Fréttablaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 78
 8. desember 2005 FIMMTUDAGUR58 Fyrir rúmu ári keyptu Íslendingar Magasin du Nord. Dönum var brugðið. Síðan hafa fjárfestingar Íslendinga í landinu verið ótalmargar og alltaf verða Danir jafn hissa. Hvað vilja þessir Íslendingar upp á dekk og hvaðan koma peningarnir? Danir þreyt- ast ekki á að spyrja þessara spurninga. Dagblaðið Urban velti þessu fyrir sér í gær og nýjasta hefti tímaritsins Cover er meðal annars helg- að þessari spurningu. Það er þó greinilegt á þessum umfjöllunum að Danir hafa loksins húmor fyrir þessari þróun. Greinin í Urban er skrifuð í til- efni af frumsýningu heimildar- myndarinnar Gargandi snilld sem fær fimm stjörnur af sex í einkunnagjöf blaðsins. Höfundur greinarinnar fullyrðir að Íslend- ingar hafi skipulagt innrásina í 61 ár og þeir séu svo klikkað- ir að þeir fari ekki einu sinni leynt með það. Hann spyr Þóri Snæ Sigurjónsson, framleiðanda myndarinnar, hvað sé eiginlega í gangi. Hann svarar því til að Íslendingar hafi alltaf verið áhugasamir um Danmörku enda sé danska fyrsta erlenda tungu- málið sem Íslendingar læri. Þórir vísar á bug orðrómi um að Íslendingar fái peningana sína frá rússnesku mafíunni og það sama gerir Baltasar Kormákur í viðtali við tímaritið Cover. Í inngangi greinarinnar í Cover segir að þrátt fyrir fámennið á Íslandi séu stjörn- unar margar. Þar megi finna íþróttamenn sem leiki og við- skiptamenn sem hanni. Enginn sé fastur í einum bás. Í greininni er einnig rætt við Ingibjörgu Pálmadóttur og Jón Ásgeir Jóhannesson, Þorvald Skúlason, Magnús Scheving og samstarfs- mann hans, Ágúst Frey Ingason. Þá eru tengsl Baltasars, Ingi- bjargar og Jóns Ásgeirs rakin í greininni enda hafa danskir fjöl- miðlar margsinnis velt fyrir sér tengslum íslenskra viðskipta- manna og fjármálastofnana und- anfarin misseri. Ingibjörgu er lýst sem íslenskri valkyrju sem sé bálskotin í Kaupmannahöfn. Jón segist deila með henni áhuga á borginni og Danmörku enda hyggist hann fjárfesta þar enn frekar. Honum finnst hins vegar Danir sjálfir ekki hafa nægjan- lega metnaðarfull plön á prjón- unum. Blaðamanni Cover finnst ekki mikið til byggðarinnar í miðbæ Reykjavíkur koma. Segir hana minna á gullgrafarabyggð. Þó sé greinilegt á úrvalinu í tískuvöru- verslunum að í Reykjavík búi rík þjóð. Undir það tekur Þorvaldur Skúlason, eigandi veitingastaðarins b5. „Allir eiga að vera með milljón á mánuði,“ segir hann og bætir við að Íslendingar séu enn að ná tökum á nýfengnu viðskiptafrelsi. Efnis- hyggja sé ráðandi og enginn maður með mönnum nema vera með að lágmarki eina milljón á mánuði. Íslendingar eru flinkir að finna upp á nýjum hlutum en þá skortir hins vegar skipulagshæfileikana að mati Magnúsar Scheving. Hann segir í viðtalinu að leti sé ekki liðin á Íslandi og fólk sé knúið áfram af innri átökum enda menntað fólk sem komið sé af villimönnum. Aðalatriðið sé að vera heiðarlegur í viðskiptum í svona litlu samfélagi eins og Íslandi. Kristján Sigurjónsson skrifar frá Kaupmannahöfn INNRÁS ÍSKALDRA FLOTTRÆFLA INGIBJÖRG PÁLMADÓTTIR Er sögð vera ástfangin af Kaupmannahöfn og er lýst sem íslenskri valkyrju í danska blaðinu Cover. ÁGÚST FREYR OG MAGNÚS SCHEVING Þeir hafa verið að gera góða hluti með Latabæ en Magnús segir í viðtalinu að leti sé ekki liðin á Íslandi. ÍSLENSKIR TÍSKUMÓGÚLAR Danskir blaðamenn velta því fyrir sér hverjir þessir Íslend- ingar séu sem hafi ráðist inn í Danmörku. Þrátt fyrir alvarlegan undirtón hafa Danirnir