Fréttablaðið - 22.09.2005, Page 55
9FIMMTUDAGUR 22. september 2005
Vaxtalaus vika
Á vaxtalausu tilboði:
Þriggja sæta hægindasófi og tveir
hægindastólar (3+1+1) af bestu gerð.
Sannkallaðir letistólar.
Mikið úrval af
borðstofusettum
Við erum einnig með gott úrval af
borðstofuhúsgögnum og gjafavörum.
Sjón er sögu ríkari!
Haukur Dór. Málverkasýning stendur yfir
Verið velkomin að Dalvegi 18.
Gallery Húsgögn
Stofuborð.
Listagripur úr kopar og gleri.
Einn sá flottasti!
Horn sófi með snúningi á endasætum.
Á vaxtalausu tilboði: 221.800 kr.
stendur frá 17. til 24. sept.
Opið alla virka daga frá 11-18, laugardaga 11-16 og sunnudaga frá 13-16
113.000 kr. 49.900 kr. stk.
Mikið úrval af sófasettum
á vaxalausum dögum
í allt að 6 mánuði.
Hengiplöntur fara vel innan um myndir á veggj-
um og geta fallið eins og fossar niður af hillum.
Það getur verið gaman að punta upp á heimilið með
hengiblómum. Í gluggunum koma þau að nokkru leyti í
staðinn fyrir gardínur því þau hindra innsýn í híbýlin.
Þá setja þau frísklegan svip á skápa- og hillugafla þar
sem þau fá nóg pláss til að vaxa niður. Hengiblómin
sóma sér líka vel á veggjum innan um myndir og vegg-
teppi og ef tök eru á að setja lýsingu fyrir ofan þau er
frágangurinn fullkominn. Meðfylgjandi myndir eru
teknar í Garðheimum.
Falla eins og fossar
Giovanni Lauda og Dante Do-
negani eru þekktir ítalskir
hönnuðir sem heimsóttu Ís-
land á dögunum á vegum
verslunarinnar Lúmex.
Nýjasta vara þeirra,
Multipot, hefur slegið í gegn
víða heim en hér á Íslandi
héldu þeir fyrirlestra í Lista-
háskóla Íslands fyrir nemend-
ur og fagfólk.
Hönnuðurnir Giovanni Lauda og
Dante Donegani hafa starfað
saman frá árinu 1992 og kenna
báðir við hina virtu Domus-aka-
demíu í Mílanó. Þeir eru hæglátir
en það er
augljóst að
hönnun er
þeirra ástríða.
„Hönnun er
samvinnuverk-
efni, ekki bara
milli mín og Dan-
te heldur einnig
þeirra sem við
hönnum fyrir
hverju sinni,“ segir
Giovanni aðspurður
af hverju þeir félagar
kjósi að vinna saman.
Multipot er eitt
nýjasta hönnunara-
frek þeirra félaga og
hefur vakið gífurlega
athygli. Multipot er í
laginu eins og lokaður blómapott-
ur. Ofan á lokinu er pláss fyrir
smáhluti og á því miðju er milt
ljós sem falleg birta stafar af.
Undir lokinu er millistykki þar
sem hægt er að stinga snúru í
samband og þræða í gegnum lok-
ið til að tengja til dæmis við far-
síma sem liggur ofan á lokinu.
„Hugmyndin var að gera lampa
sem er meira en bara lampi,“ seg-
ir Giovanni. Hægt er að hafa allar
snúrur í pottinum en hann er
einnig hugsaður sem staður til að
geyma og hlaða farsímann og
stafrænu myndavélina og leggja
frá sér lyklana og annað lauslegt.
„Í Multipot mætist gömul hegðun,
eins og að leggja frá sér lyklana á
borð þegar maður kemur heim, og
ný þörf fyrir að hlaða farsíma og
myndavélar. Fólk reynir að fela
millistykkin sín en Multipot er
millistykki sem þú vilt sýna,“ seg-
ir Dante.
Þeir segjast alls ekki alltaf vita
fyrir fram hvort einhver hlutur
eigi eftir að slá í gegn. „Við vild-
um meira að segja nokkrum sinn-
um hætta við allt saman í ferlinu
með Multipot, en fyrirtækið lét
það ekki eftir okkur, sem betur
fer,“ segja þeir hlæjandi.
Ekki er
hjá því kom-
ist að ræða
aðeins um ís-
lenska hönnun,
en þeir sjá hér
mikla möguleika.
„ Va n d a m á l i ð
fyrir íslenska
hönnuði er að þeir
hafa engin fyrirtæki
til að vinna með og
verða þess vegna að
flytja úr landi. Og
þannig er það víðar.
Ítölsk hönnun þarf
ekki að þýða að hún sé
hönnuð af Ítölum,
heldur á Ítalíu. Hönn-
uðurnir sjálfir eru alls
staðar að úr heiminum,“ segir
Giovanni. Hann telur að hérlendis
séu möguleikarnir miklir og hrós-
ar íslenskri innanhússhönnun.
„Hérna er augljóslega hlúð að
innanhússhönnun, ólíkt því sem
gerist á Ítalíu,“ segir hann og
Dante bætir við að hérlendis væri
að sjálfsögðu möguleiki að stofna
hönnunarfyrirtæki og hanna fyrir
alþjóðamarkað.
kristineva@frettabladid.is
ATH: vinsamlegast takið
neðstu myndina þar sem sést í
snúrurnar í pottinum og notið
hana
Hrifust af íslenskri
innanhússhönnun
Giovanni Lauda og Dante Donegani, heimsfrægir hönnuðir sem sóttu Ísland heim.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Multipot sem þeir Lauda
og Donegani hönnuðu
saman.
Burkni.
Aspas.
Bergflétta.
Kyndilblóm.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A