Fréttablaðið - 22.09.2005, Blaðsíða 48
„Veiðin var að mörgu leyti erfið,“ segir Reim-
ar Ásgeirsson, leiðsögumaður hreindýraveiði-
manna. „Tíðarfarið var erfitt. Byrjað var að
snjóa í ágúst upp til fjalla, það var mikil rign-
ing og vindsperringur með henni. Það reyndi
mun meira á menn í haust en undanfarin ár.“
Þrátt fyrir erfiðari aðstæður var víða veitt
upp í kvótann, sem var 800 dýr líkt og árin
2003 og 2004. „Að mínu viti sönnuðu leið-
sögumennirnir sig,“ segir Reimar. Síðustu
árin hefur veiðimönnum borið skylda til að
hafa leiðsögumenn með við veiðarnar.
Að sögn Reimars hefur andrúmsloftið í
kringum veiðarnar breyst síðustu ár. Mikil
eftirspurn hefur verið eftir veiðileyfunum og
dregið er á milli þeirra sem sækja
um þau. Aðeins annar hver þeirra
fær leyfi en fyrir vikið eru menn
síður að veiða dýrin til neyslu.
„Það éta þetta auðvitað allir en
menn eru orðnir meira í þessu fyr-
ir sportið.“ Reimar segir þetta
meðal annars koma fram í því að
þeir sem ekki fái veiðileyfi komi
samt með á fjöll til að taka þátt þó
þeir skjóti ekki. Þá sé meira um að
menn vilji láta stoppa upp bráð-
ina, en hann vinnur jafnframt að
því að stoppa upp dýr.
Jóhann G. Gunnarsson, starfs-
maður Veiðistjórnunarsviðs á
Austurlandi, tekur í svipaðan
streng. „Veiðarnar gengu vel í
heildina, þó veðrið hafi dálítið
verið að stríða mönnum.“ Hann
segist svolítið hafa minnt veiði-
menn á það að nýta dagana vel
og skipuleggja veiðarnar fram í
tímann þar sem leiðsögumennirn-
ir væru oft umsetnir síðustu daga
veiðitímabilsins.
Að sögn Jóhanns var eitthvað um
að erlendir veiðimenn keyptu leyfi
en þeir hafi verið 20-30 talsins
eins og síðustu ár.
Fjölvítamíntöflur
Sykurlausar me›
málmsöltum.
Fjölvítamíntöflur
Sykurlausar me› málm-
söltum án A- og D- vítamína.
Fyrir flá sem taka l‡si.
E-vítamín
Andoxunarefni.
Eflir varnir líkamans.
E-vítamín Súper
Öflugt andoxunarefni.
Eflir varnir líkamans.
B1 og B6
Inniheldur Tíamín og
P‡rídoxín.
B1 - Tíamín
Stu›lar m.a. a› heilbrig›ri
starfsemi taugakerfisins.
B - Kombín
Fjölbreytt B-vítamín.
B - Sterkar
Fjölbreytt B-vítamín.
C - Vítamín
Öflugt andoxunarefni.
Eflir varnir líkamans.
B5 - Pantótenat
Tali› vera gott fyrir hú›,
hár og neglur.
B6 - P‡rídoxín
Tali› vera gott m.a. fyrir
efnaskipti líkamans.
...kemur heilsunni í lag
Heilsteypt bætiefnalína
Láttu það
eftir þérað veravið góða
heilsu
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
3
6
0
.0
2
7
Hlæjum saman
hálftíma í viku hverri
Hláturkætiklúbburinn mun hittast vikulega á miðviku-
dagskvöldum í vetur. Ekki eru sagðir brandarar heldur
eru iðkaðar æfingar sem kalla hláturinn fram.
Ásta Valdimarsdóttir hláturleiðbeinandi hefur gaman af lífinu.
„Við erum óformlegur klúbbur sem
hittist einu sinni í viku til þess að
hlæja,“ segir Ásta Valdimarsdóttir
hláturleiðbeinandi. „Við hlæjum
saman í hálftíma og svo förum við
heim.“ Hún fullyrðir að þessar hálf-
tímalöngu hlátursæfingar jafngildi
þriggja klukkustunda róðri fyrir
líkamann. „Við þyrftum að iðka
þær einu sinni á dag.“
Ásta hefur verið hláturleiðbeinandi
frá árinu 2001 þegar hún lærði
hláturfræðin á námskeiði í Noregi.
„Mörgum finnst þetta skrítið í upp-
hafi, eða jafnvel asnalegt, og eiga
erfitt með að fá sig til að hlæja
svona upp úr þurru. En það sem við
þurfum að taka með í reikninginn
er að leyfa barninu í okkur sjálfum
að vera frjálsu og skemmta okkur,“
segir Ásta. „Og það er ekki hægt að
hugsa sér saklausari skemmtun og
áhrifaríkari fyr-
ir líkama og
sál.“
Að sögn Ástu
eru æfingarnar
af ýmsum toga.
„Eina köllum
við danshlátur.
Þá dönsum við
um gólfið og
hlæjum framan
í hvert annað,“
segir Ásta.
Miklu skiptir
að hafa augn-
samband í
þeirri æfingu. „Önnur kallast
kveðjuhlátur. Hann er þannig að
við tökumst í hendur, horfumst í
augu og hlæjum. Hjartanlegur hlát-
ur er þannig að við teygjum
armana upp í loftið og hlæjum.“
Ásta segir þennan hlátur hafa sömu
áhrif á líkamann og til dæmis hlát-
ur sem stafar af bröndurum eða
einhverju skemmtilegu. „Líkaminn
byrjar að framleiða endorfín, sem
hafa þau áhrif á líkamann að
manni líður vel.
Kristján Helgason er hláturleiðbein-
andi með Ástu. Þau byggja hlátur-
fundina á æfingum Indverjans
Madan Kataria. „Hann bjó þær til
til að hætta að þurfa að segja
brandara til að fá fólk til að hlæja,“
segir Ásta. „Ef þú notast við æfing-
arnar skiptir engu máli hverrar
þjóðar þú ert, hverrar trúar þú ert
eða hvaða tungumál þú talar. Hlát-
urinn er sá sami hjá öllum.“
Kataria þróaði æfingarnar árið
1995 og hefur síðan þá ferðast um
víða veröld að boða fagnaðarerindi
hlátursins Meðal annars kom hann
til Íslands í fyrra. Ásta hefur tvisvar
sótt námskeið hjá honum.
Meðlimir Hláturkætiklúbbsins hitt-
ast á miðvikudagskvöldum í hús-
næði Maður lifandi, Borgartúni 24.
Aðgangseyrir á fundina er 300
krónur.
Indverski læknirinn
Madan Kataria er
upphafsmaður hlát-
uræfinganna.
10 ■■■ { útiverublaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Aldrei fleiri hreindýr veidd
HREINDÝRAVEIÐITÍMABILINU LAUK 15. SEPTEMBER SÍÐASTLIÐINN. ALLS VORU FELLD 754 DÝR, SEM ER MEIRA EN Á
SÍÐASTA ÁRI, ÞRÁTT FYRIR AÐ VEÐURFAR VÆRI MUN VERRA Í SUMAR.
Hér sést erlendur veiðimaður sem Reimar leiðbeindi með fal-
legan hreindýrstarf.
Jóhann G.
Gunnarsson
Reimar Ásgeirsson