Tíminn - 21.03.1976, Blaðsíða 24

Tíminn - 21.03.1976, Blaðsíða 24
24 TÍMINN Sunnudagur 21. marz 1976 r r r A FLOTTA FRA ÁSTINNI Eftir Rona Randall - Gabrielletil sögunnar...mértókst að vekja áhuga henn- ar og ætlaði að hitta hana í kvöld. — Já, haltu áfram... — Jæja, ég held, að hún vilji heldur ekki bíða, þín vegna. Myra starði á hann. — Ég hef ekki minnstu hugmynd um, hvað þú ert að fara. Ég á vakt til tíu í kvöld. — Þaðerég, sem á vakt til tíu í kvöld — og ég held ekki, að Gabrielle bíði eftir mér svo lengi. — Áttu við, að þúeigir aðtaka mtna vakt? — Þú^rt fljót að skilja mín kæra. — En hvers vegna? Og hvenær? — Hvers vegna? Vegna þess að mér hefur verið sagt, að þú haf ir ekki átt einn einasta frídag, síðan þú komst hingað. Þetta er skipun f rá foringjanum sjálfum. David horfði á hana, án ásökunar. — Ef Gabrielle hefði ekki verið, væri mér sama. Þú átt skilið að f á f rí. Farðu út og skemmtu þér... nóttin er ung og þú ert í París! — Æ, David, mér þykir þetta leitt! — Ekki vera að því, skaut doktor Bailey inn í, en hann hafði verið niðursokkinn í dagblað til þessa. — Ef Gabri- elle sparkar honum, f innur hann bráðlega aðra. Simone, Germaine, Michaela, Colette, Mimi...Gabriella er bara ein af átján og þær verða enn f leiri. Harwey er að kynna sér fyrirsætukost Parísar. — Gabrielle er ekki f yrirsæta, skaut David inn í. — En hún er nógu falleg til að geta verið það. — Sé svo, þarf okkar kæra Gabriella ekki að bíða árangurslaust. Ég skal sjálfur fara og hitta hana, bara til að segja henni, að þú komir ekki, auðvitað. Hvar er hún? — Við Madeleinekirkjuna, svaraði David. — En þú mátt ekki segja henni neitt meira. Myra var þakklát fyrir hugsunarsemi Mark Lowells. Hann var einkennilega samsettur maður. Maður, sem sá um að óstyrkur nýliði fengi tebolla — en sagði honum siðan, að hann vildi ekki hafa hann. Maður, sem gat ver- ið kaldur og málefnalegur, en sem sýndi gömlum vesa- lingi, sem mundi ekki einu sinni naf nið sitt, einstaka um- hyggju og hlýju. Maður, sem rak starfslið sitt mis- kunnarlaust áfram, en gaf henni svo allt í einu heilan frídag. Nei, Mark Lowell var maður, sem hún mundi senni- lega aldrei geta skilið. En eins og David hafði sagt: Nótt- in var ung og hún var í Paris. Borg, sem hana hafði alltaf dreymt um, en aldrei séð. Borg, sem Brent hafði unnað og stöðugt vitnað til, síðan hann hafði verið hér við nám fyrir mörgum árum. Töf rapensill Brets hafði náð fegurð borgarinnar og fest hana á striga....Sacre Cæur eins og hilling, litlar skissur af ýmsum stöðum.... Otal sinnum hafði hann lofað henni að sýna henni París. — Ég ætla sjálf ur að sýna þér borgina — það fær enginn annar að gera, hafði hann sagt. Hún brosti með sjálfri sér, meðan hún var að taka sig til áður en hún fór út. Hún myndi líta á París með augum Brents, það vissi hún um leið og hún lagði af stað. Allt var eins og hann hafði lýst þvi. Hún gekk gegn um Tuleries-garðinn, sá Louvre-saf nið, gekk gegn um bogagöngin yf ir gangstétt- unum við Rue Rivoli — já, þetta var. allt, eins og hún hafði búizt við, borgin, sem hafði slík áhrif á svo margt fólk, að það þreifst ekki annars staðar. Hún f ór að hugsa um Jósep gamla. Hvað var það í f ari þessa gamla manns, sem snerti hana svona djúpt? Var það að hann var listamaður og hún elskaði annan lista- mann? Aðrir sjúklingar voru álíka á sig komnir, þeir , vöktu hjá henni meðaumkun, en Jósep vakti eitthvað annað og meira. Það var eins og hann hreyf ði við duldum sprengjum í hjarta hennar. Hægt gekk hún eftir götunni sem lá að Öperunni. — Einhverntíma förum við þangað saman, hafði hann sagt. — Við skulum horfa á óperu, eða ballett og það verður reynsla, sem þú gleymir aldrei. Einhverntíma....alltaf hafði hann sagt „einhvern- tíma". Hún reyndi að varpa frá sér þessum