Tíminn - 01.08.1976, Blaðsíða 7
Sunnudagur 1. ágúst 1976.
TÍMINN
7
HELGARSPJALL
Ásgeir Bjarnason, forseti Alþ.:
Áætlanir, vinnuafl, fjármagn, árferði
Mikill framkvæmdamaður i
bændastétt var að þvi spurður,
hvort hann hefði gert áætlanir
fram itimannum framkvæmdir
á jörð sinni. Hann svaraði þvi
neitandi, en sagði að það væri
einkum þrennt sem hefði ráðið
framkvæmdunum: timinn sem
hann hafði frá bústörfum
(vinnuaflið), fjármagnið sem
myndaðist, þegar vel gekk og
siðast en ekki sizt árferðið.
Hann sagðist oft hafa unnið
mikið og viljað standa i skilum
við alla og það hefði sér tekizt.
Þessi þrjú grundvallaratriði:
vinnuaflið, fjármagníð og ár-
ferðið erú vafalaust tekin með i
reikninginn, þegar gerðar eru
áætlanir, þótt þar komi sjálf-
sagt margt annað til, sem
einungis hagfróðir sérfræðingar
taka með, þegar þeir gera
framkvæmdaáætlanir á hinum
fjölmörgu sviðum athafnalifsins
Þaðer mikið um það rætt, að
það þurfi að gera framtiðar-
áætlanir fyrir landbúnaðinn.
Skipuleggja framleiðsluna og
koma i veg fyrir það, að byggi-
legar sveitir fari i eyði. Þegar
hefur verið hafizt handa i
þessum efnum og tekin fyrir
viss landssvæði, þar sem talin
er vera mikíl þörf á þvi að
spyrna við fótum, gbeða
athafnalifið og bæta lifsskilyrði
fólksins.
Fyrir nokkrum árum siðan,
var gerð framkvæmdaáætlun
fyrir Inndjúp og standa fram-
kvæmdir þar yfir. Þá hefur
verið gerð áætlun fyrir Árnes-
hrepp i Strandasýslu og eru
framkvæmdir hafnar þar,
einnig hefur verið gerð fram-
kvæmdaáætlun fyrir Fjalla-
hrepp i Norður-Þingeyjarsýslu.
Viðar er hafinn undirbúningur
að framkvæmdaáætlunum, þar
sem talin er vera þörf á þvi. og
viss hætta á að byggðir fari i
eyði. Reynslan i þessum efnum
er ekki mikil og ýmsir
byrjunarörðugleikar, eins og
vænta mátti. Þvi er skynsam-
legt að flýta sér hægt og huga
vel að þeim ýmsu þáttum, sem
kunna að hafa sin áhrif á áætl-
anir og framkvæmdir sam-
kvæmt þeim. Þar þarf að
haldast i hendur, ræktun lands-
ins og byggingar yfir hey og bú-
fé. Félagsleg þjónusta og fram-
kvæmdir á þvi sviði eru vafa-
laust með i þessum áætlunum,
eins og póstur, simi, rafmagn,
skólar, heilsugæzla, verzlunar-
aðstaða og siðast en ekki sizt
vegir og sums staðar hafnir og
flugvellir. Viða er þessi opin-
bera þjónusta til staðar, en þarf
Asgeír Bjarnason.
endurbóta við. Her er þvi um
viðtæk verkefni að ræða þar
sem vinnuaflið, fjármagnið og
árferðið ráða miklu um fram-
kvæmdahraðann.
„Margs þarf búið með” og
fleira er sem huga þarf að, en
það sem þegar hefur verið
nefnt. Sala búafurðanna er
veigamikill þáttur sem lika
verður að taka með i dæmið.
