Fréttablaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 74
8. desember 2005 FIMMTUDAGUR54
bio@frettabladid.is
Það styttist enn frekar í
stórmyndina King Kong
sem frumsýnd verður mið-
vikudaginn 14. desember.
Fram að því ætlar Reese
Witherspoon að stytta
okkur stundirnar með því
að ganga aftur og þeir John
Cusack og Billy Bob Thorn-
ton komast í hann krappan
þegar þeir reyna svíkja
fé út úr glæpaforingja í
Wichita.
Það er Harold Ramis sem leikstýr-
ir Ice Harvest en hann er ef til vill
þekktastur fyrir hlutverk sitt sem
dr. Egon Spegler í Draugabönum
sem gerðu allt vitlaust á fyrri
hluta níunda áratugarins. Þó að
hann bregði sér öðru hvoru fram
fyrir myndavélarnar hefur hann
að mestu leyti helgað sig skrif-
um og leikstjórn. Viðfangsefni
þessarar nýjustu myndar hans er
lögfræðingurinn Charlie Aglist í
Wichita sem hefur haft gott upp úr
því að verja óþokka borgarinnar.
Hann ákveður að gefa sjálfum sér
nokkuð veglega jólagjöf frá aðal-
glæpaforingjanum, Bill Guerrard.
Ásamt aðstoðarmanni sínum, Vic
Cavanaugh, stelur hann rúmum
tveimur miljónum dala. Charlie
hyggst eyða sínum hluta með
strippbúllueigandanum Renetu en
hlutirnir fara á annan veg en hann
hafði í hyggju.
Það eru John Cusack, Billy Bob
Thornton, Oliver Platt og Connie
Nielsen sem fara með aðalhlut-
verkið í þessari gamansömu jóla-
mynd. Randy Quaid bregður sér í
hlutverk illmennisins en hann er
um þessar mundir að leika í Milos
Forman myndinni Goya‘s Ghosts.
Það kom eflaust mörgum á
óvart þegar bandaríska leikkon-
an Reese Witherspoon var valin
til að leika June Carter í Walk the
Line. Áður en Reese tók að sér
hlutverkið hafði hún unnið sér
það helst til frægðar að leika hina
ofurheimsku Elle Woods í Legally
Blonde myndunum. Myndinni var
strax spáð mikilli velgengni bæði
í miðasölu en ekki síst á óskarn-
um því Johnny Cash er með ein-
dæmum vinsæll í Bandaríkjunum
og látnir tónlistarmenn hafa allt-
af trekkt vel í kvikmyndahúsum
þar vestra. Frammistaða Reese
í myndinni hefur komið mörgum
á óvart og vakið mikla athygli
en henni hefur verið spáð ósk-
arstilnefningu. Leikkonan er þó á
kunnuglegum slóðum í Just Like
Heaven en þar er á ferðinni róm-
antísk gamanmynd. Á móti henni
leikur Mark Ruffalo en hann er
góðri leið með að verða næsti
Hollywood-sjarmörinn.
Hjúkrunarkonan Elizabeth
hefur engan tíma fyrir sjálfa sig
heldur sekkur sér í vinnu. Það
kemur hins vegar babb í bátinn
þegar hún deyr í bílslysi á leiðinni
heim. Inn íbúðina hennar flytur
piparsveinninn David sem að öllu
jöfnu ætti að vera einn í henni.
Elizabeth hefur þó ekki gefist
alveg upp fyrir manninum með
ljáinn heldur telur sig vera á lífi.
Piparsveininum til mikils ama
gefur hún sig ekki en þegar þau
fara að kynnast nánar er ljóst að
ástin nær út fyrir gröf og dauða.
freyrgigja@frettabladid
Rómantík og ribbaldar
„Now, I‘d like to remind you
all that we‘re recording live,
so you can‘t say „hell“ or
„shit“ or anything like that!“
Johnny Cash gerir föngunum í Folsom Prison ljóst
að það sé verið að taka upp tónleikana í kvikmynd-
inni Walk the Line þar sem Joaquin Phoenix fer
hamförum í hlutverki kántríkóngsins. Myndin er
væntanleg hingað til lands á næstunni en hún þykir
líkleg til afreka á óskarnum.
