Tíminn - 28.09.1975, Blaðsíða 1

Tíminn - 28.09.1975, Blaðsíða 1
SLONGUR BARKAR TENGI Landvélar hf 221. tbl. —Sunnudagur 28. september — 59. árgangur Kjördæmaskipan og kosningaskipulag stærstu vandamál nefndarinnar Fara Vestfirð- ingar í stríð við selina? Gsal-Reykjavik. — Aukning sela- stofna hefur i för með sér, að fiskur sem veiddur er á grunnmiðum, er undirlagöur af hringormi, og ber alimikið á hringormum i fiski á Vest- fjörðum, einkum yfir sumar- timann, þegar smábátarnir eru fiestirá veiðum.Talið er að hring ormar I innfjarðafiski hafi stór- lega aukizt eftir að selveiöar lögðust af á Vestfjörðum. Frá Noregi berast nú þær fréttir, að fiskimenn i Norður-Noregi heimti „strið” við selinn, vegnaagangs hans á beztu miðunum, og m.a. samþykkti ársþing sjómanna- félagsins i Brönnöy að krefjast þess að selastofninn verði minnkaður sem fyrst. um að minnka stofninn. — Selurinn hefur lagt undir sig stór svæði, sem hafa verið beztu netamiðin á vetrarvertiðinni og sjómennirnirhafa orðið að yfir- gefa svæðin, sagði Hans Patter- sen á áðurnefndu ársþingi. — Sel- urinn fer niður á 70-80 faðma dýpi, fer i netin, og eyðileggur fiskinn algjörlega. Einnig virkar þessi selafjöldi truflandi á hrygninguna. Það er liklega skýringin á þvi, að það var enginn fiskur á hinum vanalegu hrygningarsvæðum s.l. vetur og vor. Hinn aukni selastofn hefur lika haft það i för með sér, að fiskurinn, og þá sérstaklega þorskurinn, er undirlagður af hringormi. gébé Rvik — Stjórnarskrárnefnd er I miðju kafi og stefnir að þvi að hraða störfum, sagði Gunnar G. Schram prófessor og ráðunautur nefndarinnar i gær. Ekki kvaðst Gunnar geta spáð um hvenær nefndin skilaði áliti sinu tii Al- þingis. Eins og kunnugt er rann fresturinn út i febrúar á þessu ári til að skila áiitsgerðum og uppá- stungum, og hefur nefndin unnið að þvi að fara yfir þær breytingartillögur sem bárust, bæði frá samtökum og einstak- lingum. — Ljóst er að stærsta vandamálið er kjördæmaskipan og kosningaskipulag, sagði Gunn- ar, en starf nefndarinnar er af- skaplega viðamikiö. Meðal þeirra breytingatillaga sem borizt hafa, er ákvæði um jafnrétti kynjanna, sem borizt hafa frá mörgum kvennasam- böndum. Þá barst ályktun frá Sambandi islenzkra sveitarfélaga um að staða og sjálfstæði sveitar- félaga verði vel tryggt. En eins og Gunnar sagði, þá mun lang- stærsta vandamálið vera breytingar á kjördæmaskipan og kosningaskipulagi og mest vinn- an i sambandi við það. 1 stjórnarskrárnefnd eiga eftir- taldir menn sæti: Hannibal Valdemarsson formaður, Gunnar Thoroddsen varaformaður, Guð- mundur Benediktsson ráðu- neytisstjóri ritari, Ingólfur Jóns- son og Emil Jónsson fyrrv. ráð- herrar, Ragnar Arnalds, Sigurð- ur Gissurarson sýslumaður á Húsavik. Einn nefndarmanna lézt á árinu Jóhannes Eliasson, og hefur ekki enn verið tilnefndur maður I hans stað. Gunnar G. Schram er ráðunautur nefndar- innar eins og áður segir. Eftir að fresti til að skila álits- gerðum og uppástungum lauk i febrúar, hefur nefndin unnið að þvi að fara yfir breytingartillögur og rætt þær. Rætt hefur verið um einstaka greinar stjórnarskrár- innar og ræddar framkvæmdir annarra landa á svipuðum ákvæðum, sagði Gunnar. Hefur verið unnið úr tillögum þessum, auk eigin tillagna nefndarinnar. Siðasti fundur nefndarinnar var i júlilok og verður næsti fundur mjög f 1 jótlega. Eins og Gunnar G. Schram ságði að lokum: Þetta er afskaplega viðamikið starf, enda um að ræða grundvallarskipu- lagningu þjóðfélagsins. Nefndin er nú i miðju kafi og stefnir að þvi að hraða störfum. NEYTENDUR ÞURFA LÖGGJAFARVERND Guðbjörn Kristmannsson, verkstjóri ifiskiðjunni