Tíminn - 28.09.1975, Blaðsíða 2

Tíminn - 28.09.1975, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Sunnudagur 28. september 1975 RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður LANDSPÍTALINN: DEILDARHJtJKRUNARKONA, HJCKRUNARKONUR, SJCKRALIÐAR óskast til starfa á nýja sjúkradeild Landspitalans fyrir framhaldsdvalarsjúklinga á Hátúni 10. Deildin mun væntanlega taka til starfa i október n.k. Umsóknum ber að skila til skrifstofu rikis- spitalanna fyrir 15. október n.k. Upplýsingar veitir forstöðukonan, simi 24160. DEILDARHJOKRUNARKONA óskast á nýja vökudeild kven- lækningadeildar Landspitalans. Umsóknum ber að skila til skrif- stofu rikisspitalanna fyrir 15. okt. n.k. Nánari upplýsingar veitir for- stöðukonan, simi 24060. VÍFILSSTAÐ ASPÍTALI: SJúKRALIÐAR óskast til starfa nú þegar eða eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir forstöðukonan, simi 42800. LANDSPÍTALINN: FÓSTRA óskast til starfa á Geðdeild Barnaspitala Hringsins nú þegar eða eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir yfirhjúkrunar- kona Geðdeildarinnar, simi 84611 milli kl. 12 og 14 næstu daga. SKRIFSTOFA RlKISSPÍTALANNA EIRIKSGÖTU 5.SÍM111765 Auglýsitf i Timanum Nýja slldarbræöslan á NeskaupstaO þýtur nú upp, og þakift verður sett á I næstu viku. Til hægri er svartollutankur, súlurnar, sem halda eiga þakinu uppi sjást greinilega, svo og þau tæki, sem þegar erbúiðaftkoma fyrir. Vilhjálmur Guðmundsson tók myndina nýlega. FRAMKVÆMDIR VIÐ NÝJU BRÆÐSLUNA Á NESKAUP- STAÐ í FULLUM GANGI bébé-Rvík — Bygging nýju síldar- bræösiunnar á Neskaupsstað gengur mjög vel, og sagði Ólafur Gunnarsson framkvæmdarstjóri i gær, að búizt væri vift aft byrjaft yrfti að sctja þakiö á i næstu viku. Ilúsift er byggt úr strengja- steypubitum og einingum og súlurnar, sem halda þakinu uppi, cru tilbúnar. Þakið sjálft er úr stengjasteypuplötum. Hráefnistankar sem eru við gömlu bræðsluna, verða senni- lega fluttir i næstu viku á nýja staðinn. Ólafur sagði, að vonast væri til að bræðslan yrði tilbuin til notkunar fyrir næstu loðnuvertið, en það færi algjörlega eftir veðri. Á meðfylgjandi mynd, sem Vilhjálmur Guðmundsson tók ný- lega, sést svartoliutankur til hægri, súlurnar, sem halda eiga þakinu uppi, eru sýnilegar fyrir framan tækin, sem þegar er búið að koma fyrir i bræðslunni, en það eru þurrkarar, pressur, sjóðarar og katlar. Þá er einnig verið að byggja tvo þrjú þúsund tonna lýsisgeyma vift verksmiðjuna, sagði Ólafur Gunnarsson. Norræn róðstefna um gerð og starfrækslu íþróttamannvirkja NÝLOKIÐ er að Hótel Loftleiðum norrænni ráðstefnu um gerð og starfrækslu iþróttamannvirkja. Var þetta sú niunda i röðinni sinn- ar tegundar. Þeir, sem sækja slikar ráðstefnur, eru frá iþrótta- nefndum eða iþróttamáladeildum innan ráðuneyta, iþrótta- og úti- vistardeildum sambanda sveita- stjórna og nefndum innan i'þrótta- sambanda, sem annast leiðbein ingar um gerð iþróttamann- virkja. Frá Danmörku komu 4, Finn- landi 1, Noregi 4 og Sviþjóð 4. Af íslands hálfu sátu fundinn fulltrú- ar frá menntamálaráðuneytinu, Iþróttanefnd rikisins, tþrótta- kennaraskóla tslands, tþrótta- sambandi tslands, Ungmennafé- lagi íslands, Sambandi Isl. sveitarfélaga, iþróttaráðum Reykjavikur og Akureyrar. Til ráðstefnu þessarar bauð menntamálaráðuneytið en undir- búning annaðist iþróttanefnd rik- isins og iþróttafulltrúi