Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.12.2005, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 08.12.2005, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 FIMMTUDAGUR 8. desember 2005 — 332. tölublað — 5. árgangur JÓLALEST COCA-COLA KEMUR EFTIR 2 DAGA www.postur.is 13.12. Síðasti öruggi skiladagur á jólapökkum til Evrópu! OPI‹ TIL KL. 22 ÖLL KVÖLD TIL JÓLA ������� ����������������������� ������������������ �������� ������������ ����������������� �������� ������������������� ������� ������������������� ���������� ���������������� �������� ������������ ������������ ������������ ����� ������������ ������������������������������� ������� �������������� ����� JÓHANNA OG KRISTÍN Verslunin Söstrene Grene slær í gegn tíska • heimili • jól • heilsa Í MIÐJ BLAÐSINS LÖGREGLUMÁL Viðskiptabankar þeirra sem urðu fyrir því að stolið var úr heimabönkum þeirra bættu þeim að fullu þær fjárhæðir sem stolið var, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Um samtals rúmar tvær milljónir króna er að ræða í fjórum málum sem lögreglan í Reykjavík hefur nú til rannsóknar. Einn maður situr í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Fulltrúar banka og sparisjóða efndu til fundar í gærmorgun til að fara yfir öryggismál banka og sparisjóða vegna málsins. Að sögn Guðjóns Rúnarssonar, fram- kvæmdastjóra Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja, hefur í kjöl- far þjófnaðarmálanna verið lagð- ur grunnur að auknum öryggis- ráðstöfunum fyrir viðskiptamenn bankastofnana. Þær eru í þremur þáttum. Í fyrsta lagi eru leiðbein- ingareglur um hvernig best sé að ganga um öll tölvumál með tilliti til vírusvarna og aðgátar í tengsl- um við aðgangsorð. Í öðru lagi hafa allir bankar og sparisjóðir komið upp aukalykilorði sem við- skiptamaður þarf að nota þegar hann millifærir fjárhæð. Loks er verið að vinna að því að allir viðskiptamenn banka- stofnana fái í byrjun næsta árs tæki með aðgangsorði sem breyt- ist reglulega, jafnvel á mínútu fresti. Það þarf því að nota tækið nákvæmlega á þeirri stundu sem farið er inn í heimabankann. Það er því talið gagnast vel gegn „tróju- hestinum“ illræmda, sem virðist hafa verið notaður í flestum þjófn- aðarmálanna. „Heimabankarnir halda áfram að vera eitthvert öruggasta tæki til fjármálaviðskipta sem menn hafa notað,“ segir Guðjón. Hann bendir á að nýju öryggisreglurnar sé hægt að nálgast á heimasíðu samtak- anna, www.sbv.is, og heimasíðum bankastofnana. - jss / Sjá síðu 2 og 8 Heimabankaþjófurinn stal rúmlega tveimur milljónum króna: Bankarnir tóku skellinn JÓLIN Í REYKJAVÍK VERÐA RAUÐ Krakkar dönsuðu í kringum jólatréð á Austurvelli í gær. Austurvöllur verður jafn marauður um jólin, segir Sigurður Þ. Ragnarsson, jarð- og veðurfræðingur, sem spáir rauðum jólum sunnanlands en hvítum fyrir norðan. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VEÐUR Jólin verða rauð með hvít- um flekkjum á höfuðborgarsvæð- inu segir Sigurður Þ. Ragnarsson, jarð- og veðurfræðingur. Norðlendingar geta hins vegar átt von á hvítum jólum. Austan- og vestanlands verða jólin ekki snjóþung en gætu þó orðið hvít. „Mér sýnist þetta verða niður- staðan sé rýnt í heildaryfirbragð kortanna,“ segir Sigurður. Rúmar tvær vikur eru til jóla og bendir Sigurður á að erfitt geti verið að spá um veður svo langt fram í tímann. „En ég læt slag standa,“ segir Sigurður, sem betur er þekktur sem Siggi stormur. Veðurklúbbur Dalvík- inga spáir einnig hvítum jólum