dapurlegu hugsunum. Ef Parisætlaði aðeins að gera hana dapra og beiska í skapi, var eins gott að hún héldi sig að sjúkra- húsinu framvegis. Vinna var lyf gegn andlegum sárs- auka og sem læknir ætti hún að geta fundið bót meina sinna. En alls staðar var eitthvað, sem minnti hana á Brent. Þegar hún kom á Operutorgið, sá hún fyrir sér eina af teikningum Brents. Tilhugsunin olli henni sviða, en samt sem áður neyddi hún sjálfa sig til að ganga upp tröppurnar framan við bygginguna til að sjá betur yfir umhverf ið. Hún mátti til að standa þar, sem Brent hafði einu sinni sagt, að þau skyldu standa saman. En henni sortnaði fyrir augum, þegar hún sá auglýsingaspjaldið, sem tilkynnti um næsta verkefni Óperunnar. Enskur G E I R I Bæði Geiri og Dalla höfðu horfiö án nokkurrar vlsbend ingar hvert. - • Þangaö til Dalla strýkur I úr haldi... luifi liil I Sunnudagur 21. marz 8.00 M orgunandakt. Séra Pétur Sigurgeirsson vigslu- biskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög 9.00 Fréttir. Útdráttur úr for- ustugreinum dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar. (10.10 Veðurfregnir). Tónlist eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Flytjendur: Edda Moser, Julia Hamari, Martin Schomberg, Jules Bastin, Kantorkórinn i Brugge og Filharmoniusveitin i Ant- werpen. Stjórnandi: Theo- dor Guschlbauer. (Hljóðrit- un frá belgiska útvarpinu) a. Messa nr. 18 i c-moll (K427). b. Sinfónia nr. 36 i C- dúr (K425). 11.00 Messa i Kópavogskirkju. Prestur: Séra Arni Pálsson. Organleikari: Guðmundur Gilsson. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.15 Erindaflokkur um upp- eldis- og sálarfræði. Andri Isaksson flytur sjöunda og siðasta erindið: Kenning Piagets um þroskaferil barna og unglinga. 14.00 Á sumarleiðum. Um sið- ari starfsár Asgríms Jóns- sonar og ævikvöld. Björn Th. Björnsson listfræðingur tekur saman efnið. Lesari með honum er Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor. Sið- ari dagskrá. 14.40 Óperan „Don Carlos” eftir Giuseppe Verdi. Hljóð- ritun frá tónlistarhátiðinni i Salzburg i ágúst. Guðmund- ur Jónsson kynnir siðari hluta verksins. Flytjendur: Mirella Freni, Christa Lud- wig, Nicolai Ghajauroff, Placido Domingo, Piero Cappuccilli o.fl. einsöngv- arar ásamt Rikisóperu- kórnum og kór Tónlistarfé- lagsins i Vinarborg og Fil- harmoniusveit Vinar. Stjórnandi: Herberg von Karajan. 16.25 Veðurfregnir. Fréttir. 16.35 Framhaldsleikritiö: „Upp á kant við kerfið”Oile Lansberg bjó til flutnings eftir sögu Leifs Panduros. Þýðandi: Hólmfriður Gunn- arsdóttir. Leikstjóri: Gisli Alfreðsson. 17.10 Létt klassisk tónlist. 17.40 Útvarpssaga barnanna: Spjali um Indiána. Bryndis Viglundsdóttir heldur áfram frásögn sinni (8). 18.00 Stundarkorn með spánska gitarleikaranum Andrési Segovia. Tilkynn- ingar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25' „Hjónakornin Steini og Stina”, gamanleikþáttur eftir Svavar Gests. Persón- ur og leikendur i sjötta þætti: Steini, Bessi Bjarna- son. Stina, Þóra Friðriks- dóttir. 19.45 Frá hljómleikum Sam- einuðu þjóöanna i Genf i október s.l. Suisse Romande hljómsveitin leikur Sinfóniu nr. 5 i e-moll eftir Tsjaikov- ský, Janos Ferencsik stjórnar. 20.30 Jón Oskar rithöfundur les þýðingu sina á bréfi frá föður manns, sem pyndaður var til dauða i Uruguay. 21.00 Frá tónleikum i Iláteigs- kirkju i janúar. Guðni Þ. Guömundsson, Carsten Svanberg og Knud Hovald leika verk eftir Marcello, Bach og Pál Ólafsson frá Hjarðarholti. 21.25 „Kona á Spáni”, smá- saga eftir Gunnar Gunnars- son blaðamann. Höfundur les. 21.45 Kórsöngur. Karlakórinn Fóstbræöur, Erlingur Vig- fússon, Kristinn Hallsson, Eygló Viktorsdóttir og Carl Billich flytja lög eftir Gylfa Þ. Gislason við ljóð Tómas-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.