Þótt landbúnaðurinn byggist að
mestu leyti á innanlandsnotkun
og neyzlu, þá hefur það lengi
verið svo, að alltaf hefur þurft
að flytja út hluta af búvöru-
framleiðslunni. tJtflutnings-
verðið hefur verið misjafnt og
fer það eftir þvi, hvaða vara út
er flutt og hverjir kaupa. Viða
sveltur fólk i heiminum og gott
væri það, ef búvara okkar gæti
dregið úr þeim hörmungum.
Það þarf að hefja nýja sókn i
afurðasölumálum bænda. Þótt
alltaf sé að þeim unniö, þá þarf
samt að leita að nýjum mörk-
uðum. Rikisvaldið hefur ekki
varið miklum fjármunum i
markaðsleit, en hjá þvi verður
vart komizt, ef verulegur
árangur á að nást, og það getur
lika borgað sig fyrir það opin-
bera, þvi alltaf er gjaldeyrir af
skornum skammti.
Hlutur landbúnaðar i útflutn-
ingi hefur farið vaxandi siðustu
árin, einkum i fullunnum vörum
úr ull, gærum og skinnum, sem
eru mjög eftirsóttar erlendis og
seljast fyrir hagstætt verð, og
þaðþóttmeira væri. Dilkakjötið
þykir viða gott og selst sums
staðar fyrir gott verð, einnig
vissar tegundir osta, en mikið
vantar á að allar þessar vörur
og ýmsar aðrar, sem út eru
fluttar seljist fyrir gott verð.
Lax og silungur hefur stór-
hækkað i verði erlendis hin
siðari ár, einkum i Frakklandi
og islenzki reiðhesturinn — gæð-
ingurinn selst vel i Þýzkalandi
og viðar.
Allt skapar þetta vonir um að
það séu möguleikar á að selja úr
landi fleiri landbúnaðarafurðir
og fá fyrir þær hærra verð er nú
er. Sölumöguleikar geta verið
viða, þott hér verði ekki taldir.
Gjaldéyrisstaða okkar ts-
lendinga hefur oft verið erfið og
er það mjög um þessar mundir.
Þviverðuraðgeraalltsem unnt
er til þess að efla útflutnings-
framleiðsluna, bæta gjaldey.ris-
stöðuna. Það er trú min og von,
að landbúnaðurinn og fram-
leiðsluvörur hans geti i framtið-
inni orðið sterkur þáttur i verð-
mæti útflutnings, þegar búið er
að kanna þau mál vel og finna
nýja markaði. Það er vart hægt
að horfa fram hjá þessum
málum i sambandi við áætlanir.
„Oft er það gott sem gamlir
kveða”. Reynsla og hyggindi
hins aldna bónda, er ég gat um i
upphafi, er gömul en sigild þvi
fjármagnið er afl þeirra hluta
sem gjöra skal, og það þarf tima
til að framkvæma. Arferðið
ræður svo alltaf miklu um af-
komu allra. Þessir þrir þættir
eru undirstaðan sem enn þá
hafa sitt hagræna gildi i öllum
framkvæmdum og framförum,
þótt fleira komi þar til með
breyttum timum og nýrri tækni.
Slysalaus umferð
— í upphafi verzlunarmannahelgar
— hs — Rvik. Samfelld umferð
var út úr Reykjavik langt fram á
aðfaranótt laugardagsins að sögn
Óskars Ólasonar, yfirlögreglu-
þjóns hjá umferðardeild Reykja-
vikurlögreglunnar i gærmorgun.
Engin stórvægileg óhöpp höfðu
orðið, þrátt fyrir þessa geysi-
þungu umferð.
♦ j
Gestkvæmt í Arnesþingi
— s|ö teknir ölvaðir
við akstur
Nokkuð mikil ölvun var i
borginni á aðfaranótt laugar-
dagsins og fangageymslur lög-
reglunnar fullsetnar. Oft hefur þó
verið gestkvæmara I fanga-
geymslunum. Þær voru aðeins
einsetnar I fyrrinótt en hafa hins
vegar oft verið tvl- til þrisetnar,
að sögn lögregluvarðstjóra.
