Tíminn - 28.09.1975, Blaðsíða 27
Sunnudagur 28. september 1975
TÍMINN
27
metrum framar, eða sunnar er
efstibærinn, Fossar, sem eru i 32C
m hæð yfir sjó. Þar búa gjarnan
fjallkóngar á Eyvindarstaðaheið-
inni, hver nú mun vara undir
vatn, ef orkumálamenn fá að
ráða og almennir hagsmunir.
Fjárhúsiö (eitt af þeim) á Steinaá i Svartárdal. Það myndi sóma sér
vel í hvaða villuhverfi sem væri, hvort heldur það væri á Akranesi, eöa
á Brekkunni á Akureyri. Húsið er frá 1956 og gæti verið spánnýtt, og
þaö glansaöi í haustsólinni þennan dag. Snyrtimennskan varslík.að
hvergi sá rusl og slegin grasflötin náði að veggjum hússins.
Aöalsteinn Eiriksson úr Skagafirði og Stefán Sigurðsson Húnavatns
sýslu virða fyrir sér stóðið f Stafnsrétt.
Stafnsrétt. Stóðrétt
Stafnsrétt er ein af fjárflestu
skilaréttum á landinu og fara
miklár sögur af réttunum þar.
Þar var stóðréttá miðvikudag, en
fjárrétt á fimmtudag, 24. og 25.
september. Þangað er rekið fé
Húnvetninga austan Blöndu og fé
Skagfirðinga, svo og útigangs-
hross, sem ganga á heiðum á
sumrum. 2—300 hross voru rekin i
réttina og dregin þennan dag.
— Það var æði napurt er við
Jón Snæbjörnsson ókum fram
Svartárdalinn eftir þröngum
vegi. Smám saman höfðum við
veður af réttunum, menn fóru á
hestum inn hliðarnar og drukku
af stút sér til hita i kuldanum, þvi
hiti hefur naumast verið mikið
yfir frostmarki. Hliðar voru hvít-
ar, efst.
Sveinn frá Elivogum
og bækurnar
Jónsagðimérá meðan sögur af
Húnvetningum og ýmsar sögur Ur
bókhaldi, og af bóksölu Sveins frá
Elivogum er hann reið út um
landiðmeð bókakoffort til þess að
koma ljóðum sinum á framfæri.
Ýmsir þeir, sem ekki keyptu,
fengu visu hjá Sveini, og er hér
með bent á leiðir til að örva sölu
ljóöabóka á íslandi:
Ein var svona, en hún var um
barnakennara i Vatnsdal, bækl-
aöan mann, sem ekki keypti
bókina:
„Einn um hálan höktir is
hróðra mála pjakkur.
Strjálar fóöri fyrir mýs
fóta og sálar skakkur”.
Svartárdalur er sérstakur
heimur. Ekki aðeins landfræði-
lega, heldur dulfræðilega. Dalur-
inn er barmafullur af þjóðsögu og
dul. Þegar komið var innfyrir
Stafn voru iðgrænar hliðarnar
krökkar af sauðfé, sem rann ofan
af brún niður i dalbotninn. Þetta
er ólýsanlegt. t réttinni voru
hestamenn og hrossabændur að
draga hross sin i dilka, sumir vel
fullir, aðrir hýrir, en flestir edrú
og kaldir. Einn kom sundriðandi
upp Ur ánni, eða allt að, þvi og
hrossaþefurinn blandaðist sterk-
um ilmi af grænum grösum og
lyngi.
— Hvað verður um
þessar skepnur?
Að sögn kunnugra, og þar á
meðal Aðalsteins Eirikssonar i
Villinganesi i Skagafirði sem við
hittum þarna að máli voru það
um 2—300 hross sem rekin voru i
Stafnsrétt þennan dag. Þessi
hross eru dregin i dilka og siðan
er þeim ekið, eða þau eru rekin til
sins heima. Algengt er á þessum
slóðum að bændur eigi 40—50
hross, og við spurðum Aðalstein
hvaðyrði um þessar skepnur þeg-
ar heim kæmi?
— Sumum yngri hrossunum er
slátrað. Hrossaræktin i HUna-
vatnssýslu og I Skagafirði hefur-
breytzt. Menn eiga nú færri hross,
en verður meira úr afurð hrossa.
Þetta eru eftir sem áður úti-
gangshross, sem ganga Uti allan
veturinn, en þeim er gefið i jarð-
bönnum, gefið á gadd.
Nokkurhlutifer sem áður sagði
til slátrunar, önnur fara i tamn-
ingastöðvar, þar sem tamninga-
menn temja þau og kenna annan
gang og göfugri en tiðkast á sum-
ardögum uppi á Eyvindarstaðar-
heiði og upp við rætur jökla. Þessi
tömdu hross eru seld til Utlanda
og fljúga þá i mildari vetur. Enn
önnur fá enga tamningu hér
heima heldur eru send án frama i
gangi og limaburði suður i lönd.
Oft er erfitt að vera bóndi, lik-
lega er það þó verst i sláturtiðinni
og i réttunum. Menn hafa uppi
gáska og á suma rennur æði. Aðr-
ir gripa til vasapelans og sams-
konar augnaráð kemur á menn og
skepnur. Visst samhengi er ekki
skoðað.
Hross Húnvetninga og Skag-
firðinga voru mjög glæsileg þenn-
an haustdag i Stafnsrétt, og
maður þakkar fyrir það að þurfa
ekki að láta draga sér neitt.
Framsóknarfélag
Reykjavíkur efnir til
að Hótel Esju
miðvikudaginn
1. október kl. 8,30.
Frummælandi verður Olafur
Jóhannesson viðskipfaráðherra og
ræðir um
EFNAHAGSMÁLIN
OG STJÓRNMÁLA-
VIÐHORFIÐ
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir
r Nýfi frá Svíþjóð
í EDEN-
sófaseftið
er sófasettið,
sem fer alls staðar vel.
Þriggja sæta sófi,
tveggja sæta sófi og stóll.
Vörumarkaðnrinn hf.
ARMULA 1A Símar:
Matvörudeild 86-111
Húsgagnadeiid 86-112
Heimilistækjadeild 86-112
Vefnaöarvörudeild 86-113
Skrifstofan 86-114
W Vefnaöarvörudeild 86-113
|jp Skrifstofan 86-114