Fréttablaðið - 22.09.2005, Síða 50

Fréttablaðið - 22.09.2005, Síða 50
„Það er mikið að gerast og mikill spenningur fyrir okkar vörum er- lendis,“ segir Skúli J. Björnsson, eigandi Sportís. „Við fáum reglu- legar fyrirspurnir frá útlöndum.“ Hann segir þetta þó vera langtíma- verkefni. „Við höfum verið að styrkja okkar innviði og ná góðum tökum hér á heimamarkaði, sem er forsenda frekari vaxtar.“ Þegar er þó farið að flytja eitthvað af Cin- tamani-fatnaði til Frakklands, Tékklands og Kína. „Við erum líka að þreifa fyrir okkur á Norður- löndum.“ Skúli segir Norðurlanda- markaðinn þó vera erfiðan þar sem mikið af erlendum keðjum sé til staðar. Cintamani-vörumerkið var fyrst framleitt árið 1994, en þá var ver- ið að þróa útivistarfatnað á fyrstu Everest-farana. Þess má einnig geta að Haraldur Örn Ólafsson og Ingþór Bjarnason fóru í Cinta- mani-fötum á suðurpólinn og á hæstu tinda heimsálfanna sjö. Sportís tók hins vegar við vöru- merkinu 1999 og síðan þá hefur Cintamani verið hluti af fram- leiðslu fyrirtækisins. Heimasíða fatalínunnar er www.cintamani.is 12 ■■■ { útiverublaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT Síðumúla 15, s. 5885711 og 6946103 veffang: www.yogaheilsa.is netfang: yogaheilsan@yogaheilsa.is www.yogaheilsa.is YOGA YOGA YOGA -RÉTT SLÖKUN losar um spennu í vöðvum, róar og kyrir hugann. -LÍKAMLEG ÁREYNSLA Í ÆFINGUM. Þá styrkjum við vöðva, liðbönd, liðamót, mýkjum hrygginn og örvum blóðrás - RÉTT ÖNDUN þýðir að anda djúpt og vel. -RÉTT FÆÐI sem stjórnast af hófsemi og fjölbreytni. -JÁKVÆTT HUGARFAR. Að beina huganum jákvætt að verkefnum dagsins strax að morgni. Morgun,- hádegis,- síðdegis - og kvöldtímar NÝJUNG - KRAFT YOGA - KRÖFTUGAR YOGAÆFINGAR Sértímar fyrir byrjendur og barnshafandi Fjórhjólaferðir í Haukadalsskógi Allann ársins hring. Allt að 50 manna hópar. Uppl. í s: 892-4810 og 892-0566. Stefna að útflutningi í stórum stíl Haraldur Örn Ólafsson á suðurpólnum í Cintamani-fatnaði. Skúli J. Björnsson, eigandi Sportís, stefnir að útflutningi á Cintamani-fötum í framtíðinni. Cintamani-útivistarfötin voru upphaflega þróuð hér á landi fyrir fyrstu Everest-farana. Í dag eru þau hluti af framleiðslu Sportís í Garðabæ, sem stefnir að útflutningi á þeim í stórum stíl í framtíðinni. Áhugi á kajakróðri hefur aukist mikið hér á landi síðustu ár. Um 330 félagsmenn eru nú í Kayakklúbbnum sem er stærsta fé- lag ræðara og nokkur félög og fyr- irtæki til viðbótar stunda kajakróður hér á landi. „Klúbbur- inn verður 25 ára í vetur. Þetta er fyrsti og langelsti klúbburinn,“ segir Þorsteinn Guðmundsson, sem hefur verið formaður Kayakklúbbsins frá upphafi. „Það hefur verið mikil aukning síðustu ár, mest þó árið 2003.“ Kajakróðurinn kemur upphaflega frá Grænlandi, en hjá Grænlend- ingum var þetta lífsmáti en ekki sport. Englendingar tóku þetta síð- an upp eftir þeim um miðja 19. öld. Áhugi á þessu sporti óx síðan hratt í lok síðari heimsstyrjaldar og nú er íþróttin stunduð út um allan heim. Að sögn Þorsteins leggur félagið mikið upp úr kennslu og þjálfun. „Við leggjum mikla áherslu á að menn stundi æfingar og læri þetta á réttan máta.“Hér á landi skiptist starfsemin í sjókajakaróður og straumkajakaróður. „Við erum með aðstöðu úti á eiðinu á Geld- inganesi með sjókajaka,“ segir Þorsteinn.“ Það er hins vegar meiri vand- kvæðum bundið með straumróð- urinn. Félagsmönnum var nýlega bannað að vera í Elliðaánum og einnig fengu nokkrir félagsmenn sektir á dögunum fyrir að æfa sig í leyfisleysi í Ölfusá. „Ég trúi ekki öðru en að við fáum að fara aftur í Elliðaárnar í vetur,“ segir Þor- steinn. „Vatnalögin heimila okkur að vera í ánum.“ Æfingarnar fara þó ekki bara fram úti í náttúrunni. Síðan ný innilaug opnaði í Laugardalslauginni hefur Kayakklúbburinn verið með sund- laugaræfingar þar á kvöldin í hluta innilaugarinnar, meðan gest- ir eru í hinum hlutanum. Áður var klúbburinn með æfingar í lauginni eftir lokun. „Einu sinni máttum við alls ekki láta bátana sjást í lauginni,“ segir Þorsteinn. „Það var einhver viðkvæmni með það gagnvart almenningi að bátar væru settar í laugarnar. Það er löngu liðin tíð.“ Heimasíða klúbbsins er www.kayakklúbburinn.is Þorsteinn Guðmundsson við dómgæslustörf í róðrarkeppni í Elliðaám. Áhugi á kajakróðri stóraukist síðustu ár Þorsteinn Guðmundsson hefur verið formaður Kayakklúbbsins í 25 ár og segir að áhuginn hafi stórauk- ist síðustu ár. Klúbburinn leggur mikið upp úr kennslu og þjálfun og er með æfingar í Laugardalslaug á mánudags- kvöldum. Frá æfingu kajakræðara í Laugardalslauginni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.