Tíminn - 01.08.1976, Side 23
Sunnudagur 1. ágúst 1976.
TÍMINN.
23
20.00 tslenzk þjóölög I útsetn-
ingu Jóns Ásgeirssonar.
Einsöngvarakórinn og fél-
agar úr Sinfóniuhljómsv.
tslands flytja, Jón Asgeirs-
son stjórnar.
20.30 „Dansleikur á himni og
jörö” Sveinn Asgeirsson
hagfræöingur tekur saman
þátt um Gustav Fröding.
20.55 John Williams leikur á
gitar lög eftir Granados,
Villa-Lobos, de Falla o.fl.
21.00 „Hvitmánuöur”, smá-
saga eftir Unni Eiriksdóttur
Guörún Svava Svavarsdótt-
ir les.
22.00 Fréttir
22.15 Veöurfregnir. Danslög.
Sigvaldi Þorgilsson dans-
kennari velur lögin og kynn-
ir.
23.Fréttir. Dagskrárlok.
sjonvarp
Sunnudagur
l.ágúst
16.00 Krá Olympluleikunum
Kynnir Bjarni Felixson.
18.00 Bleiki pardusinn
Bandarisk teiknimynda-
syrpa.
18.10 Sagan af Hróa hettiNýr,
breskur myndaflokkur um
ævintýri útlagans Hróa
hattar. 1. þáttur Þýöandi
Stefán Jökulsson.
Hlé.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 A reginfjöllum I
Kvikmynd frá ferðalagi
sjónvarpsmanna sumariö
1971 noröur yfir hálendið,
svokallaða Gæsavatnsleiö.
Þarna eru aö mestu regin-
öræfi, en þó eru einstaka
gróöurvinjar inn á milli, til
dæmis i Jökuldal I Tungna-
fellsjökli, sem ekki er
ósennilegt aö hafi á sinum
tima ýtt undir trúna á
grösugar útilegumanna-
byggöir. Umsjón Magnús
Bjarnfreðsson. Kvik-
myndun örn Haröarson.
Hljóösetning Oddur
Gústafsson. Aður á dagskrá
29. aprfl 1973.
21.05 Skemmtiþáttur Don
Lurios Auk Don Lurios og
dansflokks hans skemmta i
þessum þætti: Cindy og
Bert, Pop Tops og Mireille
Mathieu. Þýöandi Auöur
Gestsdóttir.
21.35 Frá Ólympiuleikunum.
22.20 Leiöin til Hong Kong
(The Road to Hong Kong)
Bandarisk gamanmynd frá
árinu 1961. Aðalhlutverk
Bing Crosby, Bob Hope og
Joan Collins. Tveir ná-
ungar, Harry og Chester,
komast af tilviljun yfir elds-
neytisformúlu, sem glæpa-
samtök eru á höttunum eftir
og lenda i klóm bófanna.
Þýðandi Dóra Hafsteins-
dottir.
23.50 Aö kvöldi dagsSéra Gisli
Kolbeins,prestur aö Melstaö
I Miöfiröi, flytur hugvekju.
00.00 Dagskrárlok.
Mánudagur
2. ágúst.
17.00 Frá Ölympiuleikunum
Kynnir Bjarni Felixson.
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Auglýsingir og dagskrá..
20.40 tþróttir Umsjónarmaöur
Bjarni Felixson.
21.10 Frá Listahátiö 1976
Sýning franska látbragðs-
leikarans Yves Lebretons i
Iðnó 15. júni siðastliðinn.
Stjórn upptöku Andrés
Indriðason.
22.30 Ugla sat á kvisti
Skemmtiþáttur með tónlist
og léttu efni af ýmsu tagi.
Rifjuð upp saga „rokksins”
á árunum 1954—60. Meöal
gesta þáttarins eru Lúdó-
sextettinn og KK-sextettinn.
Umsjónarmaður Jónas R.
Jónsson. Aöur á dagskrá 2.
febrúar 1974.
23.35 Dagskrárlok.
ET í JÖTUNHEIMUM
FJALLANNA 3,
svarthærðog nefsmá, hiédræg og feimin, en komst fljót-
lega í góðan kunnigskap við Mörtu. Þótt hún liti til Jónas-
ar, var það aðeins í laumi, en enginn veitti því athygli.
Kona Lars bar gestunum kaf f i, en hvorki annar bollinn
né sá þriðji nægði til þess að vinna bug á hátíðabragnum
sem var á Turra. Það leyndi sér ekki, að Lappinn var
kominn í mikilvægum erindagerðum, og til þess benti
það einnig, að mæðgurnar voru báðar í viðhafnarbún-
ingi. Jónasi fannst framkoma Lappans tortryggileg.
