Tíminn - 01.08.1976, Blaðsíða 8
8
TÍMINN
Sunnudagur 1. ágúst 1976.
Evrópumeistaramót
unglinga hefst í dag
Eins og kom fram i Timanum
i siðustu viku,-þá er islenzka
unglingalandsliðið i bridge á
leið til Sviþjóðar, þar sem það
mun taka þátt i Evrópumóti
unglinga. Þetta er i 5. sinn, sem
það mót er haldið og hafa ís-
lendingar tekið þátt i þvi einu
sinni áður eða_i Kaupmanna-
höfn 1974 þar s’en* þefr nöfnuöu i
12. sæti af 20.
Sveitin, sem fer út á þetta mót
er greinilega mjög vel skipuð,
en i sveitinni eru: Helgi
Sigurðsson, Helgi Jónsson,
Sigurður Sverrisson, Sverrir
Ármannsson, Jón Baldursson og
Guðmundur P. Arnarson.
Þessi sama sveit er núverandi
Reykjavikurmeistarar og þeir
höfnuðu i öðru sæti á Islands-
mótinu. Þvi er engin furða, að
margir búast við miklu af liðinu
og nokkrir af fróðustu mönnum
okkar um þessi málefni vilja
bendla sveitina við verðlauna-
sæti.
Mótið, sem hefst i dag,
stendur fram á n.k. laugardag,
en fri verður á miðvikudaginn.
18 þjóðir taka þátt I Evrópu-
mótinu að þessu sinni og eru það
sömu þjóðir og siðast, nema
hvað Grikkland og Sviss eru
ekki með nú.
Timinn mun eftir beztu getu
reyna að færa lesendum sinum
fréttir af mótinu.
Eitt spil af
unglingalandsliðsæfingu
Hér er spil, sem kom fyrir á
einni af æfingum unglinga-
landsliðsins i sumar. Helgi
Sigurðsson i suður opnaði á
spaða, Helgi Jónsson i norður
sagði 2 hjörtu, suður 3 spaðar,
norður 4 spaðar, sem varð loka-
samningurinn. Guðmundur Páll
i vestri spilaði út tigulkóng.
NORÐUR S. 975 H. K D T. A G L. x x x
VESTUR AUSTUR
S. S. D 108
H. 10 9 x x T. KD x xx H. AG x
T. xx xx
L. G 10 xx L. D x x
S. a1k G 6432
H. x
T. xx .
L. AKx
Þegar lesandinn sér allar
hendurnar, þá er auðvelt að
mæla með spaðasviningunni.
En auðvitað sá Helgi Sigurðsson
ekki allar hendurnar og ef hann
ætlaðtað svina, þá varð hann að
gera það strax iöðrum slag, þvi
hann á enga aðra innkomu en
tigulásinn. En hvers vegna að
svina, þegar likurnar eru mun
meiri, að drottningin falli önn-
ur eða blönk?
En þrátt fyrir þessa stað-
reynd, þá svinaði Helgi og vann
sitt spil léttilega. Heppni? Alls
ekki. Eftir að hafa tekið útspilið
með tigulás, þá spilaði hann
smáum spaða og þegar Jón
Baldursson i austri kom með
spaða,þá vissisagnhafi aðengu
máli skipti þótt vestur fengi
slaginn, jafnvel á blanka drottn-
ingu. Þvi þá skiptist spaðinn 2-1
og sagnhafi á innkomu á niuna i
blindum og getur kastað laufi i
hjartaháspil. Frábær öryggis-
spilamennska.
bridge
lslenzka unglingalandsliðið I bridge, sem nú tekur þátt i Evrópumótinu. Talið frá vinstri: Sverrir
Armannsson, Helgi Sigurðsson, Jón Baidursson, Guðmundur P. Arnarson, Helgi Jónsson,
Sverrisson og Páll Bergsson fyrirliöi án spilamennsku.
„Vonast eftir verðlaunasæti"
sagði Páll Bergsson, fyrirliði
unglingalandsliðsins
Páll Bergsson, fyrirliði isl.
unglingalandsliðsins (án spila-
mennsku), er þekktur bridge-
spilari og hefur m.a. þrisvar
sinnum tekið þátt i landsliðs-
keppnum. Á hans herðum hefur
hvilt val og þjálfun núverandi
unglingalandsliðs. Við báðum
Pál að segja okkur eitthvað frá
undirbúningnum.
Hvernig var þetta lið valið?
Upphaflega voru valin 9 pör
til æfinga og voru spilaðir 6 leik-
ir frá miðjum febrúar og fram i
april. Þá höfðum við valið það
unglingalandsliðið, sem nú fer á
Evrópumótið i Sviþjóð.
