Tíminn - 21.12.1975, Qupperneq 24
24
TÍMINN
Sunnudagur 21. desember 1975.
Óvelkominn gestur
maður hans þangað til hann er orðinn tuttugu og eins árs
og Dick þurf i samþykki hans til að gifta sig. Þess vegna
spurði ég hvers konar maður hann væri. .
— Ég skil. Rödd mannsins var kuldaleg. — Og þér haf-
ið samþykkt að giftast Dick.... svo fremi að f rændi hans
hafi ekkert á móti þvi?
— Ekki beinlínis. Jane lokaði augunum. — Mig langar
ekkert til að skapa klof ning í f jölskyldunni, og svo getur
lika verið að mér falli ekki lífið á búgarði. Dick stakk
upp á því að ég kæmi hingað til að reyna það.
— Hvenær var það? Var það nýlega?
— Ég hitti hann fyrir um það bil þremur mánuðum i
Vancouver. Hann var þar í viðskiptaerindum og f orstjóri
minn kynnti mig fyrir honum. Ég er ritari í skipafélagi
Dan Buxtons.
— Einmitt það. Já, hann er frændi Conways. Ef þér
eruð að segja satt, ætti að húðstrýkja Dick f yrir að hafa
látið yður koma hingað án þess að undirbúa f erðina f yrir
yður....!
Hann sneri hestinum skyndilega við.— Komum nú. Við
verðum að halda áf ram.... nóttin skellur snögglega á hér
um slóðir.
Jane elti, svolítið ringluð. Þau töluðust ekki meira við,
því það var ekki auðvelt að komast áfram á illfærum
stígnum, sem bugðaðist f ram og aftur milli ásanna. Hún
var ánægð með að þau gátu ekki ræðzt meira við, því hún
var að hugsa um, að það hefði kannski verið heimskulegt
af henni, að gefa ókunnugum manni svona miklár upp-
lýsingar um sjálfa sig. Hvers vegna hafði hún verið að
segja honum þetta allt saman? Hún fann ekkert skyn-
samlegt svar við því.
Þessi maður virtist dálítið ráðríkur og hún gat imynd-
að sér, að hann gæti líka orðið illkvittinn. Ef hann væri
einn af starfsmönnum búgarðsins, kveið hún fyrir að
hitta hann aftur. Bannsettur hálfviti hafði hún verið. Nú
fór henni að verða kalt og hún fann til af þreytu. Ætlaði
þetta einkennilega ferðalag á hestinum aldrei að taka
enda?
Áður en hún vissi af, voru þau komin á flata sléttu í
djúpum, víðum dal, þar sem Conway-búgarðurinn lá
framundan þeim Undir hæðum lengra burtu. Hundar
tóku að gelta og hún heyrði i hestum í hesthúsunum, þeg-
ar þau nálguðust.
Leiðsögumaður hennar tók í taumana og stöðvaði hest-
inn undir skuggsælum trjám, og þegar Gráskinni var
kominn til þeirra, sagði hann kuldalega: — Ég býst við
að þér bjargið yður héðan af. Dick er einhvers staðar
heima við húsin.
Þegar hann sneri sér f rá henni, spurði hann, hvort hún
hefði engan farangur.
— Jú, ég skildi tvær töskur eftir hjá Abner, svaraði
hún lágri röddu.
— Piltarnir á Conway bjarga því sjálfsagt fyrir þig.
Hafðu engar áhyggjur.
Jane sá ekki f raman í hann, en röddin var mild. Áður
en hún áttaði sig á að þakka honum fyrir, voru hestur og
knapi horfnir út í myrkrið. Hún sat kyrr andartak og
hlustaði á hófadyninn, en sneri sér síðan við og beindi at-
hyglinni að húsinu. Jafnvel í myrkrinu, sem sortnaði óð-
um, gat hún séð, að húsið var langt og lágreist. Ljós var
yfir dyrunum fyrir miðju og lýsti upp tröppurnar upp á
veröndina, sem lá meðfram allri framhliðinni. Hjarta
hennar tók að berjast ákaft, þegar hún hvatti hestinn á-
f ram.
Það var ekki auðvelt að komast ein af hestbaki, svo
hún gladdist yfir því að enginn sá til hennar. Það var
undarleg tilfinning að standa aftur með fæturna á jörð-
inni eftir allan hristinginn á baki Gráskinna og hana
svimaði af hungri. Hún bretti upp sokkana sina, strauk
pilsið og rétti hattinn á höfðinu, áður en hún gekk upp
breiðar trétröppurnar.