— Hvað segirðu mér af hreindýrunum? spurði hann og
það var auðráðin gáta, hvaða hreindýr hann átti við.
Það birti yf ir Turra. Það var eins og honum hefði verið
réttóvæntgjöf, og hann greip umræðuefnið fengishendi.
Hreindýrin! Jú, þau voru feit og falleg. Þau voru bæði
með kálf um — þetta voru af bragðs skepnur, sem Jónas
átti. En hann skyldi ekki hugsa um að slátra þeim í
haust. Þau voru ung, og báðir kálfarnir voru kvígur.
Jónas hleypti í brúnirnar. Honum gazt ekki að uppá-
stungu Lappans. Hafði Pétur haft rétt fyrir sér — að
maður vissi aldrei, hvað maður hreppti í skiptum við
Lappana, fyrr en maður hefði tekið við því? — Hann
spurði, hvort hann mætti sækja hreindýrin daginn eftir.
Turri kinkaði kolli. Já, hann gat það.En það var synd
að slátra svona ungum hreinkúm. Það var betra að láta
þær ganga með hjörðinni. Þá eignaðist hann aftur kálfa
næsta ár.
Jónas velti vöngum. Voru þess dæmi, að maður með
fasta búsetu ætti hreindýr, nema dýr og dýr, sem hann
keypti til frálags? Nei! Og ef hann léti Turra ráða —
hvernig gat hann vitað, hvort hann fengi það, sem hon-
um bar?
Turra hef ir ef til vill grunað, hvað Jónas var að hugsa
um því að nú sagði hann, að hann hefði markað bæði
kýrnar og kálfana, svo að engin misgrip ættu sér stað.
Lappinn rétti fram vinstri lófann og sýndi með fingrim
hvernig hreindýramark Jónasár var.
Jónas gat ekki dulið undrun sóna. Hreindýramark!
Lapparnir litu á hann eins og einn af f jölskyldu sinni.
Enginn óviðkomandi maður fékk að eiga hreindýra-
mark. Það vissi hann.
Lars varð líka steinhissa, þegar honum skildist loks, að
sonur hans hafði eignazt hreindýramark.
— Þetta eru ekki sem verst tíðindi, sagði hann. Settu
dýrin á. Við getum keypt fáein hreindýr til slátrunar —
það er ekki svo mikið kjöt, sem við þurfum. Það hefir
ekki lengi veriðeins góðsilungsveiði og í sumar.
Kona Turra tók vandlega eftir öllum svipbrigðum,
sem urðu á andliti Jónasar. Við og við leit hún spyrjandi
á Lars. Forðum hafði það verið hún sjálf — nú var um
það teflt hvernig hægt var að búa í haginn fyrir aðra.
Hún rak olnbogann í síðuna á manni sínum, svo að lítið
bar á. Hann ók sér vandræðalega, þótt nú væru allar lík-
ur til, að Jónas féllist á uppástungu hans. Það var mikil-
vægt erindi, sem honum var á höndum, og það var eins
og tungan loddi viðgóminn, nú þegar hann átti að fara að
ympra á því.
Lappinn ræskti sig nokkrum sinnum, og svo kom það:
— Já — þú vildir liklega ekki f lytja til okkar og hjálpa
okkur við hreindýrin i vetur? Mig vantar mann, því að
úlfurinn er að verða svo áleitinn.
Turri gat þess líka, að hann væri þegar f arinn að verða
var við úlfa, og þau tíðindi vöktu áhuga Jónasar. Hann
tofaði Lappanum að reifa málið og segja kjörin, sem
hann bauð. Jónas átti að fá þrjú hreindýr fyrir hvern
varg, sem hann grandaði, auk vegnjulegs hjarðmanns-
kaups. Turri gerði sér allt far um að leyna því að undir
byggi annað og meira, og gat þess, að hann hefði kannski
komizt af þennan veturinn, án aukahjálpar, ef einn af
mönnum hans hefði ekki dáið.
Lars spurði hvort dáni maðurinn hefði komizt í kast
viðhreintarf. Hann vissi af eigin raun, að hreintarfarnir
eru um fengitímann hættulegustu dýr Lapplands.
Lappinn hristi höfuðið.
— Nei, það var ekki tarfur. Hann fékk slæmsku í
magann.
Lars kinkaði kolli. Einmitt. Slæmsku i magann?
Ótrúlegt!
Slæmska í maganum var algengt dánarmein, bæði
meðal frumbýlinganna og Lappanna. Það gat verið
botnlangabólga, lífhimnubólga, nýrnasjúkdómar....
Enginn kunni að greina á milli þess. Maðurinn fékk
slæmsku í magann og dó drottni sínum.
Ellý dökknaði ofurlítið í andliti, þegar farið var að
ræða um það. hvort Jónas vildi gerast hjarðmaður hjá