Tíminn - 28.09.1975, Blaðsíða 22
**' * \ \ *■ o
TIMINN
Sunnudagur 28. september 1976
UU Sunnudagur 28. september 1975
HEILSUGÆZLA
Slysavaröstofan: sjmi 81200,
eftir skiptiborBslokun 81212.
Sjúkrabifreið: Reykjavík og
Kópavogur, simi 11100,
HafnarfjörBur, simi 51100. i
Helgar- kvöld og næturþjón-
usta apóteka i Reykjavik vik-
una 26. sept. — 2. okt. Ingólfs
Apótek og Laugarnes-Apótek.
Það apotek sem fyrr
er tilgreint, annast eitt vörzl-
una á sunnudögum, helgidög-
um og almennum fridögum.
Sama apotek annast nætur-
vörzlu frá kl. 22 að kvöldi til kl.
9 að morgni virka daga, en til
kl. 10 á sunnudögum, helgi-
dögum og almennum fridög-
um. Athygli skal vakin á þvi,
að vaktavikanhefst á föstudegi
og að nú bætist Lyfjabúð
Breiðholts inn i kerfið i fyrsta
sinn, sem hefur þau áhrif, að
framvegis verða alltaf sömu
tvöapotekin um hverja vakta-
viku i reglulegri röð, sem
endurtekur sig alltaf óbreytt.
Kópavogs Apótek er opið öll
kvöld til kl. 7 nema laugar-
daga er opið kl. 9-12 og sunnu-
daga er lokað.
Hafnarfjörður — Garðahrepp-
ur.Nætur- og helgidagavarzla
upplýsingar lögregluvarðstof-
unni, simi 51166.
A laugardögum og helgidög-
um eru læknastofur lokaðar,
en læknir er til viðtals á
göngudeild Landspitala, simi
21230. ,
Upplýsingar um lækna- og'
lyf jabúðaþjónustu eru gefnar i
simsvara 18888.
LÖGREGLA OG
SLÖKKVILIÐ
Reykjavik: Lögreglan simi
11166, slökkviliö og sjúkrabif-
reið, simi 11100.
Kópavogur: Lögreglan simi
41200, slökkvilið og sjúkrabif-
reið, simi 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan,
simi 51166, slökkvilið simi
51100, sjúkrabifreiB, simi
51100.
Rafmagn: 1 Reykjavik og
Kþpavogi I sima 18230. 1
Hafnarfirði, simi 51336.
Bilanavakt borgarstofnana.
Simi 27311. Svarar alla virka
daga frá kl. 17 siðdegis til kl. 8
árdegis og á helgidögum* er
svarað allan sólarhringinn.
Tekið er við tilkynningum um
bilanir á veitukerfum borgar-
innarog I öðrum tilfellum sem
borgarbúar telja sig þurfa að
fá aðstoð borgarstofnanna.
Vaktmaður hjá Kópavogsbæ.
Bilanasimi 41575,. slmsvari.
Félagslíf
Frá Sambandi Dýravernd-
unarfélagi Isl.Beztu þakkir til
allra þeirra, sem unnu við
merkjasölu á „Degi dýranna”
bæði hér I Reykjavik og úti á
landi. Ennfremur kærar
þakkir til eftirtalinna gef-
enda: Ernu Hreinsdóttur,
Grundarlandi 1. Rvk. kr.
10.000. Björgu Hreinsdóttur,
Norðurbraut 23b gaf sölulaun
250 kr. N.N. á Brávallagötu
100. Stjórn S.D.l.
Ljósmæðra félag islands.
Félagsfundur verður mánu-
daginn 29. sept. n.k. kl. 20.30,
að Hallveigarstöðum.
Fundarefni: Félagsmál,
kynnt drög að nýrri kröfugerð.
Erindi dr. Gunnlaugur
Snædal. Mætið vel. Stjórnin.
Kvenfélag Laugarnessóknar:
boðar fyrsta fund vetrarins
mánudaginn6. okt. ifundarsal
kirkjunnar kl. 8.30. Sagt verð-
ur frá ferðinni vestur á
Bolungarvik. Sýndar skugga-
myndir. Einnig verða sýndar
niyndir frá listvefnaðarnám-
skeiðinu. — Stjórnin.
Kirkjufélag Digranespresta-
kalls, heldur fund mánu-
daginn 29. sept. kl. 20.30 i sal
Félagsmálastofnunar aB Alf-
hólsvegi 32. Kristján GuB-
mundsson félagsmálastjóri
talar. Rætt um fjáröflun og
önnur mál. Nýrra félaga
vænzt.
