Fréttablaðið - 22.09.2005, Page 82
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 4 og 6 í þrívídd
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 3.50 ÍSLENSKT TALSýnd kl. 8 og 10.20
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Sýnd í Lúxus kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
Sýnd kl. 3.45 B.i. 10 ára
★★★
-HJ. MBL
Harðasta löggan í bænum er í þann mund
að fá stórskrýtinn félaga!
Til að hafa stjórn á hrottum og
illmennum er sett á laggirnar sérstök
sveit sem kallar sig Night Watch!
Bandaríska auglýsingaeftirlitið
hefur bannað ofbeldisfulla
gagnvirka auglýsingu úr kvik-
myndinni Sin City sem hefur
hangið uppi á strætóskýlum þar
í landi undanfarið.
Myndin er bönnuð börnum
yngri en átján ára í Bandaríkj-
unum og ekki þótti við hæfi að
hafa auglýsingarnar fyrir aug-
um ungra krakka. Hingað til
hefur hver sem er getað ýtt á
takka og horft á brot úr mynd-
inni, þar sem slæmt orðbragð og
mikið ofbeldi hefur ráðið ríkj-
um. ■
SIN CITY Í Bandaríkjunum er kvikmyndin Sin City, með Bruce Willis í aðalhlutverki, bönn-
uð börnum yngri en átján ára.
Augl‡sing úr Sin City bönnu›
Nýjasta smáskífa Íslandsvin-
anna í hljómsveitinni Strokes,
Juice Box, hefur lekið á netið.
Lagið sem átti að vera fyrsta
smáskífa af komandi plötu sveit-
arinnar, First Impressions of
Earth, átti upphaflega ekki að
koma út fyrr en snemma á næsta
ári.
Aðdáendur sveitarinnar hafa
hins vegar byrjað að breiða lagið
út á netinu en lagið þykir frekar
ólíkt fyrri lögum sveitarinnar.
„Lagið gæti verið um gott ástar-
samband, hversdagslega vináttu
eða í rauninni hvað sem er,“
sagði Julian Casablancas nýlega
í viðtali við NME. „Þetta er eitt
af skemmtilegu lögunum. Það
átti fyrst að heita Draculas
Lunch en í lokin þá fannst mér
Juice Box hljóma betur.“ ■
Juice Box lekur á neti›
THE STROKES Nýjasta lagið þeirra, Juice Box, átti að koma út snemma á næsta ári en
hefur nú verið lekið á netið.
BAGGALÚTUR Köntrísveit Baggalúts heldur
tónleika á Grand rokki á föstudag. Sveitin
gaf nýverið út plötuna Pabbi þarf að vinna.
Rúnar Júl
leynigestur
Köntrísveit Baggalúts mun leika
og syngja á veitingastaðnum
Grand Rokki á föstudagskvöld.
Sérstakur leynigestur á tónleik-
unum verður rokkarinn Rúnar
Júlíusson, sem syngur einmitt í
laginu Pabbi þarf að vinna, á
fyrstu plötu sveitarinnar.
Platan nefnist Pabbi þarf að
vinna og hefur fengið góðar við-
tökur síðan hún kom út á dögun-
um. Dúettinn Sviðin jörð hitar upp
fyrir tónleikana, sem hefjast
klukkan 23.00. ■
Í gær var haldinn blaðamanna-
fundur í tilefni þess að heildar-
dagskrá Alþjóðlegu kvikmynda-
hátíðarinnar í Reykjavík var til-
búin. Hátíðin hefst 29. september
en yfir 50 myndir verða sýndar á
hátíðinni. Aðstandendur hátíðar-
innar vekja athygli á því að marg-
ar af þessum myndum verða ein-
ungis sýndar á hátíðinni.
Opnunarmynd hátíðarinnar
verður danska kvikmyndin
Adams æbler eftir Anders Thom-
as Jensen. Vonir standa til að leik-
stjórinn verði viðstaddur frum-
sýninguna en hann hefur ekki gef-
ið lokasvar. Fyrsta leikstjóraverk-
efnið hans, Blinkende lygter, naut
mikilla vinsælda hér á landi og
Adams æbler hefur fengið prýðis-
góða dóma. Jensen hefur einnig
getið sér gott orð sem handrita-
höfundur og skrifaði meðal ann-
ars handritið að Mifunes sidste
sang og I Kina spiser de hunde.
Hann hefur verið tilnefndur til
þriggja Óskarsverðlauna fyrir
stuttmyndir sínar.
Baltasar Kormákur kvik-
myndaleikstjóri þekkir leikstjór-
ann og segir hann vera mjög mik-
ilvægan fyrir danska kvikmynda-
gerð. „Hann er að gera öðruvísi
myndir en aðrir og hefur auk þess
skrifað mikið fyrir aðra leik-
stjóra. Hann nýtur mikilla vin-
sælda í Danmörku en það er alltaf
gott fyrir leikstjóra að halda teng-
ingu við áhorfendur sína,“ segir
Baltasar sem hafði þó ekki séð
nýju myndina. „Ég hef heyrt að
hann sé að gera nýja hluti í þess-
ari mynd, „ bætir hann við en þeir
tveir hafa rætt um hugsanlegt
samstarf, nú síðast á Toronto-há-
tíðinni. „Það er ekki komið á neitt
formlegt stig en yrði ákaflega
spennandi.“
Eins og áður hefur komið fram
verður íranski leikstjórinn Abbas
Kiarostami sérstakur heiðurs-
gestur og mynd hans, Vegirnir,
Evrópufrumsýnd. Þá vekur at-
hygli sérstakur mannréttinda-
flokkur en myndirnar í þann
flokk voru valdar af UNIFEM á
Íslandi auk Grétu Ólafsdóttur.
Dagana 4.-7. október verða síðan
fundir sem ætlaðir eru til að
vekja áhorfendur og almenning
til umhugsunar.
Sérstakir passar með myndum
af handhöfum verða seldir í til-
efni hátíðarinnar en þeir gefa
handhöfum greiðan aðgang að
kvikmyndasýningum. Passarnir
kosta 6.000 krónur og forsala á
þeim hefst í bókaversluninni Iðu
í Lækjargötu í dag.
freyrgigja@frettabladid.is
Dönsk vonarstjarna opnar hátí›ina
SÍMI 551 9000
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Sýnd kl. 6 ÍSLENSKT TAL
Deuce Bigalow b.i. 14 ára kl. 6 og 8
The Man kl. 6, 8 og 10
Land of the Dead b.i. 16 ára kl. 10
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
★★★★
-HJ. MBL
★★★★
-ÓÖH. DV
★★★★
KVIKMYNDIR.COM
Sýnd kl. 8 og 10.20 B.i. 10 ára
★★★
-HJ. MBL
Aldrei annað eins hefur sést í bíó
hérlendis áður!
Mynd sem slegið hefur í gegn!
Missið ekki af þessari!
Night Watch is F***ING COOL!
Quentin Tarantino
Til að hafa stjórn á hrottum
og illmennum er sett á
laggirnar sérstök sveit sem
kallar sig Night Watch!
Fyrsti hluti í epískum
fantasíu þríleik
Hið nýja andlit óttans
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
STARFSGRUNDVÖLLUR TRYGGÐUR Það voru þau Hermann Jónsson frá Landsbankan-
um, Hrönn Marínósdóttir frá kvikmyndahátíðinni og Skarphéðinn Berg Steinarsson frá Baugi
sem handsöluðu samninginn en hann tryggir starfsgrundvöll hátíðarinnar til þriggja ára.