Hvernig hefur æfingum verið
háttað?
I rúman mánuð hafa æfingar
staðið yfir af fullum krafti. Við
höfum hitzt svona 3-5 sinnum i
hverri viku, þótt allir strakarnir
hafí ekki alltaf verið á æfing-
unni. Þar höfum við spilað leiki
og reynt að fá góða menn á móti
okkur. T.d. spilaði liðið tvisvar
við Islandsmeistarana.
Þá höfum við stundum spilað
tilbúin spil, sem bæði geta verið
lærdómsrik og svo hafa þau ver-
ið þannig sniðin, að strákarnir
hafa ekki gleymt að vera var-
kárir. Einnig höfum við haft
samræðufundi. Á þessum æfing-
um höfum við notið liðsinnis
Einars Þorfinnssonar, hins
gamalkunna landsliðsspilara.
En si'ðustu vikuna fyrir mótið
höfum við svo tekið okkur hvild.
Og hvernig lýst þér svo á mót-
ið?
Það verða spilaðir þrir leikir
á hverjum degi nema tveir á
laugardegi og svo er fri á mið-
vikudeginum, þannig að þetta
Páll Bergsson, fyrirliði ung-
lingalandsliðsins.
er nokkuð strangt prógramm.
Það ætti þó ekki að koma að sök,
þvi strákarnir eru i mjög góðri
þjálfun og hafa vanizt langri
spilamennsku.
Fyrstu fimm umferðirnar
verða áberandi erfiðastar. Þá
spilum við m.a. við núverandi
Evrópumeistara, Sviana svo og
við Norðmenn, sem eru núver-
andi Norðurlandameistarar. Ef
við komumst slysalaust frá
tveimur fyrstu dögunum, þá
yrði ég nokkuð bjartsýnn á út-
komuna og i raun og veru von-
ast ég eftir verðlaunasæti, sagði
Páll að lokum.
Jakob AAöller um nýju bridgelögin:
Haldið áfram þeirri þróun að að
skilja keppnis- og rúbertubridge
í vor kom út á vegum B.S.t.
alþjóðalög um keppnisbridge,
sem voru þýdd af Jakobi Möller
lögfræðingi. Jakob er einnig
þekktur landsliðsspilari og var
fyrirliði isl. unglingalands-
liðsins á siðasta Evrópumóti.
Við ræddum stuttlega við hann
um nýju bridgelögin svo og för
unglingalandsliðsins til
Sviþjóðar.
Hver er helzta breytingin,
sem hefur oröið á bridgelögum
og kemur fram i þessari útgáfu?
Það má segja, að hér sé um að
ræða 5 verulegar efnisbreyt-
ingar, sem miða að þvi aö að-
skilja keppnisbridge og
rúbertubridge og er þvi þeirri
þróun haldiö áfram.
Það er mikilvægt, aö það
komi fram, að þessum lögum er
ekki ætlað að koma i veg fyrir
svindl, heldur eru þetta frekar
velsæmisreglur, sem við
nefnum svo. Það er verið
aöskilgreina aöferðir og ákveða
bætur, þegar spilari brýtur af
sér hvort sem það er vegna
slysni eða athugunarleysis.
Þessarvelsæmisreglur eru tvi-
mælalaust til mikilla bóta.
-Nú hefur þú verið fyrirliði
unglingalandsliðsins og einnig
spilað meö þessum strákum i
sveit hérna heima. Hverju
mundir þú vilja spá um
árangurinn á mótinu, sem hefst
i dag?
1 yngstu aldursflokkunum eru
alltaf miklar breytingar, þvi
spilararnir missa þátttökurétt-
inn, þegar þeir verða of gamlir.
En okkar sveit er skipuö
strákum, sem allir hafa áður
spilað á mótum erlendis. A
siðasta Evrópumóti, hafði
enginn i þeirri sveit neina
reynslu, sem er auövitað mjög
bagalegt. Þrátt fyrir það náðu
þeir 12. sæti, sem hlýtur að
teljast mjög góöur árangur. En
nú eru þeir ekki einungis búnir
að öðlast reynslu erlendis,
heldur eru þeir einnig búnir að
öðlast reynslu hérna heima sem
toppspilarar. Ég veit að margar
af erlendu sveitunum, sem voru
hvað beztar á siðasta móti eru
nú skipaðar að einhverju leyti
nýliðum. Þvi finnst mér ekki
fjarstæðukennt að spá strákun-
um verðlaunasæti á þessu
Evrópumóti.