Áfmæli
Guðmundur Pálsson fyrrv.
verzlunarmaður Hraunbraut
37, Kópavogi er 75 ára i dag,
sunnudaginn 28. sept. Guð-
mundur tekur á móti gestum i
kvöld milli kl. 20 og 22 að
Freyjugötu 27.
80 ára er á þriðjudaginn 30.
sept., Guðbjörg Árnadóttir frá
Hurðarbaki. Hún tekur á móti
gestum i Félagsheimili Raf-
veitunnar við Elliðaár frá kl.
4—9 s.d.
s
Tilkynning
Hvað þarf að gera við bif-
reiðina fyrir veturinn?
Leiðbeiningar til ökumanna
frá FIB.
1. Yfirfarið kveikju og raf-
kerfi, stillið kveikjutima og
blöndung. Ath. hvort viftu-
reim sé rétt strekkt og
ósprungin.
2. Ath. hve mikið frost kæli-
vatnið þolir. (ÞaB fæst mælt
á bensinstöðvum).
3. Ath. og látiö stilla ljós fyrir
31. okt.
4. Ath. aö rúöuþurrkur séu I
lagi.
5. Ef bremsur taka ójafnt I,
getur bifreiBin veriö stór-
hættuleg i hálku, látiö þvi
stilla bremsurnar.
6. TakiB tillit til náungans og
hafið aurhlifar i lagi.
7. Ath. að frá 15. okt. til 1. mai
er heimilt aB nota neglda
hjólbaröa. (Skulu þeir þá
vera á öllum hjólum).
F.l.B. Armúla 27. R. S: 33614.
Félagsstarf eldri borgara.
Norðurbrún 1 verður á mánu-
daginn kl. 13. Meðal annars,
handavinna og leirmunagerð.
Þriðjudag, teiknun, málun,
smiðaföndur, enskukennsla og
félagsvist.
Kvenfélag Assóknar. Fyrir
aldraða, fótsnyrting hafin að
Norðurbrún 1. Upplýsingar
gefur Sigrún Þorsteinsdóttir i
sima 36238.
i.
Fótsnyrting fyrir aldrað fólk.
i Mosfellssveit. Kvenfélag
Lágafellssóknar verður með
fótsnyrtingu fyrir aldrað fólk
að Brúarlandi. Timapantanir i
sima 66218. Salome frá kl. 9-4,
mánudaga—föstudaga.
Frá tþróttafélagi fatlaðra i
Reykjavik: Vegna timabund-
ins húsnæðisleysis falla æfing-
ar niður um óákveðinn tima.
Bréf verða send út er æfingar
hefjast aftur. — Stjórnin.
Fundartimar A.A.
Fundartimi A.A. deiUanna i
Reykjavik er sem hér segir:
Tjarnargata 3 C, mánudaga,
þriðjudaga, miðvikudaga,
fimmtudaga og föstudaga kl. 9
e.h. öll kvöldin.
Simavaktir hjá
ALA-NON
ABstandendum drykkjufólks
skal bent á simavaktir á
mánudögum kl. 15-16 og
fimmtudögum kl. 17-18 simi
19282 I Traðarkotssundi 6.
Fundir eru haldnir i Safnaðar-
heimili Langholtssafnaðar
alla laugardaga kl. 2.
Ritsmíð um at-
vinnulýðræði
komin út hjá
Stjórnunar- |
félagi íslands
Nýlega kom út á vegum Stjóm-
unarfélags Islands ritgerð Ingólfs
Hjartarsonar lögfræðings, sem
hann nefnir „ATVINNULÝÐ-
RÆÐI, tilraun til skilgreiningar”.
RitgerBin, sem er 104 blaösiöur I
Sklmisbroti, skiptist I 6 kafla. I
fyrsta kaflanum er fjallað um
skilgreiningu hugtakanna lýðræði
og atvinnulýðræði. Annar kaflinn
fjallar um fyrirtæki og starfsemi
þeirra og I þriðja kaflanum er
greint frá mismunandi stjórn-
unarkenningum. 1 fjórða kaflan-
um er lýst þróun atvinnulýðræðis
i Noregi, Danmörku, Vestur-
Þýzkalandi og Júgóslaviu.
Fimmti kaflinn greinir frá rann-
sóknum og athugunum, sem
gerðar hafa verið á þessu sviði.
