Tíminn - 01.08.1976, Page 9
Sunnudagur 1. ágúst 1976.
TÍMINN
9
Hjalti Elíasson, forseti B.S.Í.:
Með þátttöku í
alþjóðakeppnum
Slslaíatalaíataíálalaíaíaípísísíalálaígtá
Verktakar —
Sveitarfélög
minnum við á
tilveru þjóðarinnar
og höldum uppi
merki íslands
3820
grafa —
MOKSTURSVÉL
er til sýnis og sölu — Leitið upplýsinga
Flestir islenzkir bridgespil-
arar þekkja til Hjalta Elías-
sonar bæði sem landsliðsspilara
svo og sem núverandi forseta
Bridgesambands tslands. Hjalti
hefur spilað bridge i meir en 20
ár og þekkir þvi vel ti) þróunar
bridge-mála hér á landi. Hann
hefur tekið þátt i a.m.k. 16
landsliðskeppnum, en fyrsta
mót hans erlendis var Evrópu-
mótið 1960, sem haldið var á
ttaliu. Þar hefúr hann sennilega
fyrst komizt i kynni við sýn-
ingartöflurnar, sem reyndar
voru mjög ófullkomnar á þeim
tima, þvi veturinn 1961 smiðaði
Hjalti mjög fullkomna sýn-
ingartöflu, sem er enn i fullum
notum hjá Bridgesambandinu
og margir bridgespilarar hafa
séð. Tafla Hjalta er reyndar enn
mjög fullkomin miðað viö er-
lendar sýningartöflur, þvi
viðast hvar notast þeir við
myndvarpa, sem eru frekar ein-
faldir og leiðinlegir.
Fyrir utan að vera mikill og
góður spilari, þá hefur Hjalfi
haft nokkur afskipti af félags-
málum bridgemanna. Hann
hefur verið forseti Bridgesam-
bands Islands (B.S.Í.) siðan
1974 og var áður formaður
bridgefélags Reykjavikur i tvö
ár.
1 tilefni af för islenzka ung-
lingalandsliðins til Sviþjóðar,
nýutkomnum bridgelögum
Alþjóðasambandsi ns, sem
Jakob Möller þýddi, meistara-
stigum B.S.l. og fleiri atriðum,
þá ákváðum við að ræða við
Hjalta umþessa þætti og bridge-
mál almennt.
Bridge: í fyrsta lagi
hugvisindi.
Svo við byrjum á byrjuninni,
hvað er bridge?
Bridge er fyrstogfremsthug-
ariþrótt. En það er einnig sam-
bland af fleiri greinum. Bridge
er i'þrótt, þvi stöðugt eru að
koma fyrir spennandi augna-
blik. Bridge er visindi, þvi spil-
arar nota visindalegar aðferðir
við lausn sumra spila. Við
byggjum t.d. þekkingu okkar
mikið á h'kindafræöinni. Og
bridge getur einnig verið list,
þvi sum spil geta verið leyst á
svo einfaldan og fallegan hátt,
að undursamlegt er á að horfa.
En við megum aldrei gleyma,
að bridge var hugsað sem tóm-
stundargaman og það er það
enn.
Um Bridgesamband
islands.
Hvernig hefur B.S.t. þróazt i
stjórnartið þinni?
Þegar ég tók við Bridgesam-
bandinu,þá var starfsemi þess i
algjöru lágmarki. Við höfðum
enga skrifstofu, enga bóksölu og
fjárhagurinn var bágborinn.
Nú erum við komnir með
skrifstofu og bókasölu, sem er
ákaflega mikilvægt, þvi bóka-
Hjalti Eliasson, forseti Bridge-
sambands islands.
búöir eru með frekar takmark-
aðan fjölda bókatitla. En hér á
skrifstofunni höfum við senni-
lega eitthvað um 50 bókatitla
1 dag eru 28 félög aðilar að
B.S.I., en fjöldi félaganna er
ekki alveg ljós. Það er þó ekki
aðalatriðið, þvi við vitum að
gifurlegur fjöldi manna og
kvenna spila bridge að stað-
aldri, þótt þeir séu ekki aðilar
að neinum samtökum. Ég
mundi gizka á, aö 10% af þjóð-
inni spili bridge að staðaldri.
