Tíminn - 01.08.1976, Blaðsíða 24
24
TÍMINN
Sunnudagur 1. ágúst 1976.
mM
Fjölskylda Jimmy Carters er
nú mjög i sviðsljósinu sem von-
legt er, eftir að hann var valinn
forsetaefni demókrata 1976. Einn
er þó sá ættingja hans, sem átti
sér þúsundir aðdáenda um öll
Bandarikin áður er rikisstjóri
Georgiafylkis hlaut sinn skjóta og
óvænta frama: Systir hans Ruth
Carter Stapleton, sem leggur
stund á „trúarlegar lækningar”
og boðun fagnaðarerindisins.
Nýlega var hún stödd i New
York til að kynna nýútkomna bók
sina ,,The gift of inner healing”
og vakti mikla eftirtekt blaða-
manna þar i borg, svo sem vænta
mátti. Er efni þessarar greinar
sótt i þau blaðaskrif, sem af þessu
tilefni spunnust.
Systkinin Ruth og Jimmy eru
afar lik i útliti og framkomu —
jafnvel gefur bros hennar ekkert
eftirhinu velþekkta brosi bróður-
ins. Málfar og orðatiltæki eru hin
sömu, og bæði tala þau hina seinu
og sérkennilegu suðurrikja-
mállýzku, og draga mjög seim-
inn. Bæðistunda þau sálnaveiðar.
Ensá munur er þar á, að Ruth er i
fylgi flokks himnaföður, en Cart-
er flokks demókrata, þótt hlut-
verkin hafi einstöku sinnum vixl-
azt.
Ruth hefur ferðazt um Banda-
rikin þver og endilöng og bæði
haldið samkomur með þúsundum
áheyrenda og haft viðtalstima
fyrir einstaklinga. A fundum sin-
um ákallar hún Jesúm sér til
hjálpar viö að lækna sár sálarinn-
ar, sem búa með hinu „innra
barni” fortiðar hvers og eins —
e.t.v. mætti kalla hana andasál-
fræðing, eins og hérlendis er tal-
að um andalækna, þvi þau veik-
indi sem hún fæst við að ráða bót
á eru sálræns eðlis.
Ruth Stapleton er álika um-
hugsunarefni mörgum trúarfé-
lögum og bróðir hennar er þeim,
sem með stjórnmálum fylgjast.
Kenningar hennar um „innri
bata” eru óvenjulegar að þvi
leyti að þær eru undarlegt sam-
bland af sálfræði og spiritisma og
vekja furðu fræðimanna beggja
sviða, svo ekki sé minnzt á vand-
lætingu þeirra, sem litla trú hafa
á öðru hvoru eða hvoru tveggja
sálfræði og andatrú.
Ruth -tilheyrir kirkjudeild
baptista, og hefúr sá söfnuður
hneykslazt á þvi að hún vitnar
jafnoft i Freud og Jung og sjálfa
ritninguna. Sálfræðingar h'ta á
hana sem e.k. Tove Ditlevsen
(sbr. Sma hverdagsproblemer)
með guðsorð á vör. Margir heit-
trúarprestar hafa varað við
henni, og lýstu hana — óheilaga
norn i engils liki. En margir sér-
trúar- og tungutalssöfnuðir dá
hana m jög, og þegar hún stundar
ekki lækningar sinar er hún vin-
sæll prédikari, jafnt meða-1
baptista sem methódista.
Sjálf segir hún að sálfraAingar
geti hjálpað sjúklingum aö vissu
marki með þvi að rifja upp með
þeim fortið þeirra, en munurinn
sé sá, að enginn nema heilagur
andi geti seilzt inn i sálina ogfjar-
lægt örin. Með þvi að bjóða þeim
nærveru hans færist öll ábyrgð á
hans herðar. Hin innri lækning
virðist þannig i þvi fólgin, að rifja
upp sinar bitrustu endurminning-
ar, bjóða Jesú að taka þátt i þeim,
og eyða síðan sársaukanum og
arlegum yfirlýsingum i fram-
boðsræðum sinum, og sama
sinnis er móðir hans, sem eftir er
haft: „Ég er búin að segja honum
að hætta þessu þvaðri um að hann
hafi aidrei skrökvað, hversu
kristinn hann sé, og að hann elski
konu sina ennþá heitar nú en þeg-
ar hann sá hana fyrst.”