Sjötta kaflann nefnir höfundurinn)
Markmið og leiðir, en þar segir
hann m.a. frá hugmyndum, sem
búa að baki þátttöku starfsfólks i
stjórnun fyrirtækja, hvert sé
markmiðið og hvaða leiðir séu
farnar i þeim efnum. Aftast i bók-
inni er itarleg heimildarskrá.
Undanfarin ár hafa talsverðar
umræður átt sér stað um atvinnu-
lýðræði hér á landi. Málið hefur
verið til skoðunar hjá aðilum
vinnumarkaðarins og félags-
málaráðuneytinu og á ’ Alþingi
hafa verið lagðar fram tillögur
um þátttpku starfsfólks i stjórnun
fyrirtækja og stofnana. Ritgerð
Ingólfs Hjartarsonar er itarleg og
hlutlæg greinargerð um atvinnu-
lýðræði og þróun þess erlendis.
Hún er þvi tvimælalaust kærkom-
ið framlag i umræður um þetta
markverða málefni hérlendis.
FHK opnar
skrlfstofu
Aöalfundur Félags háskóla-
menntaðra kennara 1975 var
haldinn 20. sept. s.l. Kosið var I
stjórn og nefndir.
Stjóm félagsins skipa: Arn-
grimur Sigurðsson, formaður,
Arni Magnússon, Elin G. Jóns-
dóttir, Sigurður H. Benjamins-
son, Sig"urður Hjartarson. 1 vara-
stjóm eru Kristján Thorlacius og
Asthildur Erlingsdóttir. I launa-
málanefnd eru: Franz A. Gisla-
son, formaður, Aðalsteinn Eiriks-
son, og Bogi Ingimarsson.
Vegna sivaxandi starfsemi
félagsins hefur verið ákveðið að
hafa opna skrifstofu i Félags-
stofnun stúdenta við Hringbraut
og er skrifstofan opin á fimmtu-
dögum kl. 17 — 19 s. 21173.
Roxy-kvöld
í Tónabæ
Gsal-Reykjavik — Demant
h.f. efnir til . Roxy-kvölds i
Tónabæ á sunnudagskvöld,
en þar mun Ice-field og
Company koma fram, en Ice-
field sjálfur er söngvari
hljómsveitarinnar. Hljóð-
færaleikararnir em allir vel
þekktir, Tómas Tómasson úr
Change leikur á bassa,
Nikulás Róbertsson úr Dögg
leikur á hljómborðshljóð-
færi, Sigurður Karlsson úr
Change leikur á trommur og
félagi hans Birgir Hrafnsson
mun leika á gitar.
Auk Ice-fields og Co. munu
þeir félagar Magnús og
Jóhann skemmta, —og þeim
til aðstoðar verður Magnús
Kjartansson úr Júdas. ,
AUGLYSIÐ
í TÍAAANUAA
2041
Lárétt
1) A ný,- 6) Litarlaus,- 8)
Fugl.- 9) Gljúfur.- 10) Græn-
meti.- 11) Avana,- 12) Fljót.-
13) Elska,- 15) Egg.-
Lóðrétt
2) Yfirhafnir.- 3) Drykkur,- 4)
Táning.- 5) Lélega.- 7) Stara,-
14) Númer,- •
Ráðning á gátu No. 2040.
Lárétt
1) Öskur,- 6) Kál.- 8) Sjó.- 10)
Lof.- 12) Jó,- 13) Fa,- 14) All,-
16) Inn,- 17) Ýki,- 19) Agnið.-
Lóðrétt
2) Skó,- 3) Ká,- 4) Ull,- 5)
Ásjár,- 7) Ofani,- 9) JóL- 11)
Ofn,- 15) Lýg,- 16) III,- 18)
KN,-
W
• i é
■ . m m
" - 1 r _
■/) IV 1 : -±
SCANDIAOVNEN 8
Lyngbyovnen
OFNAR
af öllum stærðum, frá SK 15 á ca. 66.000
kr. og MK 70 á ca. 217.580.
Hæfilegir skólaofnar eru t.d. SK 90 á ca.
293.700 kr.
Auk margra stærri gerða, allt upp i stóra
iðju-ofna, sem kosta 4-5 millj. kr.
SKÓLAVÖRUBÚÐIN
sér um útvegun ofnanna.
habo —um boðs- og heildverzlun, simi 2-65:50, Bauganesi
28, Reykjavik.
Saumakonur óskast
nú þegar eða um miðjan október.
Unnið eftir bónuskerfi.
VERKSMIÐJAN MAX H.F.
Skúlagata 51 — Simi 1-15-20
Til sölu
3ja fermetra miðstöðvarketill með öllu.
Upplýsingar i sima 3-54-15.