Tíminn - 01.08.1976, Blaðsíða 25
Sunnudagur 1. ágúst 1976.
TÍMINN
25
Ruth Carter Stapleton.
að hann hafi nokkurn tima ætlað
sér að hverfa frá stjórnmálum að
fullu ogöllu, enda hafi Jesús ætl-
að honum það hlutverk að helga
sig stjórnmálum i þágu fjöldans.
Ruth segir svo frá að faðir
þeirra hafi verið ákaflega strang-
urviösyni sina. Frá sex ára aldri
máttu þeir fara á fætur eld-
snemma á morgnana til að vinna
með fullorðna fólkinu. En
dætrunum spillti hann með dekri.
„Móðir min dekraði aldrei við
mig”, segir Ruth, ,,og þess vegna
fannst mér hún eiginlega útskúfa
mér. Nú sé ég að hún ól okkur upp
á eðlilegan hátt.” Þessi hugsun
Ruth, að fólk sem ekki hampaði
henni, væri iUa við hana, fylgdi
henni lengi: „Ég þurfti að um-
bera vonda nágranna, vondan
eiginmann, vond börn, vondan
prest, vonda vini. Sh'kt lif er að-
eins bærilegt meðan maður kenn-
ir öðrum um aUt illt.” Árum
saman hrærðist Ruth i þessum
heimi. Að loknu menntaskóla-
námi giftist hún 19 ára gömul
eigingjörn og ofdekruð daðurs-
drós, æskuunnusta sinum, Bob
Stapleton, sem varð dýralæknir.
Hann mátti flytja meö hana
drjúgan spöl frá æskustöðvum
þeirra, þvi að eiginkonan hljóp
jafnan grátandi heim, ef eitthvað
bjátaði á. Eftir að börnin komust
á legg settist Ruth aftur á skóla-
bekk (Háskólinn i Norður-Karó-
linu) oghefur nú kennararéttindi,
auk þess sem hún sóttinámskeið i
sálfræði. Segja fróðir menn að
hún hafi setið 30 tima á háskóla-
stigi i þvi fagi.
Þegar Ruth hafði áttað sig á þvi
að ekki var óhamingja hennar
einungis umhverfinu að kenna,
átti hún i áralöngu sálarstriði, svo
sem áður var nefnt og með fyrr-
greindum árangri. „Ég öðlaðist
algjöran bata, þegar ég skildi
loks að guð er guð kærleikans en
ekki refsingarinnar. Ég skynjaði
guð, ekki sem sögulega veru,
heldur veru, sem er meðal vor
hérognú. Þessari fullvissu fylgdi
styrkur, öryggi og friöur”.
Einkalif hennar snýst nú að
mestu um boðskap hennar,
lækningar og ferðalög. Þó er að
sjá sem samband hennar við börn
sin sé mjög gott, enda hefur hún
21 árs dóttur sina fyrir einka-
ritara. Eiginmaðurinn virðist una
sér vel i aftursætinu, en Ruth seg-
ir hreinskilningslega að þau hafi
varla geta talazt við í 17 ár. En
undanfarin ár hafi verið dýrðleg
— þau hjónin hafi stofnað fyrir-
tæki án ágóða kringum trúboð
hennar, „Behold, Inc.” (Halelúja
h/f) og gefa út blað, „Behold and
be whole”. Á árinu 1975 bárust i
sjóðinn 325,000 dalir. Peningunum
er varið til ferðalaga og blaðaút-
gáfu. Sjálf er Ruth ólaunuð, en
þessmá geta, aðbók hennarernú
þegar komin út i 3. útgáfu á fáein-
um mánuðum, og hún hefur sam-
ið við útgefanda sinn um að skrifa
þrjár bækur til viðbótar.
Arum saman hefur Ruth
Stapleton haldið trúmálum og
stjórnmálum aðskildum, jafnvel
þegar hún tók þátt i baráttu bróð-
ur sins i fylkisstjórakosningunum
1966. Hún vill standa á eigin fót-
um með boðskap sinn, en fljóta
ekki á þvi að vera systur Carters
forsetaefnis. Auk þess er það jafn
algengt að heittrúarfólk áliti
stjórnmál rotin og andstyggileg
og að stjórnmálamenn áliti heit-
trúarmenn smáskrýtna. Hana
dreymir um að brúa þetta djúp.
Engu að siður er Ruth mjög annt
um veraldlegan frama bróður
sins og hefur varið töluverðum
tima til að tala á framboðsfund-
um hans undanfarið. Húná þaðtil
að skrifa félögum sinum i Kristi:
„Hugsið til Jimmys! Takið þátt i
baráttunni! Látið skrá ykkur ef
þið eruð ekki búin að þvi nú þeg-
ar! ” Enda segist hún ekki mundu
hika við að kynna sig sem systur
Carters, ef hún héldi að það gæti
orðið öðru eða báðum til fram-
dráttar.
Um sitt eigið sálarástand segir
Ruth: „Ég er fullkomlega
hamingjusöm i starfi minu. Þið
vitið hve öruggur Jimmy er i trú
sinni að hann verði forseti. Eins
er með mig — ég er svo fullviss i
trúarsannfæringu minni og
skilningi á mannssálinni að ekk-
ert fær raskað ró minni”. Arang-
ur hennar á sinu sviði er engu
minni en bróður hennar, enda eru
bæði sprotar á sama meiði.
(Þýtt og endursagt, H.Þ.)
traktorslyftari
láíaíalalalálálálsIalaBIálalálslálaBIalá
ER ÓTRÚLEGA
FJÖLHÆFUR
Mögulegt er að tengja
við hann fjölda
hjdlpartækja svo sem:
malarskóflu
ýtutönn
steypusíló
snjóruðnings-
tæki o.fl.
Samband íslenzkra samvinnufélaga VÉLADEILD
Ármúla 3 Reykjavík sími 38900
lálálálálálálálálálálálálálalaláláBIálálá
Mýkt
öryggi
með
GIRLING
• e
H-O
D-E-
NOTIÐ
ÞAÐ BETTA
Skipholti 35 • Símar:
8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrifstofa
)