Tíminn - 21.03.1976, Page 28
28
TÍMINN
Sunnudagur 21. marz 1976
„Hinn ferski
tónn"
— AAinningarsýning
um Asgrím Jónsson
Fyrsta verkefni Kjarvals-
staða eftir formbyltinguna i
húsrekstrinum er yfirlitssýning
á verkum Ásgrims Jdnssonar.
Þessi sýning hafði reyndar ver-
iö ákveöin i gainla stilnum, þeg-
ar aldarafmæli listamannsins
var ekki langt undan.
Ásgrimur Jónsson fæddist ár-
ið 1876 i Rútsstaðahjáleigu i
Gaulverjabæjarhreppi, og voru
foreldrar hans þau Jón Guðna-
son bóndi þar og kona hans Guð-
laug Gisladóttir. Ólst Asgrimur
upp i foreldrahúsum fram yfir
fermingaraldur, en dvaldist sið-
an i „Húsinu” á Eyrarbakka
sem matvinnungur. Siðan hélt
hann á skútur, en það var i þá
daga eitt bezta úrræði þeirra, er
ekki áttu jarðir til að hokra á.
Að þvi búnu lá leiðin vestur á
Bildudal, þar sem þá var miki)
drift, verzlun, fiskveiðar og
fiskverkun, en þá stóð fyrirtæki
Péturs Thorsteinssonar með
hvað mestum blóma. Asgrimur
varð handgenginn kaupmanns-
fjölskyldunni á Bildudal, og er
það dálitið merkilegt, að hann
skyldi kynnast tveimur mestu
menningarheimilum kaup-
manna seinustu aldar svo náið,
þvi þar voru listir i hávegum
hafðar.
autoheat
FOR ACCURATE GREENHOUSE HEATING
ÁL-GRÓÐURH ÚS
[22sl] fyrir heimagarða
8 X 10 fet. ÁætlaS verð kr. 72.000
8X12 fet. Áætlað verð kr. 79.000
Sjðlfvirkir hitablásarar
2500 wött kr. 13.790
3000 wött kr. 15.125
Ál-sólreitir / blómakassar,
Stærðir122 X 70 cm.
kr. 7.700
Hillur 122 cm. kr. 1.750
Borð 244 cm. kr. 12.500
f fyrra seldust EDEN húsin upp, enda verðið hvergi
lægra. Nú erum við að fá nýjar sendingar til afgreiðslu
af lager I þessum mánuði. Vegna góðrar samvinnu við
framleiðendur getum við boðið óbreytt verð frá s.l.
ári.
Við ráðleggjum kaupendum að hafa samband við okkur
strax og tryggja sér hús, en s.l. sumar seldust húsin
jafnóðum og urðu allmargir að blða næstu sendinga.
KLIF
Vesturgötu 2, Reykjavlk
Simi 23300 til kl. 7 e.h.
F'yrsta myndin
Ásgrimur Jónsson mun hafa
málað sina fyrstu mynd mjög
ungur austur i Gaulverjabæ, og
liklega veit enginn nú, hvers
vegna hann gerði það, en mynd-
ina gerði hann með taublánku
og krit. Si'ðan er hann ávallt
með slikt myndföndur og á ár-
unum vestur á Bildudal hefur
hann liti og málar og Asthildur
kona Péturs Thorsteinsson,
keypti af honum fyrsta mál-
verkið, sem hann selur, og taldi
Asgrimur það sjálfur stórkost-
legan viðburð og taldi sig ekki
hafa gert minnisstæðari kaup.
Þarna fyrir vestan vann hann
að húsamálun og skipamáln-
ingu. Enn fremur var hann
fenginn til þess að mála leik-
tjöld, en verzlunin kostaði leik-
sýningar auk annars, er hún
gjörði til menningarþarfa. 1
októ ber árið 1897 hélt hann sið-
an til Kaupmannahafnar til þess
að reyna að komast i listnám.
Ekki var farareyririnn mikill,
200 krónur, er hann hafði sparað
saman, og ekki gat hann átt von
á fjárstuðningi heimanað þvi að
hann var af fátæku, barnmörgu
heimili.
Fyrstu tvö árin ytra vann
hann fyrir sér með húsgagna-
málun, en stundaði jafnframt
nám i teikningu, og eftir tvö ár
fékk hann inngöngu i konung-
lega listaskólann.
