Tíminn - 01.08.1976, Síða 19

Tíminn - 01.08.1976, Síða 19
Sunnudagur 1. ágúst 1976. TÍMINN 19 (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri: Steimgrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur f Edduhús- inu viö Lindargötu, sfmar 18300 —-18306. Skrifstofur f Aöalstræti 7, sfmi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug- lýsingasfmi 19523. Verð i lausasölu kr. 50.00. Askriftar- gjaid kr. 1000.00 á mánuði. Blaðaprent h.f. • • Oryggi Evrópu Um þessar mundir er rétt ár liðið siðan undir- ritaður var i Helsinki sáttmálinn um öryggi og samvinnu i Evrópu. Sáttmálinn var undirritaður af fulltrúum þrjátiu og þriggja Evrópurikja, auk fulltrúa Bandarikjanna og Kanada. Aðild Banda- rikjanna og Kanda byggist á þeirri viðurkenningu allra hinna aðildarrikjanna, að þessi tvö vestur- álfuriki væru svo nátengd Evrópu, að þar yrði ekki á milli skilið, og þvi væri sjálfsagt, að þau ættu þátt i samvinnu um þryggismál þar. Tilgangur sáttmálans um öryggi og samvinnu i Evrópu er fyrst og fremst að draga úr spennu, sem stendur i vegi batnandi sambúðar, og skapa þann- ig grundvöll fyrir afvopnun og varanlegan frið i Evrópu. Nokkurra vonbrigða gætir nú sökum þess, að mörgum finnst að litið hafi miðað i þessa átt, á þvi ári sem er liðið frá undirritun samningsins. Flestum er þó ljós breytingin, sem hefur orðið i þessum efnum, siðan kalda striðið stóð hæst. Vonbrigðin stafa að verulegu leyti af þvi, að marg- ir gerðu sér vonir um, að undirritun samningsins yrði til þess að hraða þessari þróun. í rauninni var það óskhyggja, þvi að allar slikar breytingar þurfa sinn tima. Það gildir lika áreiðanlega um þessi efni, að áhrif hægfara og markvissrar þróunar eru betri og öruggari en stökkbreytingar, sem byggj- ast á ótraustum grunni. Að sumu leyti stafa vonbrigðin lika af þvi, að menn gerðu sér vonir um, að sáttmálinn gæti haft áhrif á stjórnarhætti innanlands i aðildarrikjun- um. Við sliku var þó ekki að búast, a.m.k. ekki i fyrstu. Það er lika eitt grundvallaratriði sáttmál- ans, að „þátttökurikin munu ekki á neinn hátt, beinan eða óbeinan, hvert fyrir sig eða sameigin- lega hlutast til um innanrikismál, sem falla und- ir lögsögu einhvers annars þátttökurikis”. 1 fram- tiðinni ætti batnandi sambúð þó að geta haft veru- leg óbein áhrif i þessum efnum, t.d. að dregið væri úr ýmsum hömlum, sem hafa verið byggðar á tor- tryggni og ótta. Ýmsir bundu lika þær vonir við öryggissáttmál- ann að hann myndi bráðlega gera óþörf hernaðar- bandalögin, sem nú eru i Evrópu. Þetta var lika alltof mikil óskhyggja. Það er áreiðanlega rétt skoðun hjá Berlinguer hinum italska, að það myndi verða til þess að auka spennu og tortryggni að nýju, ef Atlantshafsbandalagið yrði á þessu stigi fyrir verulegu áfalli, t.d. ef Italia færi úr þvi eða neitaði þvi um flotastöðvar. Svipað gilti um Varsjárbandalagið, ef t.d. Rúmenia færi úr þvi. Þá myndi valdajafnvægið raskast með ófyrirsjáan - legum afleiðingum. Það er lika rétt hjá Berlingu- er, að innan hernaðarbandalaganna er hægt að vinna að þvi að bæta sambúðina i Evrópu, og leggja grundvöll að samningum um afvopnun. Að þessu er lika verið að vinna. Þótt mönnum finnist, að hægt gangi að fram- kvæma ýmiss atriði öryggissáttmálans, er hann eigi að siður mikilvægur grundvöllur fyrir bætta sambúð, sem gæti leitt til afvopnunar og öruggs friðar i Evrópu. Um annan kost er heldur ekki að velja, ef menn vilja ekki fá kalda striðið aftur með öllum þess áhættum. En það verða menn að gera sér ljóst, að þetta getur ekki gerzt á einum degi eða einu ári, heldur hlýtur það að taka tima. Þann tima verða menn að halda vöku sinni og forðast að raska ekki þvi jafnvægi sem náðst hefur, eins og Berlinguer bendir réttilega á. — Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Veikir Schweiker stöðu Reagans? Enn harðna átökin milli Reagans og Fords MARGT bendir til þess, aö Ronald Regan hafi gerzt of veiöibráður, þegar hann tilkynnti siðastliöinn mánu- dag, aö hann hefði þegar ákveöiö varaforsetaefni sitt, ef hann yrði valinn forsetaefni republikana á flokksþingi þeirra, sem hefst I Kansas City 16. þ.m. Fyrir vali Regans varö Richard S. Schweiker öldungadeildar- þingmaöur frá Pensylvaniu en hann er talinn standa einna lengst til vinstri af öllum öldungadeildarþingmönnum republikana og hefur