Freyju á Suðureyri við Súgandafjörð, kvað fiskinn, sem veiddur væri á grunnmiðum, mjög erfiðan til vinnslu, þar eð fiskurinn væri svo ormaður. Kvað hann það mjög bagalegt, þar sem fiskurinn bærist mjög nýr til lands, og væri þvi 1. flokks hráefni, ef engir hringormar væru i honum. Guðbjörn-nefndi að mikill timi færi I að hreinsa hringormana úr fiskinum, og sagði að það kostaði 1/3 lengri tima að vinna fisk með hringormum, en þann sem væri ormalaus. A ársþingi sjómannafeiagsins i Brönnöy i Noregi kom nýlega fram, að selastofninn á S-Helge- land hefði verið i stöðugum vexti siðustu ár, og væri nú stærri en nokkur sinni fyrr. Selurinn væri oröinn plága fyrir sjómennina sem orðið hefur að yfirgefa sum af sinum beztu miðum vegna ágangs þeirra. Að sögn blaðsins „Fiskeren” hefur Hafrannsóknastofnunin norska enn ekki tekið ákvörðun FB—Reykjavik. — A hverju ári er fluttur inn ótölulegur fjöldi heimilistækja, bila og alls kyns véla. sem _þurfa sitt viðhaid, þegar fram iiða stundir. En hérlendis er engin löggjöf, sem hægt er að beita, ef innflytjendur láta sér nægja að flytja inn vör- una, en veita siðan enga þá þjón- ustu, sem nauðsynleg kann að verða, þegar slit kemur fram. Innflytjendur geta átölulaust flutt inn hverja nýja vörutegund- ina á fætur annarri, en af þessu leiðir, að mjög erfitt getur reynzt að fá nauðsynlega viðgerðarþjón- ustu. Hjá hagstofunni fengum við t.d. þær upplýsingar, að á siöasta ári hefðu verið flutt inn 11.745 stykki kælitækja til heimilisnota frá 11 löndum. Tegundirnar hafa eflaust verið mörgum sinnum fleiri. Þvottavélar fluttar til landsins á sama tima voru 5034 frá 12 löndum. Söluverðmæti þessara tveggja vöruflokka út úr verzlun hér mun hafa verið um einn milljarður króna. Af þessu má sjá, að hér er um mikla fjármuni að ræða, og þvi nauðsynlegt, að viturlega sé að innflutningi staðið, og þjónusta við eigendur þessara dýru tækja sé sem bezt, svo ekki þurfti að leggja vélarnar til hliðar eftir ó- eölilega stutta notkun vegna skorts á varahlutum. Fjöldi innfluttra þvottavéla er mestur frá ttalíu eða 3565 árið 1974, en miklu færri vélar komu annars staöar frá. Td. varein vél flutt inn frá Grikklandi ein frá Belgiu og tvær frá Sviss og Noregi. Ef litið var á kælitækjalistann var einnig mest flutt frá Italiu, 5402, en minnst frá Tékkóslóvakiu, 20 stykki. I fljótu bragði gæti maður dreg- ið þær álvtkanir að bezt væri að eiga tæki af þeirri gerð sem mest er til af, en dæmi liðinna ára sýna þvi miður, að það er ekki einhlitt. Um það geta þeir borið, sem tóku þátt i þvi, sem kalla mætti Zanuzzi-ævintýrið, og stið hér i nokkur ár. Mörg _ þús. tæki, þvottavélar, isskápar, uppþvotta- vélar, og guð má vita hvað fleira, var flutt til landsins. Þetta voru ódýr og góð tæki, sem runnu út eins og heitar lummur. En svo rann upp sá dagurL að fyrirtækið, sem hafði haft umboðið fyrir þessi tæki lagði upp laupana af einhverjum fjölsk.ástæðum, að þvi er sagt var. Eftir stóðu eig- endur allra þessara ágætu tækja, sem vegna aldurs og notkunar fóru að þurfa á viðhaldi að halda. Enginn tók lengi vel að sér um- boðið, en Fálkinn, sem hefur umboð fyrir Hoover og þarf að fá varahluti i Hoover-vörur m.a. frá Zanuzzi hefur reynt sitt bezta, að panta einnig varahluti i Zanuzzi. Afgreiðslan frá Italiu gengur mjög treglega, að sögn og að undanförnu hefur liðið allt upp I 9 mánuði áður en varahluta- pantanir hafa borizt hingað. A meðan sitja menn uppi með ónothæf tæki, enda þótt bilunin geti verið smávægileg, og væri fljótviðgerð, ef nauðsynlegir varahlutir væru fyrir hendi. Björgvin Guðmundsson i við- skiptamálaráðuneytinu sagði, að þvi miður