Fréttablaðið - 22.09.2005, Page 64
Ólafur Gaukur Þórhallsson
hefur rekið gítarskóla í þrjá-
tíu ár. Hann hefur þó kennt á
gítar mun lengur enda
komst hann að því ungur að
þörfin væri mikil. „Hér var
ekki fáanleg nein gítar-
kennsla fyrir þá sem vildu
læra þetta á léttari nótum,“
segir Ólafur, sem sjálfur
lærði á klassískan gítar, sem
var það eina sem í boði var.
Kennsluaðferðirnar í
skóla Ólafs eru allsérstak-
ar. Til að mynda hefur Ólaf-
ur samið allt námsefnið fyr-
ir skólann. „Ég sem eitt-
hvað á hverju ári og bæti
alltaf við.“
Þó að töluverðar breyt-
ingar hafi orðið á þeim
þrjátíu árum sem liðin eru
frá stofnun skólans segir
Ólafur eitt óbreytt. „Breyt-
ingin á ánægjunni við að
spila er engin,“ segir Ólaf-
ur, sem telur að spila-
mennskan veiti bæði ung-
um og öldnum lífsfyllingu.
Sumrinu varði Ólafur að
stórum hluta í Bandaríkjun-
um því börnin hans tvö búa
þar. Ólafur bjó sjálfur í
Bandaríkjunum í sex ár á
sínum yngri árum. Þar
stundaði hann um tíma nám
í tónsmíðum og útsetningu
auk þess sem hann fór í
frægan gítarskóla í Holly-
wood þar sem honum var
meðal annars boðið
kennslustarf í lok annar.
Hann hafði þó engan áhuga
á að setjast að annars stað-
ar en á Íslandi.
Ólafur ferðaðist í sumar
meðal annars til San
Francisco og Las Vegas, þar
sem hann hélt upp á 75 ára
afmæli sitt. Hann ætlar þó
ekki að setjast í helgan
stein eins og svo margir á
hans aldri. „Ég veit ekki
hvað helgur steinn er. Ætlar
maður þá að hætta að lifa,
anda eða borða?“ spyr Ólaf-
ur, sem er það að spila á gít-
ar og kenna jafn eðlilegt og
að anda og ganga.
Tónlistin er eins og gef-
ur að skilja aðaláhugamál
Ólafs. „Þetta svið er svo
stórt að enginn maður
kemst yfir nema brot af því
þó hann pæli í því alla ævi,“
segir Ólafur, sem ætlar að
halda áfram að kenna um
ókomna tíð.
28 22. september 2005 FIMMTUDAGUR
ISAAC STERN (1920-2001)
lést þennan dag.
Semur námsefnið sjálfur
GÍTARSKÓLI ÓLAFS GAUKS ER 30 ÁRA:
„Til er meira af slæmum tónlistar-
mönnum en slæmri tónlist.“
Isaac Stern er af mörgum talinn einn
færasti fiðluleikari tuttugustu aldar.
timamot@frettabladid.is
TÓNLISTARMAÐUR „Þetta svið er svo stórt að enginn maður kemst yfir
nema brot af því þó hann pæli í því alla ævi,“ segir Ólafur Gaukur um að-
aláhugamál sitt, tónlistina.
Shaka Zulu, stofnandi Zulu-konungsríkisins í suðurhluta Afríku,
var þennan dag árið 1828 myrtur af tveimur hálfbræðrum sínum,
Dingane og Mhlangana. Ástæðan var talin vera geðveiki sem
Shaka átti við að stríða og stofnaði framtíð ættbálksins í hættu.
Þegar Shaka varð höfðingi Zulu-ættbálksins árið 1816 voru Zulu-
menn færri en fimmtán hundruð talsins. Shaka sýndi mikla hæfi-
leika til stríðsreksturs og hannaði meðal annars nýja tegund
spjóta sem voru auðveld í notkun og banvæn. Með nýjum vopn-
um og vel skipulögðum herdeildum lögðu Zulu-menn undir sig
nálæga ættbálka. Herför Zulu-manna kom miklu róti á héruðin
og mikill fjöldi fólks yfirgaf heimalönd sín og flutti sig um set.
Árið 1827 lést Nandi, móðir Shaka, og höfðinginn missti vitið.
Yfirbugaður af sorg lét hann drepa hundruð manna úr ættbálki
sínum og bannaði sáningu plantna og notkun mjólkur í eitt ár.
Hann sendi hermenn sína í langar herferðir og þegar þeir sneru
aftur dauðþreyttir sendi hann þá af stað á ný. Þetta var kornið
sem fyllti mælinn hjá valdaminni höfðingjum ættbálksins. Hálf-
bræður Shaka myrtu hann 22. september 1828 og Dingane,
annar bræðranna, varð konungur Zulu-manna í hans stað. SHAKA ZULU
ÞETTA GERÐIST > 22. SEPTEMBER 1828 MERKISATBURÐIR
1930 Fyrsta sæluhús Ferðafélags
Íslands er tekið í notkun.
Það er í Hvítárnesi á Kili.
1949 Rússar sprengja fyrstu
kjarnorkusprengju sína.
1955 Fyrsta einkarekna sjón-
varpsstöðin er sett í loftið í
Bretlandi og rýfur þar með
einokun BBC á markaði.
1957 Árbæjarsafn í Reykjavík er
opnað fyrir almenningi.
1975 Gerald Ford, forseti
Bandaríkjanna, sleppur
naumlega þegar honum
er sýnt banatilræði.
