Tíminn - 28.09.1975, Blaðsíða 23

Tíminn - 28.09.1975, Blaðsíða 23
TtMJNN Sunnudagur 28. september 1975 23 llliÍi.j iiMiii Jens Urup Jensen í Norræna húsinu Um þessar mundir stendur yfir sýning á verkum danska málarans Jens Urup Jensen i Norræna húsinu, en þessi sam- norræna stofnun hefur starfaö af óvenju mikiu fjöri á seinustu misserum. Verður mönnum æ Ijosari sú skelfilega einangrun er hér væri á myndlistasviðinu, ef hússins og hinnar norrænu samvinnu nyti ekki við. Jens Urup er fæddur árið 1920 óg býr i Danmörku ásamt konu sinni Guðrúnu Sigurðardóttur, sem er islenzk, systir Sigurðar Sigurðssonar, listmálara. Þau hjón eru þvi ekki ókunn á Islandi, en þau unnu m.a. saman að gerð tveggja gler- mynda á Sauðarkrókskirkju, en frúin er ættuð úr Skagafirði. í Miklabæjarkirkju er svo ein mynd af Torvaldsen eftir Jens Urup. Jens Urup er þekktur málari i heimalandi sinu en liklega er hann þó kunnastur fyrir skreyt- ingar sinar á fjölmörgum kirkj- um, dönskum og fyrir gler- myndir og vefnaðarmyndir i fræg dönsk farþegaskip frá Sameinaða, en félagið sigldi hingað lengi á Drottningunni og Krónprinsi Frederik, en á þetta er minnt hér, vegna þess aö þetta fræga útgerðarfélag fær aðeins útvöldum fagmönnum verkefni við sin skip. Jens Urup sýnir um það bil 50 verk á þessari sýningu, 30 oliu- málverk, en auk þess serigrafiur, þekjulit og upplim- ingar. Kirkjulist sina reynir Jens Urup að kynna okkur með ljós- myndum, frumreikningum og litskyggnum, sem varpað er á tjald. Auðvitað gefa slik gögn mjög takmarkaða mynd af þessum stórbrotnu listaverkum, hvort heldur um er að ræða góbelin, eða rúður úr lituðu gleri, en þær segja okkur þó tvennt, að hann nýtur trúnaðar samlanda sinna, sem fólu hon- um þessi verkefni og hitt að þarna er sjómaður listamaður á ferð. En vikjum nú ögn að myndun- um sjálfum. Þær spanna ellefu ára sögu, þær elztu eru frá árinu 1964, þær spegla sumar ýms vandræði i myndlist sjötta áratugsins, aðrar eru nýjar og ilma þekkilega af fernis og terpentinu. Jens Urup leikur af fingrum fram með mildum tónum, án alls skarkala og harpa hans er með mörgum strengjum. Sýning hans er ekki ein og ein mynd, eins og svo oft heldur renna þær saman i heild, ein- hverskonar kyrrlátt fjölelfi. Þarna eru engar verulega vondar myndir og engar áber- andi betri heldur, nema ef no 18 og no 28 gætu talizt vera i sér- flokki. Það sem einkum vekur athygli er að Jens Urup fer fram i að mála á þessum áratug. Hann er 55 ára og þvi reynsl- unni rikari. A þessum áratug losnar hann úr dapurlegum fangelsum harðlinumanna suður i Paris og verður frjáls, ekki aðeins i viðhorfum, heldur i úlnliðum og höndunum, en það er oft leiö til nýs skáldskapar i myndlist, að þvi er vinur minn Weissauer hefur tjáð mér. Það sama er upp á teningnum I silkiprenti þekjulitum og upp- limingum. Þessar myndir eru oft djarfari i litum en olian, en styrkleiki þeirra er þó eftir sem áður fólginn i hinum mildu formum. 