Tíminn - 28.09.1975, Blaðsíða 30
úrslit
AAqrley fyrsti
kóngur reaoae-
tónlistarinnar
— Stjórnmál og kirkjurnar,
segir Marley, eru i rauninni
svipuð fyrirbæri. Hvort tveggja
bisa við að halda aimenningi fá-
fróðum, — og Jah mun ekki
koma og segja: Ég er Guð og þú
skalt tilbiðja mig.
— Þessir gæar sem þykjast
vera prestar eru faiskir — þú
heyrir engan prest segja, að
Guð muni birtast fyrir árið 2000
— en hvers vegna heyrir þú það
ekki i kirkjunum ef það stendur
skýrum stöfum i Bibliunni.
— Það eina, sem þessir prest-
ar tönglast á, segir Marley, er
um dauðann — þeir segja, að þú
deyir og farir þá til himnaríkis
eftir allar þjáningarnar. Sé
maður veikur skal maður fara
til iæknis. — Nei, dauðinn er
ekkert, það stórkostlegasta er
lifið sjálft, — að lifa.
Marley skýrir frá þvi, að Jah
birtist honum i sýn, og hann
segir að Jah virðist Htið eitt
eldri en hann sjáifur (Marley er
30 ára) — Það er svo indælt að
sjá þessa sýn, segir Marley, —
Jah er eins og bróðir minn, faðir
minn, móðir min, skapari ininn,
allt...
Rastamenn eru uppreisnar-
menn i Jamaica og stjórnvöid
hafa átt i erfiðleikum með að
hemja þá, og oft hefur kastazt i
kekki milli þeirra. Nýlega sagði
Dudley Thompson, utanríkis-
ráðherra Jamaica: — Við litum
ekki á Rastana sem vandamál
lengur, aðeins sem stundar-
fyrirbrigði.
— Það sem eitt sinn var
menning Rasta, er nú orðin
menning Jamaica, segja Rast-
ar.
Sagt er að Bob Marley sé eins
konar leiðtogi æskunnar á
Jamaica. Heiðarleiki hans i tón-
Iistinni hafi gert hann að þjóðar-
dýrlingi ungs fólks á Jamaica,
og hann er nefndur um leiö og
hugmyndafræðingur Rasta,
Augustus Pablo. Bob Marley er
að þvi leyti ólikur öðrum
Reggae-tónlistarmönnum frá
Jamaica, að hann byggir mjög á
gömlum grunni, en hefur ekki
fjarlægzt „rætur sinar” eins og
aðrir reggae-tóniistarmenn,
sem hafa gert það til þess eins
að verða „commercial”.
Marley var inntur eftir þvi á
blaðamannafundi hvort hann
legði meiri áherzlu á textana
eða lögin.— Stundum tónlistina,
sagði hann. En ljóðin eru mjög
mikils virði, — en auðvitað er
tónlistin og textarnir saman það
sem' skiptir höfuðmáli.
Marley var spurður um það,
hvers vegna hljómsveitin væri
með „utanaðkomandi mann” á
sinum snærum (gítarleikarann
bandariska). Marley virtist
nokkuð reiður yfir spurningunni
og sagði: — Við flokkum menn
ekki eftir hugtökum. Hann
sannaði fyrir mér að hann er
enginn „utanaðkomandi”.
— Ég sé ekki reggae-tónlist-
ina fyrir mér eins og einhvers
konar twist. Fyrir mér er
reggae-tónlist bara tónlist. Þeg-
ar fólk nefnir orðið reggae býst
það við sérstakri gerð af tónlist,
en hins vegar hvað sjálfan mig
snertir, er ég bara að lcika tón-
list. Ég vil ekki gefa tónlistinni
sérstök nöfn.
Að lokum má nefna, að Mar-
ley var spurður, hvort lög hans
hefðu skilaboð til hvitra manna
eða bara svartra. — Lög mín
hafa aðeins skilaboð til rétt-
látra, hvort sem þcir eru hvitir
eða...
Sem dæmi um þá hriíningu,
sem tónlist Wailers hefur vakiö,
má ncfna, að fyrir nokkru birti
blað nokkurt i Bretlandi dóma
um nýjustu ,2ja laga plötu
þeirra, „No Women No Cry” og
i stað þess að segja að þessi og
þessi plata sé bezta 2ja laga
plata vikunnar, — sögðu þeir i
dómum um Wailers plötuna:
Bezta 2ja laga plata ársins.
ItMINN
Sunnudagur 28. september 1975
o o
Skoðanakönnunin: 10 spurningar í ágúst
BOB AAARLEY OG WAILERS
leggja heiminn
að fótum sér
Endrum og eins gerast tiðindi i
popptónlistinni (sem svo er
nefnd) sem vekja meiri athygli
en önnur, — miklu meiri athygli
en önnur. „Ég bara vilja lifa,
skilurðu” er fyrirsögn greinar i
brezku tónlistarblaði, og þessi
barnalega framsettu orð eru
höfð cftir Bob nokkrum Marley.