Langstærsti tekjuliður Sam-
bandsins er firmakeppnin, en
auk þess er bikarkeppnin mikil-
væg, þar sem ágóðinn af þeirri
keppni rennur beint til ungl-
ingastarfsins. Stærsti útgjalda-
liðurinn er svo utanfarir.
1 þessu sambandi vil ég endi-
lega að komi fram, að öll vinna
er unnin, I sjálfboðavinnu og
hafa þar margir lagt á sig
óeigingjarna vinnu.
Þátttaka i alþjóða-
keppnum.
Nú segir þú að utanfarir séu
stærsti útgjaldaliðurinn. Iiefur
þátttaka I erlendum mótum
ekki verið gagnrýnd?
Jú, en gangrýnendum sést
yfir nokkur mjög mikilvæg
atriði. 1 fyrsta lagi þá erum við
aðilar að alþjóöasamtökum og
sem meðlimur i slikum, þá
þýðir ekki að vera félagsskitur.
Méð þvi að taka þátt i mótum
erlendis, þá höldum við uppi
merki Islands og minnum á til-
veru þjóðarinnar. Árangur
islenzkra bridgemanna á
alþjóðamótum er lika það
góöur, að sjálfsagt er aö halda
þvi áfram.
BAGGAKASTARI
Afgreiðum þennan sterka kastara af lager
EIGUM EINNIG BAGGASLEÐA OG BAGGAKVÍSLAR
laíalsIalalaíalalálaísIalalalalaSIaíalalaSlsilalalslslalalalsls
Þviersorglegttilþess að vita,
hve lélegan stuðning við höfðum
fengið hjá hinu opinbera þvi i
fáum greinum hafa islenzkir
keppendur staðið sig jafnvel og
einmitt f bridge. Við verðum að
leggja áherzlu á, að þetta er
ekki einungis einkamál iridge-
manna. Við spilum þarna undir
merki Islands ogerum fulltrúar
þjóðarinnar.
Lélegar undirtektir
stjórnvalda
Hvaða stuöning hafið þið
hiotið hjá stjórnvöldum?
Þvi er fljótsvarað, þar sem
stuðningurinn er sáralitill eða
100 þús. kr. frá islenzka rikinu.
Þetta er mjög einkennileg
afstaða, þvi' Bridgesambandið
vinnur mjög gott og þarft þjóð-
félagslagt verk. Ég .hef þegar
minnzt á utanlandsferðirnar, að
við séum þar að keppa fyrir
hönd íslands. Varðandi ung-
lingastarfsemina, þá er þetta
enn einkennilegra. Erlendis er
þetta starf litið allt öðrum
augum og þvi gefinn mikill
gaumur. T.d. bara i Sviþjóð þá
veita þeir 28 miljónum til ung-
lingastarfsins. Þótt viö förum
ekki fram á svo mikið, þá get ég
ekki skilið annað en að við
ættum skilið að fá nokkur
hundruð þúsund til að hjálpa
okkar unglingum. En þarna
tölum við alveg fyrir daufum
eyrum.
$ Samband islenzkra samvinnufélaga VÉLADEILD
Armula 3 Reykjavik sími 38900
SSIálálalalsIalaláSIálalalálaláíalalgls
Auglýsið í Tímanum
Samband islenzkra samvinnufélaga
VELADEILD
Armula 3 Reykjavik simi 38900
E]E]E]E]E]E]E]E]E]B]E]G]E]E]E]E1E]E]E]E]E1EIE]E]Q]BÍG]B]Q]Q]B]Q