Tíminn - 21.03.1976, Page 1
*
-
Leiguflug—Neyöarf lug
'HVERT SEM ER
HVENÆR SEM ER
V
FLUGSTÖÐIN HF
Símar 27122-11422
4ætlunarstaðír:
Blönduós — Siglufjörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur— Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
■ hólmur —Rif oúgandafj:
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Simar:
2-60-60 &
2-60-66
Óvenju slæmar heimtur
hjá Bifreiðaeftirlitinu
Gsal—Reykjavik — Bifreiöaskoö-
un I Reykjavik hófst 16. febrúar
s.l., og hafa 8000 bifreiöar veriö
kallaöar til skoöunar. Aö sögn
Franklfns Friöleifssonar hjá Bif-
reiöaeftirliti rikisins hafa menn
komið mjög dræmt meö bifreiðar
til skoöunar. A fimmtudagskvöld
heföi t.d. átt aö vera búiö aö skoöa
7200 bifreiöar, en aöeins heföi um
helmingur þeirra verið færöur til
skoöunar.
Franklin sagði, að þetta væru
óvenjuslæmar heimtur, og mun
verri en t.d. á siðasta ári. — Gjöld
og tryggingar standa i mönnum,
enda hafa tryggingagjöld ekki
verið ákveðin, og þvi þurfa menn
að gangast undir það að skrifa
undir hækkun, hver sem hún
verður. Sennilega eru ekki allir
hrifnir af þvi að skuldbinda sig
þannig, sagði Franklin.
— Hvernig er ástand bifreiða
nú?
— Það má segja að það sé nokk-
uð gott, þ.e.a.s. hjá þeim, sem
koma sjálfviljugir til skoðunar.
Bifreiðaeign Reykvikinga er
orðin það mikil, að skoðun bif-
reiða fer raunar fram allan ársins
hring, að sögn Franklins. — Bif-
reiðaskoðun lýkur ekki fyrr en
siðasta dag ársins. Svo eru menn
að koma i endurskoðanir fram i
febrúar, og þá byrjar aðalskoðun
aftur, sagði hann.
Bifreiðaeftirlitið býr sem kunn-
ugt er við mjög óviðunandi að-
stöðu i Borgartúni. Húsnæði þess
er litill timburkofi, óupphitaður
og lekur — og öll skoðun bifreiða
fer fram undir berum himni. —
Stundum kemur fyrir að við get-
um ekki gefið fulla skoðun, þótt
viðkomandi bill sé i lagi, sagði
Franklin, — vegna þess að við
getum ekki athugað hemlana
nægilega vel, þegar veðrið er
slæmt. 1 slikum tilvikum þurfa
menn að koma með bifreiðarnar
aftur, og slikur tviverknaður tef-
ur mjög mikið fyrir okkur.
— Hefur bifreiðaeftirlitið ekki
fengið vilyrði fyrir nýju húsnæði?
— Jú, það hefur verið innréttað
fyrir okkur húsnæði i Bildshöfða,
þar sem fyrirtækið Vélverk var tií
húsa. Þetta húsnæði á að vera til-
búið i haust, en ég efast um að við
flytjum þar inn fyrr en á næsta
ári, sagði Franklin Friðleifsson
að lokum
Núverandi aðstæður
Bifreiöaeftirlits rikis-
ins eru mjög slæmar,
eins og sjá má á
myndinni hér fyrir of-
an. Nú hefur verið
ákveöiö aö eftirlitiö
flytji starfsemi sina i
Bíldshöföa og sést þaö
húsnæöi hér til hliöar.
Timamyndir: Róbert.
VERÐUR FRAMKVÆMDUM
VIÐ KRÖFLUVIRKJUN
FRESTAÐ UM EITT ÁR
VEGNA FJÁRSKORTS?
F.J. Reykjavik Svo getur farið, að framkvæmdum
við Kröfluvirkjun verði frestað i eitt ár, samkvæmt
upplýsingum, sem Timinn hefur aflað sér. Hefur
þetta mál verið rætt hjá viðkomandi ráðuneytum og
er ákvörðunar að vænta innan fárra daga.
I kjölfar eldsumbrotanna á Kröflusvæðinu
skömmu fyrir áramót var rætt um að fresta fram-
kvæmdum vegna óvissu um þróun mála. Sam-
kvæmt upplýsingum, sem Timanum hafa borizt, er
þetta þó ekki ástæðan fyrir hugsanlegri frestun
framkvæmda nú heldur fjármagnsskortur.
Ráðuneytin ræða málin.
Ákvörðun tekin á næstunni
Bílstjór-
anum
sleppt úr
qæzluvarð-
haldinu
Gsal-Reykjavik
Pilturinn, sem játaði
að hafa ekið bana-
mönnum Guðmund-
ar Einarssonar með
lik hans frá húsi i
Hafnarfirði út i
hraun sunnan við
bæinn, hefur verið
leystur úr gæzlu-
varðhaldi, en hann
hefur setið i varð-
haldi frá þvi á
þorláksmercn Þátt-
ur hans i þessu
óhugananlega máli
mun vera full-
kannaður.