Dyrnar lágu að stöf um. Hún ýtti þeim upp og kom inn í
rúmgóða forstofu, sem hún sá þó ekki almennilega sök-
um myrkurs. Hún heyrði að einhvers staðar sat fólk við
matborð og kallaði hátt:
— Er einhver heima? Um leið kom hún auga á rofann
og kveikti Ijósið.
Allt í einu opnuðust dyr á miðjum vegg og maður birt-
ist. Hann var ungur og myndarlegur, meðalhár vexti og
Ijós yfirlitum. Blá augu hans glenntust upp af undrun,
þegar hann sá stúlkuna, sem stóð í gættinni.
— En Jane....! Ert þetta raunverulega þú? Hvað í
ósköpunum ertu að gera hér? Þú ert síðasta manneskjan
i heiminum, sem ég átti von á!
Jane hrökk aftur á bak eins og hann hefði hellt fullri
fötu af köldu vatni ýfir hana.
— Þú bauðst mér þó hingað! Manstu það ekki?
D
R
E
K
I
K
U
B
B
U
R
bessi litlu kvikindi
eru gæludýr
Hella-skripislisins.
#o[Gæludýr
Lengst inni i
hellunum....
Dverg-útgáfu forndýra,
sem talin eru hafa veriö
löngu útdauð
llMHl:!.
1
Sunnudagur
21. desember
8.00 Morgunandakt. Séra
Pétur Sigurgeirsson vigslu-
biskup flytur ritningarorð
og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög.
9.00 Fréttir. Útdráttur úr for-
ustugreinum dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar (10.10
Veðurfregnir) a. „Sankti
Nikulás” kantata eftir
Benjamin Britten. Robert
Tear og Bruce Russen
syngja með King’s College
kórnum og St.
Martin-in-the-Fields hljóm-
sveitinni, David Willcocks
stjórnar. Árni Kristjánsson
kynnir. b. Pianókonsert nr.
5 I Es-dúr op. 73 eftir
Ludwig van Beethoven. Wil-
helm Kempff leikur með
Filharmoniusveit Berlinar.
Ferdinand Leitner stjórnar.
11.00 Messa i Grensáskirkju.
Prestur: Séra Halldór
Gröndal. Organleikari: Jón
G. Þórarinsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.25 Um islensk ævintýri.-
Hallfreður örn Eiriksson
cand. mag. flytur siðara há-
degiserindi sitt.
14.05 Staidrað við á Kópa-
skeri. Siðasti viðtalsþáttur
Jónasar Jónassonar af
Austur-og Norðausturlandi.
15.05 Miðdegistónleikar: Frá
útvarpinu i Vinarborg.
Flytjendur: Filharmoniu-
sveit Slóvaki'u. Stjórnandi:
Ladislav Slóvák. Ein-
leikari: Carole D. Reinhart,
trompetleikari. a. Forleikur
að óperunni „Seldu
brúðinni” eftir Bedrich
Smetana. b. Konsert i
Es-dúr fyrir trompet og
hljómsveit eftir Johann
Nepomuk Hummel. c. Kon-
sertetýða i G-moll op. 49
fyrr trompet eftir
Alexander Goedicke. d.
Þættir úr tónverkinu
„Foðurlandi minu” eftir
Bedrich Smetana.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 A bókamarkaðinum.
Umsjón: Andrés Björnsson.
Kynning: Dóra Ingvadóttir
— tónleikar.
17.40 Utvarpssaga barnanna:
„Bróðir minn, ljónshjarta,”
eftir Astrid Lindgren, Þor-
leifur Hauksson les þýðingu
sina (2)
18.00 Stundarkorn með breska
semballeikaranum David
Sanger. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Henrik Ibsen og Peer
Gynt.
Heimir Pálsson lektor flytur
erindi.
20.00 Tónlist eftir Arna
Björnsson. Atli Heimir
Sveinsson flytur formáls-
orð. Flytjendur tónlistar:
Lúðrasveitin Svanur, Svala
Nielsen, Guðmundur Jóns-
son, Karlakór Reykjavikur,
Gisli Magnússon og
Sinfóniuhljómsveit tslands.
20.55 Svipmyndir úr Kinaför
Arnþór Helgason og
Magnús Karel Hannesson
segja frá.
22.10 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
Sigvaldi Þorgilsson dans-
kennari velur lögin og
kynnir.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Mánudagur
22. desember
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10
( Morgunleikfimikl. 7.15, og
9.05. Valdimar örólfsson
leikfimikennari og Magnús
Pétursson pianóleikari
(a.v.d.v.) Fréttir kl. 7.30,
8.15 (og forustugr. lands-
málabl.) 9.00 og 10.00
Morgunbæn kl. 7.55. Sr.
Kristján Búason dósent
flytur (a.v.d.v.). Morgun-
stund barnanna kl. 8.45.