Tíminn - 01.08.1976, Blaðsíða 14

Tíminn - 01.08.1976, Blaðsíða 14
Framleiddu 18.000 reiðhjól og auk þess barnakerrur og hjólastóla Rætt við Harald V. Ólafsson, ræðismann og fyrrverandi forstjóra Fólkans um reiðhjólaframleiðslu og fl. Gamla húsiö að Laugavegi 24, sem þá var númer 24 og 24 A. Þá var Brynja i austurendanum og Fálkinn i vesturendanum. ólafur Magnús- son keypti siðan húsið og var Fálkinn þar til húsa til ársins 1970, er flutt var að Suðurlandsbraut 8. Hljómplötudeild hefur þó enn aösetur á Laugaveginum og einnig á Suðurlandsbraut. (Málverk Sigfúsar Halldórssonar). Bakhúsið á Laugaveginum. Þar voru verkstæði og starfsstöövar Fálk- ans tii húsa. t Laugavegur 24. Málverk Sigfúsar Haildórssonar. Haraldur V. Ólafsson, ræðis- maður og fyrrverandi forstjóri Fálkans hf. er löngu þjóðkunnur maður fyrir störf sin á viðskipta- sviðinu og fyrir brautryðjenda- starf sitt við hljómplötuútgáfu. Haraldur hóf störf hjá Fálkanum árið 1922 og starfaði óslitið hjá fyrirtækmu til ársins 1974, er hann lét þar af forstjórastarfi fyrir aldurs sakir. Haraldur hefur þvi verið með frá byrjun. s Haraldur á enn sæti i stjórn Fálkans, þótt hann hafi látið af daglegum störfum. Þótt reiðhjólaverzlun, reið- hjólasmiði og viðgerðir sé merk- ur þáttur i handverki og verzlun, þá hefur mjög litið veriö ritað um þessa starfsgrein, og sem dæmi um þetta, þá stendur ekki eitt orð i Iðnsögu íslands um reiðhjóla- viðgerðir, eða reiðhjólasmiði, nemá getið er um 17 reiðhjóla- verkstæði i landinu árið 1942 i skrá um iðju og handiðnað. Þó er visast að þessi fyrirtæki hafi verið fleiri en þarna er talið. Söng við rennibekkinn Eitt fremsta fyrirtækið i þess- ari grein er og hefur verið Fálk- inn hf, og stofnandi Fálkans Ólaf- ur Magnússon, trésmiður, er hóf reiðhjólaviðgerðir árið 1904 verð- ur að teljastbrautryðjandi i' þessu fagi hér á landi. Við hittum Harald V. Ólafsson að máli og spurðum hann fyrstogfremstum Fálkann fyrrá árum og um reið- hjólin. Hann hafði þetta að segja okkur i mjög stuttu máli: — Faðir minn Ólafur Magnús- son, trésmiður var fæddur árið 1873. Hann fékk mjög snemma áhuga á reiðhjólum og hóf, eins og fram kemur, viðgerðir á reiðhjólum árið 1904 og þessar viðgerðir urðu fullt starf hans frá árinu 1910 og hann vann allt sitt líf við reiðhjól, þar til hann lézt árið 1955. Pabbi var trésmiður, en samt var hann ótrúlega hagur á járn, en það voru margir trésmiðir i þá daga, og til marks um það er að hann var fyrsti logsuðumaðurinn hér á landi ásamt Sigurhans Hannessyni i ísaga. Hann aflaði sér fljótlega góðra verkfæra og tækja og átti m.a. rennibekk fyrir járn, og hann hafði sérstaka ánægju af þvi að renna. Söng þá gjarnan viðvinnu sina. Arið 1924 keypti hann Fálkann, sem var litið verkstæði sem verzlaðieinnig með hjól. Verzlun- in var til húsa að Laugavegi 24. Þetta var griðarlega stórt timburhús og þvi var skipt i tvennt, og hét þá Laugavegur 24 og 24 A. Ólafur Ámundason verzl- aði I austurendanum fyrst, og siðan Guðmundur i Brynju. Gamli maðurinn keypti siðan allt húsið af Guðmundi