1980 Stríð brýst út milli Írak og
Íran.
1992 Fyrstu ólympíuleikum
þroskaheftra lýkur í
Madríd.
Shaka Zulu er myrtur
Tilkynningar um merkis-
atbur›i, stórafmæli, andlát
og jar›arfarir í smáleturs-
dálkinn hér a› ofan má
senda á netfangi›
timamot@frettabladid.is.
Augl‡singar á a› senda á
auglysingar@frettabladid.i
s e›a hringja í síma
550 5000.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Gunnar Gísli Þórðarson
Dalbraut 18, Reykjavík,
sem andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
föstudaginn 16. september, verður jarðsunginn frá
Háteigskirkju föstudaginn 23. september kl. 11.00.
Sigurður Snævar Gunnarsson Erla Pálmadóttir
Ingimar Þór Gunnarsson Þorgerður Steinsdóttir
Sveinn Óttar Gunnarsson Guðný Svavarsdóttir
Gísli Arnar Gunnarsson Halla Guðrún Jónsdóttir
Gunnur Rannveig Gunnarsdóttir Helgi Helgason
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, vinarhug og hlýju við
andlát og útför
Lilju Sigfinnsdóttur
Hjallabraut 33, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við Heimahjúkrun
Hafnarfjarðar, Hjúkrunarþjónustunni Karitas og
starfsfólki St. Jósepsspítala í Hafnarfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Guðmundur H. Pétursson Sigríður Sch. Guðbjörnsdóttir
Hrönn Pétursdóttir Óskar Pálsson
Hildur Pétursdóttir Steinþór Stefánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
www.steinsmidjan.is
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og
langafa,
Ólafs Ragnars Karlssonar
málarameistara, Núpalind 8, Kópavogi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki og læknum
á deild L-1, Landakotsspítala.
Hrefna Einarsdóttir
Einar Ólafsson Daiva Léliené
Stefanía María Ólafsdóttir Þórður Árnason
Sigríður Jóna Ólafsdóttir Pálmi Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og bróðir,
Kristján St. Fjeldsted
Skúlagötu 20, Reykjavík,
andaðist á líknardeild Landspítala, Landakoti,
föstudaginn 16. september.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
23. september kl. 11.00.
Sveinn Fjeldsted Ingibjörg Kristjánsdóttir
Sturla Fjeldsted Kristín Þórðardóttir
Stefán Fjeldsted Helga Gísladóttir
Sverrir Fjeldsted Christina Fjeldsted
Rúnar Fjeldsted Björk Sigurðardóttir
barnabörn, barnabarnabörn
og systkini.
!
! "##$
%
&
! 50 ára afmæli
Hinn 28. september verður
fimmtugur Hlífar Þorsteinsson
framkvæmdastjóri, Gilsbakka
10, Fjarðabyggð.
Hann og eiginkona hans Inga
Magnúsdóttir taka á móti gestum á
Rauða torginu Norðfirði laugardag-
inn 24. sept. frá klukkan 19.00.
Útför systur minnar og mágkonu,
Gróu Sólborgar Jónsdóttur
frá Stóra-Sandfelli,
fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 22.
september kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á líknarstofnanir.
Jóna Kristbjörg Jónsdóttir
Magnús Stefánsson
Móðir okkar og tengdamóðir,
Guðrún Einarsdóttir
Gilsstreymi, Lundarreykjadal,
verður jarðsungin frá Lundarkirkju laugardaginn
24. september klukkan 13.30.
Sesselja Hannesdóttir Helgi Hilmarsson
Helgi Hannesson Margrét Kristjánsdóttir
Torfi Hannesson
Einar Hannesson Sigríður Rafnsdóttir
Sigríður Hannesdóttir
Helga Hannesdóttir Einar Ole Pedersen
og fjölskyldur
ANDLÁT
Þórarinn Þorleifsson, Flúða-
bakka 2, Blönduósi, lést á Heil-
brigðisstofnuninni á Blönduósi
föstudaginn 16. september.
Laufey Guðbjörnsdóttir, Gilhaga
í Öxarfirði, lést á Heilbrigðisstofn-
un Þingeyinga laugardaginn 17.
september.
Þorsteinn Gunnar Guðmunds-
son, frá Króksstöðum, lést á
heimili sínu laugardaginn 17.
september.
Kristín Guðmundsdóttir, síðast
til heimilis á hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ, lést sunnudaginn 18.
september.
Vigfús Sigurðsson, frá Brúnum,
Hólavangi 3, Hellu, lést á Heil-
brigðisstofnun Suðurlands
sunnudaginn 18. september.
Unnur Gréta Ketilsdóttir andað-
ist á líknardeild Landspítala,
Kópavogi, mánudaginn 19. sept-
ember.
Þuríður Margrét Georgsdóttir
lést á Landspítala - háskóla-
sjúkrahúsi mánudaginn 19. sept-
ember.
JAR‹ARFARIR
13.00 Kristján S. Kristjánsson,
fyrrverandi fjárhagsáætlun-
arfulltrúi, Efstaleiti 10,
Reykjavík, verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju.
15.00 Gróa Sólborg Jónsdóttir,
frá Stóra-Sandfelli, verður
jarðsungin frá Fossvog-
skapellu.
AFMÆLI
Ragnar Bjarnason
stórsöngvari er
71 árs.
Meryl Streep leik-
kona er 56 ára.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R