Tíminn - 28.09.1975, Blaðsíða 5

Tíminn - 28.09.1975, Blaðsíða 5
Sunnudagur 28. september 1975 TÍMINN 5 FANGELSISVIST FYRIR SMYGL Á GETNAÐARVÖRNUMI Skammt frá borginni Kalinin i Sovétrikjunum er snákagarður einn mikill. Hann litur ekki út fyrir að vera hættulegur, að minnsta kosti ekki I augum þeirra, sem ekki þekkja til. En þvi er þó þannigvarið, að i þess- um snákagarði eru stórhættuleg dýr i búrunum sinum, sem útbúin eru á sem nákvæmastan hátt, sem eftirliking að hinum raun- verulegu heimkynnum snákanna. Snákarnir sem þarna eru, eru m.a. upprunnir i mið-Sovétrikj- unum, og eitrið úr þeim er sér- lega dýrmætt, þvi það er notað i margvislegustu lyfjagerð, þótt undarlegt megi virðast. Snáka- eitrið er notað i lyf, sem beitt er við alls konar taugasjúkdóma og liðasjúkdóma , og einnig til þess að lækna vöðvabólgur og fleira álika. Það er þvi ekki nein ★ tilviljun,að snákur, sem haldið er yfir skál, sé aldagamalt tákn lyfjafræðinnar. t snákagarði þeim, sem hér ræðir, eru aöeins framleidd um 500 grömm af þurru eitrinu, en þetta er þó svo dýrmætt, að ekki er hægt aö gera sér grein fyrir þvi, þegar litið er á þyngd eitursins eina. Litli drengurinn, sem hér heldur á einni eiturslöngunni heitir Boris Gindin. Hann er sonur eins af starfsmönnunum snákagarðs - ins og hefur mikinn áhuga á að feta i fótspor föður sins i framtið- inni, og ekki er óliklegt, að ósk hans eigi eftir að rætast, þvi að hann fer kunnáttumannshöndum um slönguna, eftir þvi sem bezt verður seð. Á hinni myndinni er svo iðandi snákabreiða. Þriðja myndin er af merki lyfsalans, eins og það hefur verið um alda- raðir. ★ ipu. Stjórnin greiðir hverri giftri konu 75 dollara á mánuði I kaup, og þegar hún eignast sitt fyrsta barn fær hún 60 dollara i viðbót á mánaðarkaup sitt. Við annað barn hækka laun hennar um 45 dollara á mánuði, og við hið þriðja um 35 dollara á mánuði. Boðskapur stjórnarinnr er sem sagt: Fleiri börn! — Og vei þeim, sem leyfir sér aö upplýsa konurnar um getnaðarvarnir, eöa kenna þeim að nota þær. Eins og áður getur er innflutn- ingur getnaðarvarna stranglega bannaður, og ströng refsiákvæði um smygl á þeim. Dýrmæt grömm af sndkaeitri Sérhver sá, sem væri gripinn i Saudi-Arabiu fyrir að flytja inn i landiö getnaðarvarnir, yrði um- sv'ifalaust dæmdur i minnst sex mánaða fangelsisvist. — Þannig segir i nýjum lögum, sem sett voru fyrir stuttu I Saudi-Arabiu. Þar I landi — þvert á móti þvi sem er I nálægum löndum þar um slóðir. — hvetja stjórnvöld fólk til barneigna. Ástæöan er sú, að Saudi Arabia hefur aðeins 4 milljónir ibúa, en er stórt og rikt land, svo að sérfræðingar stjórnarinnar segja, að skortur sé á mannafla sem til þarf, svo aö hægt sé að gera ýmsar nauð- synlegar framkvæmdir I land- Fallegasti knapi Þýzkalands Hin 29ára gamla Susanne Santes- son er sögð vera fallegasti knap- inn i öllu Þýzkalandi, og ef til vill þótt viðar væri leitað. Hún er einnig sérlega miklum hæfileik- um gædd til þess að annast um og temja hesta, að þvi er allir segja. Hún hefur tekið þátt i ótalmörg- um kappreiðum, og staðið sig með mestu prýði. Annars ætti engum að þykja merkilegt, að kona geti setið hest skammlaust, þótt frægir hestamenn hafi látið hafa eftir sér ummæli eins og: Sumir hestar eru svo góðir, að þeir geta komizt i úrslit og unniö, jafnvel þótt kona sitji i hnakkn- um. En Susanne lætur engin slik ummæli á sig fá, hún hefur sýnt það, að hún er eins fær sem knapi og hvaða karlmaður sem er.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.