i Brynju, hækkaði það og breytti þvi' og siðan notuðum við það allt undir Fáikann. Reiðhjólaviðskiptin vom mjög mikil hér á landi þegar eftir fyrra striðið, eða frá 1922 væri ef til vill réttara að segja og allt til ársins Haraldur V. Ólafsson aðalræðismaður og fyrrverandi forstjóri Fálk- ans. 1931, er aftur fór að draga úr vegna kreppunnar. Semdæmium þetta,þá seldum við á annað þúsund reiðhjól árið 1929, sem verður að teljast geysi- mikið i ekki stærri bæ en Reykjavik var þá, og auðvitað verzluðu fleiri með reiðhjól en Fálkinn. Reiðhjólið var vinsælt og nauðsynlegt i þá daga, þvi ekki voru þá neinir almenningsbilar, skellinöðrur eða svoleiðis. Reiðhjólaframleiðsla Fálkans — Svo hóf Fálkinn reiðhjóla- framleiðslu. Hvenær var það? — Við fluttum reiðhjól inn og reyndum að fá þau frá Bretlandi, en svo tók fyrir það i striðinu, þá hófum við að framleiða hjól. Við höfðum dálitla reynslu á þessu sviði, þvi við höfðum hafið fram- leiðslu á barnakerrum. Fram- leiddum nokkurhundruðstykki af þeim á árunum 1937-1938. Við byrjuðum reiðhjólafram- leiðsluna árið 1940 og það var við margvislega örðugleika að etja. Bragi bróðir minn átti mestan heiðurinn að þvi að þetta tókst. Bragi var nefnilega góður smiður eins og pabbi, þótt verk- fræðistörf yrðu hans fag siðar. Við vorum allir sæmilegir smiðir strákarnir, en hann var beztur i þvi. Hann var þá innan við tvitugt, þegar hann fékk áhuga á þvi að framleiða reiðhjól. Ég man að hann var alltaf að spyrja mig um það hvernig þetta væri gert úti i löndum, þvi auðvitað hafði ég séð margar reiðhjólaverksmiðjur, þegar ég var i innkaupaferðum erlendis, en þær fór ég yfirleitt árlega til þess að gera innkaup fyrir gamla manninn. Ég reyndi að lýsa þessu fyrir honum eins og ég gat. Vel i stakk búnir fyrir reiðhjólaframleiðslu — Þetta var venjulega þannig, að þeir framleiddu grindina, gaffalinn og stýrið. Þeir sem lengra voru komnir framleiddu bretti. Aðra hluti keyptu þeir frá sérverksmiðjum, drif pedala, sæti, hjól og teina. Þetta átti við um stærstu verksmiðjur lika, þær framleiddu ekki allt hjólið, aðeins grindina og áðurtalda hluti, hitt var keypt frá öðrum og sett saman. — Fálkinn var um margt vel i stakk búinn til þess að hefja slika framleiðslu. Við höfðum haft með höndum gljábrennslu á reiðhjól- um og nikkelhúðun. Við vorum á undan timanum með það siðar- nefnda og var það einkum ætlað til þess að endurnýja nikkel- húðaða hluti. — Nú svo pantaði ég efni frá Bretlandi til framleiðslunnar. Það var allt mjög vandað og af beztu gerð. Framleiðslan gekk þannig fyrir sig að ég keypti efnið allt tilsniðið, sem var venja, i vissar stærðir og þetta var svo sett saman og „brasað” með gasi, — með gas- pistólu.... Til þess að þetta gæti tekizt sem bezt og slaglóðið ^ði nú gailalaust og biti sig i stalið var borið bórax á samskeytin. Þessu fylgdi sá vandi að þessi buris, eða bóraxið breyttist i gler- ung og settist á samskeytin og sem verra var, ekkert bókstaf- lega virtist geta unnið á honum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.