1 sýningarskrá segir Ulf Gud- mundsen okkur að Jens Urup hafi byrjað myndlistarferil sinn sem naturahsti, sem siðan hafi smám saman þokazt yfir i abstrakt. Skrefið var stigið til fulls. Samt sem áður virðist myndlist Jens Urup ekki vera framandi og hún á að vera auðskilin hverjum sem er, þvi hún þjáist ekki af þvi sambands leysi við fólk, sem framandleg list gerir svo oft. Jens Urup er áhugaverður myndlistarmaöur, sem gaman væri að kynnast nánar. Það er þó ýmsum annmörkum háð. Helztu stórverk hans eru múruð i kirkjuveggi og altari i kirkjum og guðshúsum, og fara þvi ekki I löng ferðalög nema sem herfang i striði. Við þvi veröur ekki gert og við þökkum Jens Urup fyrir komuna, en ég ætla i Sauðárkrókskirkju i dag. Blönduósi 24. sept. Jónas Guðmundsson. Ráðstefna um hersetu BH-Reykjavik. — Boðað hefur verið til ráðstefnu um herstöðva- mál f félagsheimilinu Stapa i Njarðvik dagana 11. og 12. nk. Hún hefst laugardag 11. okt. kl. 12.30. Fundarboðendur eru 54 andstæðingar hersetu á Islandi. Fólki viðs vegar um land hefur þegar verið sent fundarboð, þar sem fram kemur það markmið ráðstefnunnar að ræða núverandi stöðu herstöðvamálsins, tengsl þess viö önnur sjálfstæðis- og utanrlkismál og leiðir til aö vinna gegn þvi að erlend herseta á Islandi verði varanleg. Ráðstefnan verður opin öllum þeim sem aðhyllast þetta markmið. Þeir*, sem hana vilja sitja, verða aö láta skrá sig til þátttöku áður en hún hefst eða i upphafi hennar og greiða 1500 króna ráðstefnugjald. Fjögur framsöguerindi verða flutt á ráöstefnunni. Gils Guðmundsson talar um hersetu á Islandi og baráttu gegn henni (sögulegt yfirlit). Magnús Torfi Ólafsson fjallar um hersetu á íslandi i ljósi nýrra viðhorfa á alþjóðavettvangi. Ólafur Ragnar Grimsson flytur erindi um áhrif hersetunnar á islenzkt atvinnu- og efnahagslif. Fjórða framsögu- erindið verður álit starfhóps, sem fyrir ráöstefnuna tekur til meðferðar efnið: hersetan og verkefnin framundan. Fjalað verður um framsögu- erindin i almennum umræðum og nefndum. Ariðandi er að væntanlegir þátttakendur láti skrá sig sem fyrst hjá einhverjum i undir- bUningsnefnd: Einari Braga i sima 19933, Eliasi Snæland Jónssyni i sima 12002 og 42612 Gils Guðmundssyni i sima 15225 eða Finni Torfa Hjörleifssyni i sima 40281. AUGLÝSIÐ í TÍAAANUM Útboð Tílboð óskast i að gera sökkia og botnplötu fyrir færeyskt sjómannaheimili i Reykja- vik Útboðsgagna má vitja hjá undirrituðum gegn 10 þús. kr. skilatryggingu. ARKITEKTASTOFAN S.F. Ormar Þór Guömundsson og örnólfur Hall Siðumúla 23 — Reykjavik. Ljósastilling Opið mánudaga — fimmtudaga kl. 17-21. Athugið ljósastillingu lýkur 31. október 1975. Geymið auglýsinguna. SVK Áhaldahúsi Kópavogs, Kársnesbraut 68. in %■- ^ T f.í'-A fr;: - s.P Skrifstofustarf Hjá lögreglustjóraembættinu i Reykjavik er starf skrifstofustúlku laust til umsóknar. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir, með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist embættinu fyrir 10. október n.k. Lögreglustjórinn i Reykjavík 23. september 1975. FORD BRÖNCO Til sölu Upplýsingar í síma 2-25-37 f dag milli kl. 13-15 og á morgun kl. 17-19. Fró Fjölbrauta- skólanum Breiðholti Fjölbrautaskólinn i Breiðholti verður settur laugardaginn 4. október kl. 14.00 i húsakynnum skólans við Austurberg. Nemendur mæti i skólann föstudaginn 3. október á timanum frá kl.9.00 til 16.00 til að staðfesta námsbrautir og til viðtals við kennara skólans og námsráðgjafa. Skólameistari. NÖTIÐ ÍAÐBESTA rafgeymar eru framleiddir með mikla endingu Nýtt og smekklegt útlit auk þekktra gæða HIiOSSH—< Skipholti 35 - Símar: 8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæöi • 8-13-52 skrifstofa — Æ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.