Þetta er í raun hálfgerð synd en það er varla
hægt að nefna nafn Billy Bob Thornton
án þess að minnast á samband hans við
Angelinu Jolie. Parið var mjög áberandi
í Hollywood á sínum tíma en það vakti
heimsathygli þegar upp komst að hvort var
með blóðdropa úr hinu í hylki um hálsinn
og fóru fljótlega af stað sögur um frekar
misjafnt athæfi hjónanna. Illar tungur töluðu
meira að segja um djöfladýrkun og satanískt
athæfi. Allt „gott“ tekur þó einhvern tímann
enda því þessi brennandi ástríða kulnaði
og þau héldu hvort í sína áttina. Eftir stóð
minning um skrautlegt ástarsamband sem
kom þeim báðum í heimspressuna og gerði
nöfn þeirra fræg.
Billy Bob átti sér þann draum heitast-
an að verða tónlistamaður. Hann er fæddur í Arkansas og hóf
listrænan feril sinn sem trommari og söngvari í hljómsveitinni
Tres Hombres. Hljómsveitin varð það fræg
að hún hitaði upp fyrir Hank Williams Jr.
Árið 1981 fluttist Thornton til Los Angeles
með vini sínum Tom Epperson með það fyrir
augum að komast í kynni við frægð og frama
í kvikmyndborginni. Hann lagði kjuðana þó
ekki alveg á hilluna heldur spilaði samhliða
því að skrifa handrit og reyndi koma sér á
framfæri.
Thornton og Epperson fengu draum sin
uppfylltan þegar kvikmyndin One False Move
sló óvænt í gegn. Hún var hræódýr í fram-
leiðslu en fékk bæði góða dóma og mikla
athygli. Þótt myndin hefði tryggt félögunum
næga vinnu sló Thornton þó ekki almenni-
lega í gegn fyrr en með myndinni Sling Blade.
Hann var tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir
bestan leik í aðalhlutverki en tapaði fyrir Geoffrey Rush. Leikar-
inn fór þó ekki tómhentur heim því hann hreppti styttuna fyrir
LEIKARI VIKUNNAR
Ekki bara fyrrverandi hr. Jolie
CHARLIE OG VIC Lögfræðingurinn Charlie og aðstoðarmaður hans Vic svíkja stórfé út úr
glæpaforingja. Hlutirnir fara þó á annan veg en þeir ætluðu.
DAVID OG ELIZABETH Piparsveininum
David bregður í brún þegar hann verður
þess var að fyrrverandi eigandi íbúðar hans
hefur ekki alveg gefið upp öndina.
FRUMSÝNDAR UM HELGINA
Ice Harvest
Internet Movie Database 5,6 / 10
Metacritic.com 4,5 / 10
Rottentomatoes.com 47% / Rotin
Just Like Heaven
Internet Movie Database 6,8 / 10
Metacritic.com 7,0 / 10
Rottentomatoes.com 54% / Rotin
Ekki missa af...
Harry Potter og eldbikarnum. Pottþétt
skemmtun sem svíkur hvorki aðdáend-
ur né heldur þá sem vita ekkert um
töfrastrákinn og ævintýri hans. Potter
er að fullorðnast og myndin er í dekkri
kantinum. Það ætti þó ekki að hindra
alla fjölskylduna frá því að skella sér í
bíó, splæsa poppi og kóki á línuna og
skemmta sér konunglega yfir ótrúlegum
svaðilförum Harrys og félaga hans.
Fyrstu dómarnir eru farnir að
birtast um þrekvirki Peters Jack-
son, King Kong, en myndin var
frumsýnd í New York á þriðju-
dagskvöld. Flestir eru sammála
um að myndin hafi alla burði til að
verða smellurinn í ár.
Gagnrýnandi London Daily
Telegraph sagði að King Kong
væri blanda af Titanic og Jur-
assic Park. Hjá Daily Mail eru
menn heldur ekkert að skafa utan
af hlutunum og segja King Kong
vera bestu stórmynd ársins. Kvik-
myndarýnir London Times segir
að Jackson hafi gert alvöru has-
armynd með hæfilegri blöndu af
húmor og drama. Aðrir eru mjög
ánægðir með myndina en benda
einnig á þá staðreynd að King
Kong þarf að vera meðal tíu mest
sóttu mynda heims svo hún borgi
sig. Kostnaðurinn hafi verið því-
líkur og Jackson neyddist sjálfur
til að opna bankabókina sína og
punga út 32 miljónum dollurum.