væri löggjöf hér ekki nægilega fullkomin til að veita neytendum þá vernd, sem þörf er á. Hann sagði að á Norðurlöndun- um hefði löggjöfin verið bætt mikið á þessu sviði. Hann sagði ennfremur, að búið væri hér að semja rammalöggjöf um þjón- ustustarfsemi, sem viðhaldið, sem hér hefur verið rætt um, gæti eflaust fallið undir, en ekki væri búið að ganga frá þessu sem lög- um frá Alþingi, og ekki væri vitað hvenær það gæti orðið. Timinn sneri sér ennfremur til Axels Einarssonar i Rafha, en þaö fyrirtæki hefur einmitt tekið að sér áðurnefnt Zanuzzi- umboð. Hann sagði, að Rafha sæi fyrst og fremst um viðhald á þeim tækjum, sem flutt hefðu verið inn á þess vegum þótt ef til vill væri hægt að panta varahluti i eldri tæki, ef fyrir lægi framleiðslu- númer og pöntunarnúmer á hin- um bilaða hluta. Annars sagði Axél, að aðalvandinn lægi i þvi hér á landi, hversu margvisleg heimilistæki væru flutt hingað til lands. Hann benti á, að á siðasta ári hefðu t.d. verið fluttar inn eldavelár frá 14 löndum, og gerð- irnar hefðu verið milli 20 og 25 talsins. A sama tima væru svo framleiddar Islenzkar vélar, sem hann sagði, aðhefðu fullkomlega staðizt samkeppnina, og viðgerð- arþjónustan væri fyrir hendi. En hver og einn vill fá að ráða þvi hvaða tegund hann velur, og af þvi leiðir glundroði i innflutningi og þjónustu. Svo að segja árlega er komið með ný módel af hverri tegund og varahlutaframleiðsla stendur heldur ekki lengi, kannski aðeins fimm ár, að sögn Axels. Þegar varahlutirnir eru gengnir til þurrðar, er ekki um annaðað ræða en leggja tækið til hliðar og kaupa nýtt. Þegar við þetta bætistsvo, að islenzk fyrir- tæki springa út eins og sumar- blóm og fölna jafnskjótt aftur, getur veriö erfitt um vik fyrir neytendur, sem eiga sér enga vernd i lögum landsins. Fimm Spánverjar drepnir Reuter—Madrid ' — Spánverj- amir fimm, sem voru ákærðir og fundnir sekir um að drepa lögreglumenn, voru skotnir I gærmorgun. Þrir voru skotnir i Madrid, einn i Burgos, og einn i Barcelona. Mennirnir fimm, voru fluttir i lokuðum lögreglu- bifreiðum til aftökustaðanna. t fyrrinótt voru mótmælaaðgerð- ir um alla Evrópu, einna mestar iLissabonn og Paris. Norðmenn og Hollendingar hafa sent sendiherra Spánar heim i mót- mælaskyni. Þó ekki fengist það staöfest, var talið að skærulið- arnir fimm hefðu verið skotnir, en ekki liflátnir með hinni ill- ræmdu garettu, sem er tæki, sem sett er á háls manna og þeir kyrktir smám saman. Ættingjar hinna dauðadæmdu fengu að koma til þeirra I fang- elsið stuttu áður en þeir voru leiddir fyrir aftökusveitirnar. Var mikil örvænting rikjandi meðal þeirra, og þá ekki sizt hjá Mótmælaaðgerðir um alla Evrópu eiginkonu Samches Bravo, sem var aðeinsrúmlega tvitugur, en kona hans, Silvia, er 22 ára og ófrisk að fyrsta barni þeirra. Um alla Evrópu voru mót- mælaaðgerðir i fullum gangi i fyrrinótt. I Lissabon rðust mót- mælendur inn i spænska sendi- ráðið og eyðilögðu allt sem þeir gátu fest hendur á, og i Paris voru rúður og byggingar spæsnkra aðila brotnar og skemmdar. Þúsundir manna um alla Evrópu héldu hávær mótmælafundi fyrir framan sendiráð Spánar og Spánverjar miskunnarlaust barðir sundur og saman. Fyrsta opinbera tilkynningin um að aftaka hefði farið fram, var frá Burgos, þar sem Angel Otaegui, 33ára,ogúr lýðveldis- her Baska, var skotinn til bana. Hinir voru Juan Paredes Mano, 21 árs, sem var skotinn i Barce- lona, Jose Baena Alonso, 22, Ramon Garcia Sanz, 27, og Jose Luis Sanches Bravo 21 árs. Hefur hann fundið réttu leiðina til að losna við peningalyktina? m------------► BAK

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.