rikisins. Menntamálaráðherra Vilhjálmur Hjálmarsson setti ráðstefnuna og fól Þorsteini Einarssyni að stjóma henni. Erindi á ráðstefnunni fluttu: Stefán Kristjánsson, fþróttafull- trúi Reykjavikur, um íþrótta- mannvirki i Reykjavik, notkun þeirra og þróun iþróttamála borgarinnar. Guðmundur Halldórsson, verkfræðingur, um hitun og hreinsun sundlaugar- vatns. Gunnar Björnsson, efna- verkfræðingur, um notkun bróms til dauðhreinsunar sundlaugar- vatns. Sænskur verkfræðingur, Tor- sten Wikenstahl gerði grein fyrir framförum i notkun gerviefna i gólf Iþróttahúsa og á brautir og velli iþróttaleikvanga. Forstöðu- maður skrifstofu iþrótta- og æskulýðsmála menntamálaráðu- neytis Noregs Magnús Nilsen, flutti erindi um árangur þann og niðurstöður sem fengizt hafa i Noregi af rannsóknum um stöðu Iþrótta i norsku þjóöfélagi. Full- trúar hinna Norðurlandanna skýrðu frá hliðstæðum athugun- um innan sinna þjóða. Torsten Sundström, borgar- stjóri i Stokkhólmi, hafði fram- sögu um tengsl Norðurlanda á sviði starfrækslu og gerðar Iþróttamannvirkja við alþjóðleg- ar stofnanir um þau mál og áhrif sáttmála Evrópuráðsins ujm al- mannaíþróttir á slikar fram- kvæmdir. Norskur verkfræðingur Egil Aderesen skýrði frá reynslu Norðmanna af að breiða plastá- breiður yfir grasvelli án þess að grassvörður njóti upphitunar frá hitaleiðslum. Margar gagnkvæmar upplýs- ingar voru veittar um ýmsa þætti I gerð iþróttamannvirkja. Þá voru rædd áhrif sáttmála Evrópuráðsins um almanna- Iþróttir á framkvæmdir þjóðanna að gerð iþróttamannvirkja. Einn- ig afstöðu Norðurlanda til vænt- anlegrar iþróttamálanefndar Evrópuráðsins og upplýsinga- stofnunar hennar i Brussel. Vegna lausnar á ýmsum framtið- arverkefnum þessa norræna samstarfs um gerð og starfrækslu Iþróttamannvirkja, samþykkti ráðstefnan eftirfarandi yfirlýs- ingu. „Ráðstefnan leggur áherzlu á gildi sáttmála Evrópu um al- mannaiþróttir, sem ráðherrar aðildarþjóða Evrópuráðsins, sem annast iþróttamál samþykktu i marz 1975 i Brússel. Nái sáttmáli þessiað verða samþykktur af við- komandi stjórnvöldum Evrópu- ráðsins i framhaldi af samþykkt ráðherrafundarins, hvetur hann aðildarrikin til þess að virða meginreglur sáttmálans að iþróttamálefnum og mun þvi hafa mikil áhrif á framgang iþrótta- mála aðildarrikjanna. Ennfrem- ur lýsir ráðstefnan yfir þvi hvað viðkemur hinni norrænu sam- vinnu, að hún verði að tengjast störfum Norðurlandaráðs þannig að samvipna á sviði iþrótta verði eins eðlileg og önnur samvinna á sviði menningarmála eða ann- arra þátta samvinnunnar. Þaðer álit ráðstefnunnar, að innan hverrar þjóðar sé samvinnan i höndum nefnda, sem myndaðar eru af þeim opinberu aðilum sem eiga og hafa ábyrgð á starfrækslu Iþróttamannvirkja og þeim rikis- stjórnarlegu aðilum sem annast fjármálalegan stuðning við iþróttamálefni og einnig annarra stjómvaldslegra stofnana, sem við kemur framvindu þessara mála. Ráðstefnan lætur i ljósi þá ósk, að mörkuð verði stefna að fastri samvinnu og hún lögð fram á næstu ráðstefnu 1976. 1 sambandi við ráðstefnuna voru farnar skoðunarferðir um Reykjavik og nágrenni. Danir tóku að sér að annast næstu ráð- stefnu. Rafsuðu TÆKI fyrir SUÐUVÍR nýkomin.— Innbyggt öryggi handhæg fyrir yfirhitun. Rafsuðu- oa aJö,. hjálmar og tangir nýkomið. a y ARAAULA 7 - SIMI 84450

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.