Tíminn - 01.08.1976, Page 13
Véladeild
Véladeild Fálkans var stofnuð
árið 1955 og þar eru seldir marg-
vislegir vöruflokkar. Fyrst og
fremst eru þetta allskonar legur,
kúlulegur þar á meðal, rúlluleg-
ur, keðjur og tannhjól. Auk þess
ásþétti, viftureimar og allskyns
reimar og tannhjól.
Auk þess eru seldar vélar til
fiskiðnaðarins, dælur, skilvindur,
þurrkarar, katlar og sjálfvirk
stjórntæki.
Fljótlega var byrjað að flytja
inn rafmótora og girmótora og
loftræstikerfi.
Skrifstofur Fálkans eru að Suðurlandsbraut 8, í stórhýsi Fáikans. A skrifstofunni vinna tólf manns, en bókhald fyrirtækisins er unnið I tölvu
Loftleiða hf.
Hverjir verzla
við Fálkann
— Hverjir eru helztu viðskipta-
vinir véladeildarinnar?
— Þaðeru helztalls konar véla-
verkstæði. Bilaverkstæði, vél-
smiðjur og svo útgerðin og fisk-
verkunarstöðvarnar. Annars má
segja að svo til allir, sem fást við
vélar verzli eitthvað við okkur.
Véladeildin er tæknideild og
hefur frá fyrstu tið verið i' forsjá
verkfræðinga og tæknifræðinga,
sem þekkja þarfir vélaiðnaðarins
og geta verið ráðgefandi.
Þarna er unnt að leysa bæði
flóknar þarfir einstakra kaup-
enda og svo þetta venjulega, sem
alltaf er þörf fyrir vegna nýsmiða
og vegna viðhaldsins.
Véladeildir af þessu tagi láta
ekki mikið yfir sér, þar eru þús-
undirhluta, smáir og stórir, en ef
eitthvað vantar þá er nú voðinn
vis. Véladeildin krefst þvi mjög
mikils skipulags, bæði fyrirtækis-
ins vegna og eins vegna við-
skiptavinarins. Véladeildin hefur
lika stækkað ört og er nú eins og
fram kemur orðin stærsta deild
Fálkans. Auk vélanna og véla-
hlutanna eru þar seld alls konar
hjól, taliur og lyftarar, svo og
stálrör, eirrör og legubrons, en
það væri að æra óstöðugan að
telja það allt upp hér i stuttu
blaðaviðtali.
Heimilistækja-
deild
— Loks er svo heimilistækja-
deildin, en hún var stofnuð árið
1971 og er því yngst af deildum
Fálkans.
Upphaflega var deildin stofiiuð
utan um Hoover-umboðið sem við
tókum þá við af Magnúsi Kjaran.
Við höfðum aðstöðu hér til þess að
fjölga vöruflokkum og heimilis-
tæki voru þegar orðinn hluti af
starfssviði okkar. Við flytjum inn
þvottavélar og ryksugur frá
Hoover, en kringum það er rekin
i viðtæk varahluta- og viðgerðar-
þjónusta fyrir heimilistækin.
Siðan hafa bætzt við fleiri vöru-
flokkar. Við fengum einkaumboð
fyrir hinar frægu Neff verksmiðj-
ur, sem framleiða eldavélar,
eldavélasamstæður, lofthreins-
ara og fsskápa, en þetta eru
heimsþekktar gæðavörur.
Aherzla er lögð á að byggja
þessa deild vel upp eins og hinar,
að allt sé reist á sem traustustum
grunni.
Þarna eru einnig seld hljóm-
flutningstæki frá Kenwood i Jap-
an og aragrúi rafmagnstækja frá
ýmsum þekktum framleiðendum,
svo sem straujárn, brauðristar,
kaffivélar' nuddtæki, hárþurrkur
og rafmagnsofnar. Sem sagt allt,
sem þarf að vera á boðstólum i
fullkominni heimilistækjadeild.
— Að lokum. Hversu margir
vinna hjá Fálkanum og hvernig
gengur að halda á starfsfólki?
— Hjá Fálkanum vinna 40—50
manns. Sumir starfsmenn hafa
unnið hjá fyrirtækinu áratugum
saman, aðrir eru nýkomnir til
starfa. Það er þó hægt að skýra
frá þvi að hér starfa menn gjarn-
an mjög lengi, helzt marga ára-
tugi.
Talið er að það sé ekki síður
góðu starfsfólki að þakka að
fyrirtækið hefur starfað svo lengi
og náð þeim árangri, sem náðst
hefur, og stjórn fyrirtækisins, en
hana skipa nú þeir
Páll Bragason, formaður
Haraldur V. Ólafsson, varafor-
maður
Björn H. Jóhannsson, ritari,
sagði Ólafur Haraldsson, forstjóri
að lokum.
J.G.
Halidór Þorbjörnsson, eizti nú-
verandi starfsmaður Fálkans og
hefur starfað við fyrirtækiö I 48
ár.
Björn H. Jóhannsson, tæknifræð-
ingur. Hann á sæti i stjórn Fálk-
ans og er deildarstjóri heimilis-
tækjadeildar.
Amundur Jóhannsson, tækni
fræðingur véiadeildar.
Jón óiafsson, verziunarstjóri i
véladeild.
Páll Bragason, stjórnarformaöur
Fálkans. Páll er viðskiptafræö-
ingur að mennt. Páll er deildar-
stjóri reiðhjóla- og véladeildar.
Steinunn S. Jónsdóttir, gjaldkeri
Jón Alfonsson, skrifstofustjóri