—hs—Rvlk. Mjög gestkvæmt var
orðið I Árnesþingi I fyrrakvöld, að
sögn lögreglunnar á Selfossi I
gærmorgun og var búizt við enn
frekari gestakomum. Umferðin
hafði gengið nokkuð vandræða-
laust, en frá föstudagskvöldi til
Iaugardagsmorguns þurfti lög-
reglan að hafa afskipti af 7
öivuðum ökumönnum.
Flestir gestanna stefndu á úti-
hátiðina Rauðhettu við Olf-
ljótsvatn, en margir voru enn-
fremur komnir á Þingvöll.
Laugarvatn, i Þjórsárdal, að
Árnesi og Borg i Grimsnesi.
Allt tiltækt lögreglulið er starf-
andi auk þess sem aðstoð hefúr
borizt frá Rvik. Eins og
áður gat hafði umferðin gengið
nokkuð vel framan af, nema hvað
einn bill valt við
Svinavatn, án þess þó að alvarleg
meiðsl yrðu á fólki, og harður
árekstur varð á Selfossi seint á
föstud., ennfremur án alvarlegra
meiðsla, eftir þvi sem bezt var
vitað. Að öðru leyti hafði aðeins
verið um smávægilegt klór að
ræða á bilastæðunum við Úlfljóts-
vatn að sögn lögreglunnar á Sel-
fossi.
Skátamót í
Leyningshólum
KS—Akureyri — Skátafélögin á
Akureyri halda skátamót I
Leyningshólum um verzlunar-
mannahelgina. Mikill áhugi mun
vera fyrir mótinu, og er búist við
að milli 400 til 500 skátar viðsveg-
ar af á landinu muni sækja mótið.
Fjölskylduibúðir verða starf-
ræktar, þar sem gamlir skátar og
fjölskyldur skáta geta tjaldað, og
tekið þátt i dagskrá mótsins.
Dagskrá verður mjög fjölbreytt
bæði til fróðleiks og skemmtunar.
Má t.d. nefna markferðir, útield-
un, næturleiki, tivolí og dagblað
verður gefin út á staðnum.
Frá hádegi á sunnudaginn 1.
ágúst verður svæðið opið almenn-
ingi og um kvöldið verður varð-
eldur mótsins.
Urgur í íbúum
Lauga rneshverf is
— mótmælaundirskriftum safnað á
nýjan leik
—hs—Rvik. Eins og sagt var frá I
Timanum fyrir skömmu, hafa
ibúar Laugarneshverfisins mót-
mæit fyrirhugaðri byggingu
fimm ibúða raðhúss á svo kallaðri
Bjargslóð. Borgarverkfræðingur
sendi síðan ibúum hverfisins bréf,
þar sem málið var kynnt frekar
og óskaö eftir frekari viö-
brögðum.
tbúar hverfisins, milli Otra-
teigs og Laugalæks, hafa nú hafið
undirskriftasöfnun á ný og hyggj-
ast þeir senda þann lista, ásamt
mótmælum sinum, til borgar-
stjóra og borgarráðs, en um
málið átti að fjalla i borgarráði
bann 10. ágúst næstkomandi.
Mikill urgur er i fólkinu út af
þessari fyrirhuguðu byggingu,
sem það telur að muni skaða hið
rólega og rótgróna hverfi og jafn-
vel valda verðrýrnun ibúða þar.
Telur það sig hafa haft fulla
ástæöu til að ætla, að á Bjargslóö-
inni yröi grænt útivistarsvæöi.
A undan timanum
í 100 ár
léttir
meðfærilegir
viðhaldsíitlir
fyrir stein-
steypu.
Avallt fyrirliggjandi. Góð varahlutaþjonusta.
06 Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Armúla 16 ■ Reykjavík ■ sími 38640
k*ÍL.jLJ M
þjöppur slípivelar dælur sagarblöö steypusagir þjöppur
U
bindivirsnillur