i mörg- um málum beitt sér á þingi fyrir allt öörum sjónarmiöum en þeim, sem Regan hefur haldiö fram. Tilgangur Regans meö þvi aö velja Schweiker til framboös hefur bersýnilega veriö sá, aö hann hefur taliö þaö liklegt til aö vinna framboði sinu fylgi meöal frjálslyndari hluta republikana, sem eru einkum i rikjum á austurströnd Bandarikjanna, þ.e. i New York riki, Pennsylvaniu, New Hersey og Delaware. Af rúm- lega 340 fulltrúum, sem mæta frá þessum rikjum á flokks- þinginu, eru flestir kosnir, án þess aö vera bundnir til aö fylgja ákveönu forsetaefni, en þeir hafa yfirleitt gefiö til kynna, aö þeir myndu styöja Ford. Von Reagans viröist hafa veriö sú, aö einhverjir þessara fulltrúa kynnu aö snú- ast til fylgis viö hann, ef hann tilkynnti Scheiker strax sem varaforsetaefni sitt. ÞEGAR Regan birti þessa ákvöröun sina, stóö dæmiö þannig, aö bæöi fylgismenn hans og Fords töldu forseta- efni sitt sigurvænlegtáflokks- þinginu strax i fyrstu at- kvæðagreiöslunni. Fylgis- menn Fords töldu hann hafa tryggt sér stuöning 1135 fulltrúa, en fylgismenn Regans töldu hann hafa tryggt sér fylgi 1140 fulltrúa, en alls eru fulltrúar 2259 og þarf þvi ekki nema 1130 atkvæöi til aö ná kosningu. Könnun, sem New York Times lét gera um likt leyti benti til þess aö Ford heföi tryggt sér stuöning 1118 fulltrúa og vantaöi þvi ekki nema 12 til viöbótar. Hins Richard S. Schweiker. vegar hefði Regan tryggt sér stuöning 1046 og vantaöi þvi stuöning 84 fulltrúa 105 fulltrúar heföu varizt allra frétta um afstööu sina, en þvi var spáö, aö meginhluti þeirra myndi hallast aö Ford. Hann þótti þvi mun sigurvænlegri. Hins vegar var tekiö fram, aö nokkrir fulltrúar, sem höföu lýst yfir stuöningi viö Ford st- æöu skoðanalega nær Reagan, og þá gætu þeir oröiö ótraust- ir I stuöningi viö Ford. Meöal þeirra voru nokkrir fulltrúanna frá New York, en þeir voru kjörnir óbundinni kosningu, en hafa siðar fyrir orö Rockefellers varaforseta, lýst yfir stuöningi við Ford. Regan mun m.a. hafa haft þessa fulltrúa i huga, þegar hann tilnefndi Schweiker. Hann og liösmenn hans virö- ast hafa gert sér ljóst, aö þvi aöeins heföi hann von um sigur á flokksþinginu, aö hann gæti náö frá Ford ótryggöum fulltrúum, sem voru búnir að lýsa fylgi viö hann. Formlega séö eru rúmlega 900 fulltrúar, sem mæta á flokksþinginu, kjörnir án þess aö vera fyrirfram bundnir af stuöningi viö ákveðiö forseta- efni, en allir nema 105 höföu samkvæmt frásögn New York Times lýst stuöningi annaö hvort viðFordeöa Regan. En þeir hafa frjálst val til aö breyta enn afstööu sinni. Þess vegna munu úrslitin sennilega vera I vafa þangaö til á sjálfu flokksþinginu. VEL MÁ vera, aö Regan vinni fylgi einhverra fulltrúa á þvi, að tefla Schweiker fram. En hann getur lika átt á hættu að tapa fleirum. Sú skoöun virðist helzt rikjandi nú. Meðal hægri manna hjá repu- blikönum mælist valiö á Schweiker illa fyrir. Þeir telja þaö merki þess, aö Regan sé tækifærissinni, og taka þá röksemd hans ekki gilda, aö hann hafi gert þetta til aö sameina báða arma flokksins. 1 þvi sambandi benda þeir á, aö Regan hafi gagnrýnt Carter fyrir aö velja Mondale sem varaforsetaefni, en siöan velji hann mann sem sé álika vinstri-sinnaður. Þetta hefur þegar leitt til þess, aö margir hægri menn hafa snúið baki við Reagan, og er þekktastur þeirra John B. Connally, fyrr- um rikisstjóri i Texas. Hann brást þannig viö, aö hann fór strax á fund Fords og lýsti stuöningi sínum viö hann, en Connally er nú talinn einn vin- sælasti leiötogi republikana. Það vakti ekki aöeins undrun, aö Regan valdi Schweiker, heldur engu siöur, að Schweiker skyldi gerast varaforsetaefni Regans. Svo mikill er skoöana'munur þeirra, ef marka má þingferil Schweikers og ræðu Reagans. Richard Schuits Schweiker varö fimmtugur 1. júni siö- astliðinn. Hann gekk 17 ára gamall I sjóherinn og gat sér þar gott orö. Siðan lauk hann lagaprófi. Hann náði kosningu til fulltrúadeildar Bandarikja- þings 1960 og sat þar i 8 ár. Þá náði hann kosningu til öldungadeildarinnar og hefur áttþarsæti siöan. Undanfarin misseri hefur hann átt sæti I nefnd þeirri, sem hefur rannsakaö náiö CIA, og hefur hann vakiö þar á sér verulega athygli meö þvi að krefjast nýrrar rannsóknar á moröi Kennedys forseta. Ford og Conally. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.