Ruth segirfrá þvi, þegar Carter
frelsaðist undir hennar leiðsögn:
Dag nokkurn eftir að hann hafði
beðið ósigur fyrir Lester Maddox
i rikisstjórakosningunum 1966,
var hann á gangi með systur sinni
úti i skógi, Hann hafði tekið eftir
þvi að systirin var breytt — hún
var ekki lengur dekurbarnið sem
hún hafði áður verið, og hann
spurði hana hverju þetta sætti og
hvað trúin hefði gert fyrir hana.
Hún sagði sem var, frá hinni sál-
rænu reynslu sinni og frelsun sem
værii þvi fólgin að helga sig Jesú.
Carter ákvað að snúa inn á sömu
braut. Hann var tilbúinn að fórna
öllu, fjölskyldu, vinum og fé.
Verst þótti honum þó að afsala
sér framavonum i stjórnmálum.
En engu að siður starfaði hann
sem djákni i baptistakirkjmkenndi
i sunnudagaskóla og stofnaði nýja
söfnuði i Pennsylvaniu og Massa-
chussetts, en trúboö er liður i
kenningu baptista. Ruth segist
hafa fengið hanntilaðsnúa sérað
stjórnmálum á ný: „Það var
nægileg fórn, að hann skyldi fást
til að leggja þau á hilluna”.
Carter hefur staðfest frásögn
systur sinnar, að þvi undanskildu
streitunni sem minningunum er
samfara með heitum bænum og
trú.
Ruth Stapleton er 46 ára og alls
ólik öllum viðteknum hugmynd-
um manna um hina miðaldra
amerisku heittrúarkonu, þvi hún
er bráðlagleg og tilhaldssöm,
vandlega snyrt með hringi i eyr-
um, og fær sér gjarnan vfn með
matnum. Hún er fjögurra barna
móðir (börnin eru á aldrinum 18
til 27 ára) og gekkst i eina tíð
mjög upp i húsmóðurhlutverkinu.
En þar kom að hún varð yfirkom-
in af sálrænum vandamálum og
lagðist i þunglyndi, og óskaði sér
um tima þess eins að mega deyja.
En þegar neyðin er stærst er
hjálpin næst, og mitt i þessum
sálarkvölum rofaði til og kenning
hennar um hinn „innri bata” tók
að þróast. Nefnist sá sem öðlast
„innribata”endurborinn kristinn
maður. Nú talar hún frjálslega og
ófeimin um kraftaverk og lýsir
iðulegum heimsóknum guðs til
sin
Ruth og Jimmy Carter.
Ruth Stapleton hefur nú stund-
að lækningar og trúboð i 17 ár á
sinn rólega hátt og einungis á-
hangendur hennar vitað til henn-
ar. En nú er hún og starf hennar
skyndilega i sviðsljósinu vegna
hins nýkjörna forsetaefnis. Hún
viðurkennir að margir sem vinna
að framboði Carters áliti starf-
semi hennar geta skaðað hann.
En Carter sjálfur hefur engar á-
hyggjur af þvi, og i augum Ruth
skiptir það öllu máli.
Carter hefur ekki stundað ihug-
un með systur sinni, þótt margir
ættingja hennar hafi gert það,
Þ.á.m. börn hennar, en húnsegist
ekki mundu hika við að neyða
hann til þess, ef hún yrði þess vör
að sálrænir erfiðleikar steðjuðu
að.
Ruth og bróðir hennar voru
nánir vinir á æskuárum sinum á
hnetubúgarðinum i Plains,
Georgia.þar sem þau ólust upp á-
samt tveimur öðrum systkinum.
Carter er fimm árum eldri en
Ruth, þau eru enn miklir vinir, og
hann kallar hana Gersemi
(Precious), — og ekki dregur það
úr vinskapnum að Carter kvænt-
ist beztu vinkonu Ruth, Rosalyn
Smith. „Hann er heittrúaður, og
éger sú eina, sem þekkir þá hlið á
honum”, segirRuth. En það mun
mála sannast að margir ráðgjaf-
ar Carters eru þess mjög eggj-
andi að hann stilli meira i hóf trú-
Ruth Carter Stapleton kynnir bók sina i New York. Bakvið syngur fólk úr fylgdariiöi hennar guöi
lof og dýrö.
m ... '
Systir Carters
stundar trúboð
og sálrænar
lækningar
— Hún vinnur jafnt fyrir Guð
og bróður sinn
-