Þcssi Bob Marley og hljómsveit
hans Wailers er nú það scm
kaliað er i útlandinu, að vera
SCPERSTAR. Fyrir nokkrum
mánuðum voru þeir það ekki.
— Bob Marley er fyrsta stór-
stirni reggae-tónlistarinnar,
segja blöðin og viðhafa stór orð
um tvenna hljómleika Marley’s
og Wailers I Bretlandi. —
Hljómleik'arnir voru einstakir.
Þetta var bezta stund reaggae-
tónlistarinnar. — Bob Marley er
þekktastur meðal Evrópu- og
Bandarikjamanna fyrir lag sitt ,
,,I shot her Sheriff” sem
Clapton gerði frægt.
— Eftir hljómleikana birtu öll
brezku tónlistarblöðin flenni-
stórar myndir af Bob Marley
með risafyrirsögnum og flest
blööin eyddu einnig opnunni til
birtingar frekari mynda og
greina um þennan óvenjulega
Jamaica-mann, Bob Marley, og
meðal þeirra sem honum cr líkt
við eru James Dean, Eddie
Cochran, Phil Spector, Bob
Dylan, Arthur Lee, Mick Jagger
og Keith Richard.
Þrátt fyrir að Bob Marley hafi
svo aðsegja lagt heiminn að fót-
um sér.hefur hans enn ekki ver-
ið getið hérlendis og siðasta
plata Wailers, Natty Dread,
kom hingað til lands i þremur
eintökum. Bob Marley er ts-
lendingum cnn óþekktur. Nú-
timinn var svo lánsamur að
komastyfir plötu þeirra, og get-
ur hann fullyrt fyrir sina parta,
að tónlist Bob Marleys og Wail-
ers er eitthvað það bezta sem
hann hefur hlýtt á I fjöldamörg
ár. —Vonir standa til, að plötur
— einkunnarorð hljómsveitar-
innar, sem letruð eru stórum
stöfum á sviðið — eru: JA-
KVÆÐAR SVEIFLUR.
— Þetta eru áreiðanlega sið-
ustu dagarnir, segir Marley i
viðtali. — 1975 — nú er aðeins
fjórðungur aldar eftir þar til ár-
ið 2000 rennur upp. Hinir rétt-
látu — þeir sem hugsa jákvætt
— munu vinna, hið góða mun
sigra hið illa. Viðerum fullviss-
ir um sigur, er haft eftir lionum.
Fullur fjandskapur rikir milli
Rasta og kristinnar kirkju, og
kemur þessi fjandskapur m.a.
fram i textum Bob Marleys. 1
laginu „Talking Blues” segir:
„Mér finnst sem ég sprengi
upp kirkjurnar.
Núna veit ég að prestarnir
ljúga..”
þeirra verði fljótlega pantaðar
hingað I stærra upplagi.
Bob Marley og félagar hans i
Wailers eru Jamaicabúar, utan
hvað gitarleikarinn, A1 Ander-
son, er bandariskur.
Bob Marley er ekki aðeins
tónlistarmaður. Hann er einnig
mjög athyglisverður texta-
höfundur og leggur ekki siður
mikið upp úr textum en lagi. 1
textunum fylgirhann lifsskoðun
sinni út I yztu æsar, en hann er i
þeim trúflokki sem kallast
Rasta — sem byggir á Rasta-
farianisma — og hafa trúbræöur
hans látið mikið til sín taka á
Jamaica. Vegna ókunnugleika
Nú-timans á þessum trúar-
brögðum, getur hann ekki i
þessari grein farið nákvæmlega
út i þá sálma, en geta má þess,
að Rasta-menn líta á Eþiópiu
sem fyrirheitna landið og þeir
nefna guð sinn Jah. t greinum,
sem Nú-timinn hefur lesið um
Bob Marley, virðist sem þessi
trúarbrögð séu þegar á heildina
er litið, ekki ósvipuð kristin-
dómi — og biblian er þeirra
heiga bók eins og kristinna
manna. Hins vegar er túlkun
Rastafólks á bibliunni gjörsam-
lega I andstöðu við túlkanir and-
ans manna kirkjunnar.
A hljómleikum hefur Bob
Marley ætið mynd af Haile Se-
lassie, fyrrum keisara Eþiópiu,
1. Change
2. Pelican
3.-4. Gunnar Þórðarson
3.-4. Jóhann G. Jóhannsson
5. Spilverk þjóðanna
urslit
1. Pelican
2. Change
3. Júdas
4. Stuðmenn
5. Paradís
Hvaða islenzk(ur) (listamaður-hljóm- Hvaða hljómsveit er að þinum dómi
sveit) telur þú aö eigi mest skilið að bezt á íslandi i dag?
verða fræg(ur) utan Islands?