Ekki var það ætlunin að rekja
hér ævisögu Asgrims Jónsson-
ar, enda hefur sá er þetta ritar
ekkertundir höndum til þess, en
þessi upprifjun er samt nauð-
synleg til þess að gera ofurlitla
grein fyrir þeim málara, er um
sumt má teljastfaðir islenzkrar
málaralistar eins og hún er nú.
Það er nokkuð annað að byrja
málaraferil þar sem myndlistir
standa með blóma og listheim-
urinn er svo að segja allur við
höndina fyrir hvern sem hafa
vill, en það var meðal annars
verk Ásgrims Jónssonar að
færa okkur þennan heim, a.m.k.
hluta hans, og fá svo þjóðina til
þess að opna fyrir honum aug-
un.
Þjóðin lærði að
meta nýjan snilling
Ekki verður annað sagt en að
þjóðin hafi tekið honum tveim
höndum, þegar hann kom fyrst
heim með myndir, og til marks
um það er m.a. það, að Alþingi
veitti honum 600 króna styrk án
mótatkvæða árið 1903, sem telj-
ast verður dálagleg upphæð,
þegar þess er gætt, að jafn ráð-
deildarsamur maður og As-
grimur var, átti aðeins rúmar
tvö hundruð krónur eftir „sjö
ára strit”, þegar hann hélt til
Kaupmannahafnar. Arið 1907
veitti svo Alþingi honum 3000
kröna styrk til Suður-Evrópu-
farar, og Asgrimur hélt suður
alla Evrópu og allt suður til
Italiu.
Þetta var mikil gæfa. Um
þessar mundir var doði yfir
danska listaskólanum. Þar var
ekkert að gerast, en i Þýzka-
landi, i suðri, voru ný teikn á
listhimni, expressionisminn,
sem siðar hafði ómæld áhrif á
myndlist Asgrims Jónssonar.
Asgrimur er einkum þekktur
fyrir landslagsmyndir sinar og
myndir úr þjóðsögum. Hann
byrjaði snemma á siðarnefnda
myndefninu. Þannig er sú fræga
mynd „Nátttröllið á gluggan-
um” gerð þegar árið 1905, og
mjög snemma fór hann einnig
að fást við myndefni úr fomsög-
um okkar. Elztu myndirnar á
sýningunni á Kjarvalsstöðum
eru frá árinu 1890, þegar As-
grimur var aðeins 14 ára gam-
all, en alls eru 270 verk á sýn-
ingunni, vatnslitamyndir, túss-
myndir, kol og blýantsteikning-
ar, og svoauðvitað oh’umálverk.
Verkunum er raðað eftir mynd-
efni, en ekki eftir aldri, eða af
handahófi.
Úr dimmu i birtuna
Ef þessar myndir, lifsverkið i
heild, er skoðað, þá eru elztu
myndirnar þungbúnar á svip-
inn, eins og málarinn reyndar
oft sjálfur á gömlum ljósmynd-
um. Draumlynd alvara og still-
ing. Ég minnist málarans þegar
ég var unglingur, og fannst
hann þó ekki par skuggalegur á
að lita, heldur virðist svipur
hans einhvernveginn sterkur á
bak við þessar gömlu myndir.
Svo fer smám saman að birta,
ósköp hægt þó. Menn eins og Ás-
grímur Jónsson hlupu ekki eftir
tizku, heldur unnu að mark-
vissri þróun. Um þetta segir
Bjöm Th. Björnsson i ritgerð,
en þar fjallar hann um heim-
sókn Ásgrims til Berlinar:
,,t söfnum Berlfnar var mikið
að sjá af hinni nýju list, en það
voru enn sem fyrr impression-
istarnir sem athygli Ásgrims
beindist helzt að”.Enn fremur:
„Svo sem brautryðjandahlut-
verki Ásgrims var háttað hefði
slik snögg breyting verið sögu-
lega óhugsanleg”
Eftir 1940 fer siðan aht i bál,
og sumar myndir hans eru i
rauninni ekki annað en kröftug-
ar kompositionir i kröftugum
litum og grófum pensildráttum.
A þessu timabili virðist hann
hafa djúptækust áhrif á islenzka
myndlist, á aðra málara. Þó er i
sjálfu sér ekki auðvelt að skil-
greina megipþungann i verkum
hans, né heldur var hann rig-
bundinn við einfalda aðferð.