„King Kong á eftir að verða minn-
ismerki um áhættu en það kemur
síðan í ljós hvort hún borgaði sig,“
skrifaði Geoffrey Macnab hjá
Independent.
Bandaríska blaðið New York
Times sendi alla sína bestu gagn-
rýnendur sem voru á einu máli.
King Kong væri frábær og sagð-
ist Jami Bernard hafa grátið og
hlegið. „Hún er algjör snilld.“ Í
sama streng tekur Jack Mathews
og telur að leikstjórinn Jackson
hafi tryggt sér titilinn „besti
ævintýraleikstjóri sögunnar“.
Hann þakkar Peter ennfremur
fyrir að hafa komið Empire State
byggingunni aftur á þann stall
sem henni ber.
King Kong slær í gegn
Mel Gibson hefur í fyrsta skipti
tjáð sig um sitt næsta verkefni sem
ber heitið Apocalypto. Mikil leynd
hefur hvílt yfir henni en eftir vel-
gengni The Passion of Christ getur
Mel Gibson gert hvað sem er... og
þá þýðir það hvað sem er.
Það hefur til að mynda enginn
kippt sér upp við það að Apocalypto
á að gerast fyrir sex hundruð árum
hjá Mayum og mun víst varpa ljósi
á hið undarlega hrun menningar-
þjóðarinnar áður en Spánverjar
námu land í Mið-Ameríku. Ekki
skemmir fyrir að myndin er öll
töluð á fornri tungu þessa samfé-
lags og í öllum helstu hlutverkum
eru alveg óþekktir leikarar. „Ég
tel að með þessari mynd getum
við skoðað samtíma okkar í nýju
ljósi,“ sagði Gibson við blaðamenn
á dögunum. Nafn myndarinnar er
úr grísku og þýðir nýtt upphaf.
Þetta er þó ekki það eina sem
Mel Gibson hyggst gera á næst-
unni. Hann ætlar að framleiða
sjónvarpsmyndina Flory sem er
byggð á sannsögulegum atburð-
um. Segir hún sögu gyðingastúlk-
unnar Flory Van Beek en hún naut
aðstoðar hollensks kærasta síns
sem bjargaði henni frá útrýming-
arbúðum nasista í seinni heims-
tyrjöldinni.
Gibson er ekki besti vinur gyð-
ingasamfélagsins í Bandaríkjun-
um því The Passion of Christ vakti
töluverða reiði þeirra á meðal
þar sem talið var að leikstjórinn
drægi upp frekar dökka mynd
af yfirmönnum trúarsamfélags
þeirra á tímum Jesú. Reyndar
hefur ekkert verið ákveðið hvort
farið verði út í þessa framleiðslu
en ljóst er að ef af verður á hún
eftir að vekja mikla athygli.
Gibson hefur nóg
á sinni könnu
Bandaríska leikkonan með skandin-
avíska eftirnafnið, Scarlett Johans-
son, hefur tekið að sér hlutverk
í kvikmynd sem gerist á síðustu
dögum Napóleons Bonaparte. Segir
hún frá því þegar stríðsherrann fer
í útlegð á eyjunni St. Helenu og fell-
ur fyrir enskri stúlku.
Myndin verður að hluta til
byggð á sannri sögu og verður öll
séð frá sjónarhóli ástkonunnar. Það
er Benjamin Ross sem leikstýrir
myndinni og verður þetta fyrsta
stóra verkefnið hans. Ekki hefur enn
verið ráðið í hlutverk Napóleons.
Scarlett elsk-
ar Napóleon
SCARLETT JOHANSSON Fellur fyrir hinum
smáa en knáa Napóleon í myndinni Napo-
leon & Betsy sem verður gerð á næstunni.
MEL GIBSON The Passion of Christ vakti töluvert sterk viðbrögð en velgengni hennar hefur
gefið Gibson leyfi til að gera hvað sem er.
KING KONG Gagnrýnendur mega vart vatni halda yfir myndinni sem er rúmir þrír tímar
að lengd. Peter Jackson fær mikið hrós fyrir leikaravalið en þeir standa sig framar öllum
vonum.