldinn verður á
Grand hóteli, Sigtúni 38, frá
klukkan 13 til 17 á morgun. Er-
lendir og innlendir sérfræðing-
ar flytja erindi á fundinum en
hann er opinn almenningi og
aðgangseyrir er enginn.
Steinarr Logi í skyrtunni gömlu ásamt hundinum sínum.
LIGGUR Í LOFTINU
[ TÍSKA - HEILSA - HEIMILI ]
KRÍLIN
Kviðdómur er fullt
af fólki sem kemur
saman og ákveður
hver er með besta
lögfræðinginn.
SMÁAUGLÝSINGAR
SÍMI: 550 5000
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
STASIA
Fallegur fatnaður í
yfirstærðum. BLS 3
KRABBAMEINS-
FÉLAGIÐ
Bangsar fyrir gott málefni BLS 5
HÚSGAGNAHÖNNUN
Skemmtilegir stólar
eftir Þórdísi Zoëga BLS. 6