á Norðurlandi. Nánar á bls. 10 í Allt-blaði Fréttablaðsins. Kaflaskipt jólaveður: Rauð jól í Reykjavík Skákgleði á Grænlandi Sendinefnd á vegum Hróksins er á Austur-Grænlandi og gleður grunn- skólabörn þar með góðum gjöfum. Danski stórmeistarinn Henrik Danielsen er með í för. Hann hefur sótt um íslenskan ríkisborgara- rétt. FÓLK 62 EGILL GILLZENEGGER Verður með yfirhalningu fyrir trefla Leggur drög að hnakkavæðingu í íslensku sjónvarpi FÓLK 74 TALSVERÐ RIGNING eftir hádegi um austan- og suðaustanvert landið en annars víða væta, síst norðaustan til. Hiti 3-8 stig. Lægir og dregur úr vætu með kvöldinu. VEÐUR 4 Ekki einu sinni á Sikiley... Þorvaldur Gylfason upplýsir hvers vegna hann fer ekki í mál við ríkislög- reglustjóra þótt það mætti verða til þess að hann segði af sér. Í DAG 38 Kjell Inge Rökke Hlutabréf norska athafnamannsins Kjells Inge Rökke í Aker-fyrirtækja- samsteypunni eru orðin eitt hundruð milljarða króna virði. VIÐSKIPTI 41 Stórleikur í Keflavík Íslandsmeistarar Keflavíkur í körfubolta mæta portúgalska liðinu Madeira í sextán liða úr- slitum Evrópukeppninnar í Keflavík í kvöld. Þjálfari Keflavíkur gerir kröfu um sigur á heimavelli. ÍÞRÓTTIR 66 DEILUR Læknablaðið neitaði að birta grein eftir Jóhann Tómasson heilsugæslulækni þar sem hann segist færa sönnur á það að lækn- ingaleyfi Kára Stefánssonar sé tak- markað af eiði sem hann hafi gert árið 1977 við þáverandi Landlækni en hafi svo ekki staðið við. Þar með gefur Jóhann til kynna að Kári hafi í raun ekki gilt lækningaleyfi. Fréttablaðið birtir í dag grein Jóhanns ásamt afriti af eiðnum. „Ég átti frekar von á að Kári Stefánsson myndi kæra mig en hann þorir það ekki því ég get sannað mitt mál. Þá lætur hann Læknafélag Íslands gera það fyrir sig og það gerir það,“ segir Jóhann. Læknafélagið kærði málið til Siða- nefndar Læknafélags Íslands en svo kærði Kári sjálfur Vilhjálm Rafnsson, þáverandi ritstjóra Læknablaðsins, til sömu nefndar. Vilhjálmur var settur af eftir að hann hafði leyft birtingu á annarri grein eftir Jóhann og þá var bráða- birgðaritnefnd sett á laggirnar. Vilhjálmur vill ekki staðfesta hvort ritstjórnin hafi neitað Jóhanni um birtingu á þeirri grein sem nú birt- ist í Fréttablaðinu. Í síðasta tölu- blaði, sem Vilhjálmur ritstýrði, er Kári beðinn afsökunar á birtingu á fyrri grein Jóhanns. „Það sem ég sé athugavert í þessu máli er að Kári setur þrjár kröfur fram við eigendur Lækna- blaðsins og þeir eru komnir lang- leiðina með að verða við þeim öllum,“ segir Vilhjálmur. „Hann krafðist þess að ég yrði rekinn og það er búið. Hann krafðist þess að hann yrði beðinn afsökunar og það er búið. Hann krafðist þess að grein Jóhanns yrði tekin af vefn- um, en bráðbirgðaritstjórnin tók reyndar aðeins tvær setningar úr grein Jóhanns og það eru vinnu- brögð sem ég taldi að viðgengjust venjulega ekki í lýðræðisríkjum,“ segir Vilhjálmur. Þessar tvær setningar eru svo- hljóðandi: „Kári hefur skilyrt, tak- markað lækningaleyfi, útgefið til bráðabirgða 10. júní 1977. Önnur lækningaleyfi, sem íslenzk heil- brigðisyfirvöld hafa veitt honum, eru því sennilega ólögleg.“ Sjá viðbrögð Kára Stefánssonar á síðu 6. - jse/sjá síðu 6 Læknafélagið kærði Jóhann Jóhann Tómasson læknir segist hafa undir höndum gögn sem hann segir að sanni að Kári Stefánsson, for- stjóri Erfðagreiningar, hafi ekki gilt lækningaleyfi. Læknafélagið hefur kært Jóhann til siðanefndar. VEÐRIÐ Í DAG
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.