Fréttablaðið - 22.09.2005, Page 52
14 ■■■ { útiverublaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
„Þetta byrjaði með hugmynd sem
Ungmennafélag Íslands þróaði í
samstarfi við Ungmenna- og
íþróttasamband Austurlands,“ segir
Ásdís Halla Bjarnadóttir, verkefnis-
stjóri verkefnisins Göngum um Ís-
land. „Það verkefni var að taka
saman skráningu á styttri göngu-
leiðum sem tekur innan við tvo og
hálfan tíma að ganga.“ Afrakstur
þess verkefnis var svo bókin Göng-
um um Ísland sem innihélt um 300
gönguleiðir. „Síðan var ákveðið þar
sem um leið söfnuðust einnig lengri
gönguleiðir að fara í samstarf við
Landmælingar Íslands og Ferða-
málaráð og koma þá upp gagna-
grunni sem héldi utan um bæði
styttri og lengri gönguleiðir.“
Afrakstur þessa samstarfs var síðan
vefurinn www.ganga.is. Ung-
mennafélagið lagði til styttri leið-
irnar, Ferðamálaráð lengri leiðirnar
og Landmælingar Íslands lögðu til
kortagrunn þar sem gönguleiðirnar
voru merktar inn. Vefurinn var síð-
an opnaður hinn 22. júní.
„Það er enn verið að merkja marg-
ar gönguleiðir,“ segir Ásdís. „Og þá
viljum við fá þær inn í grunninn.“
Sérstaklega er óskað eftir því á
vefnum að fólk skrái nýjar leiðir
inn í grunninn.
Hún segir að viðtökurnar við vefn-
um hafi verið rosalega góðar. „Þeir
sem hafa farið inn á vefinn nýta sér
hann mjög oft, jafnvel þó þeir séu
ekki að sjálfir að fara í gönguferðir.
Fólk notar hann jafnvel til að
skipuleggja aðrar ferðir en göngu-
ferðir. Það hafa komið athuga-
semdir við leiðalýsingar og okkur
hafa líka borist myndir af göngu-
leiðunum, sem er auðvitað mjög
skemmtilegt.“
Að sögn Ásdísar eru nú yfir 800
gönguleiðir hvaðanæva af af land-
inu komnar inn í grunninn. Lýst er
upphafi leiðarinnar, hvernig sé að
ganga um viðkomandi svæði, hvar
leiðin endi og um það bil hversu
löng hún sé. Einnig eru á vefnum
upplýsingar um skipulagðar göngu-
ferðir sem fram undan eru ásamt
ýmsum upplýsingum um útivist.
Ásdís Helga Bjarnadóttir er verkefnisstjóri Göngum um Ísland. Þessi mynd var tekin af
henni í Þórsmörk að ganga Laugaveginn.
Hér sjást gönguleiðir í nágrenni höfuðborgarsvæðisins á vefnum www.ganga.is.
Yfir 800 gönguleiðir um Ísland
komnar á vefinn www.ganga.is
Ungmennafélag Íslands, Ferðamálaráð og Landmælingar Íslands opnuðu snemmsumars
gönguleiðagagnagrunninn www.ganga.is. Yfir 800 gönguleiðir eru nú komnar á vefinn,
sem fær þúsundir heimsókna í hverri viku.
Mikilvægt er að fatnaður skotveiði-
manna sé hlýr, sérstaklega eins og
veðrið er á Íslandi þessa dagana.
Menn geta þurft að liggja flatir
tímunum saman og oftar en ekki er
gengið í bleytu. Hægt er að fá tvö-
falda jakka, vatnshelda og úr
ýmiss konar öndunarefnum.
Innri jakkinn er þá yfirleitt
fóðraður en sá ytri andar
vel og er úr efni sem
skrjáfar ekki í. Báðir eru
þeir í felulitum og því er
hægt að nota jakkana
staka, þann innri ef veð-
ur er gott en þann ytri
ef mikið er um göngur.
Vasar á jökkum eru oft-
ar en ekki með sérhólf-
um fyrir aukabúnað svo
sem skot og flautur og til
eru jakkar með þar til
gerðum poka á bakinu
fyrir aukabúnað.
Veiðibuxur eru til í öllum
stærðum og gerðum. Hægt er að fá
smekkbuxur í
stíl við jakkana,
vatns- og vind-
heldar með
góðri öndun.
Einnig eru á
m a r k a ð n u m
ófóðraðir jakk-
ar og buxur
sem eru þá ein-
ungis vind- og
vatnsheld og
mun einfaldari í
sniðum.
Mikilvægt er að
allt sé í felulitum, einnig húfur og
vettlingar. Bæði eru til hlýjar hett-
ur með flísgrímu og fóðraðar og
vatnsheldar húfur. Gott er að vera
með vatnshelda vettlinga með sér-
stöku gripi í lófanum fyrir
byssuna. Gikkfingurinn er
yfirleitt úr öðru og þynnra
efni svo hægt sé að koma
puttanum á gikkinn því einhvern
tímann þarf jú að hleypa skotinu af.
Tvöföld veiðiúlpa frá 10X Product, vind- og
vatnsheld, innri jakkinn er dúnfylltur. Fæst
í Útivist og veiði á 24.900 krónur.
Flísfóðruð lambhús-
hetta, vindheld og
vatnsfráhrindandi.
Fæst í Útivist og
veiði á 3.990 krónur.
Vatns- og vindheldar veiðibuxur frá
Browning, úr sérstöku öndunarefni
með margs konar vösum og
rennilásum. Fást í Vesturröst á
21.900 krónur.
Veiðihanskar
með byssugripi í
lófa og gikkfingri.
Vatns- og vind-
heldir með
góðri öndun.
Fást í Vestur-
röst á 4.490
krónur.
Klæðnaður skotveiðimanna
Að ýmsu þarf að huga þegar kemur að kaupum á skotveiðifatnaði. Veiðimaðurinn þarf
helst að vera í felulitum frá toppi til táar.
útiverublaðið Útgefandi: 365 PRENTMIÐLAR
Ábyrgðarmaður: GUÐMUNDUR RÚNAR SVANSSON Forsíðumynd: SAJ