húmor fyrir þessum fyrrum undirsátum sínum. Les Rhythmes Digitales - Darkdancer (1999) Stuart Price hefur aldrei gefið út tónlist undir eigin nafni. Hann kallaði sig lengi Jacques Lu Cont og gaf út undir hljómsveitarnafn- inu Les Rhythmes Digitales. Á annarri plötu sinni blandaði hann saman áhrifum frá sykursætu poppi níunda áratugarins við nútímalegt house og breakbít. Hann gekk jafnvel svo langt að fá söngvarann Nik Kershaw sem gestasöngvara í einu lagi. Eftir útgáfu annarrar plötu sinnar varð hann vel þekktur fyrir útsetningar sínar, og samstarfið við Madonnu hófst stuttu síðar. Hann hefur líka gert endurhljóðblandanir fyrir Goldfrapp, No Doubt og Corner- shop. Zoot Woman - Living in a Magazine (2001) Stuart Price kynntist bræðr- unum Johnny og Adam Blake í skóla í Reading. Tónlist sveitar- innar minnir stundum á Human League, New Order eða Pet Shop Boys. Þrátt fyrir að vera liðsmað- ur sveitarinnar var Stuart ekki með þegar Zoot Woman léku fyrir gesti Airwaves hátíðarinnar nú síðast. Leiðarvísir að Stuart Price MADONNA OG STUART PRICE Stuart Price stjórnaði upptökum á nýjustu plötu Madonnu og hefur fengið mikið lof fyrir. [TÓNLIST] UMFJÖLLUN Ég hef nú ekki mikið álit á Pete Doherty. Að minnsta kosti ekki þeirri hlið af honum sem birtist í blöðunum. Mér finnst ekkert töff við það að vera fíkill með allt niður um sig, sama hvaða fyrir- sætu þú ert að sofa hjá. Finnst hann hafa svipaðan sjarma út á við og strípalingur á fótboltaleik. Athyglissjúkur unglingur í enda- lausri sjálfsvorkunn. Það var svo ekki til þess að auka álit mitt á honum þegar ég sá tónleikaupptöku af þessari nýju sveit hans, Babyshambles, í sjónvarpinu. Bandið var óþéttara en versta sveitin á landsbyggð- arkvöldi Músíktilrauna og Pete var of út úr því til þess að ráða við neitt annað en að slefa í míkró- fóninn. Það var lítið pönk í þessu og meira eins og að sjá Sex Pistols kóverlagasveit þar sem liðsmenn væru of drukknir til þess að ráða við lögin. En svo er það Pete Doherty, tónlistarmaður. Hann nær allt- af að koma mér á óvart á plasti. Önnur Libertines-platan var stór- fín, og þessi fyrsta Babyshamb- les-plata er góð líka. Bandið er ekkert sérstakt, en texta- og laga- smíðar eru mjög sjarmerandi. Hann er svo sannarlega hæfi- leikaríkur piltur og með góða rödd, þegar hann er nægilega allsgáður til þess að ráða við það. Þegar maður hlustar á textana fer maður líka að trúa því að það leynist gáfaður einstaklingur... einhvers staðar. Hann hefur auð- vitað mikið á herðum sér eftir útreið bresku slúðurpressunnar og hleypir því öllu út hér. Hann er skemmtilega heiðarlegur í textum og ég held að það sé helsti sjarmi hans. Reynir lítið til þess að fegra stöðu sína og eins og við má búast fjalla textarnir mikið um dópneyslu, kynlíf og hræsni annarra. Babyshambles hljómar þannig séð alveg nákvæmlega eins og The Libertines. Sama innihald, aðrar umbúðir. Þannig að aðdá- endur þeirrar sveitar geta prísað sig sæla. Upphafslag Down in Albion, La Belle Et La Béte, grípur mann frá fyrstu sekúndu. Ruddalegt kabarett-gítarstef sem minnir þó nokkuð á Kurt Weill heldur manni heljartökum til enda. Við tekur slagarinn drullugi Fuck Forever og eftir það rennur platan í gegn á svipuðum nótum, á jafn hisp- urslausan og ókurteisan hátt. Ég vildi óska að ég hefði ekki svona gaman af þessari tónlist, því núna fer mér bara að þykja vænt um þennan vesaling. Vonandi fer hann að hífa upp um sig buxurn- ar. Er orðinn leiður á sprellanum hans. Ekki bara aumingi BABYSHAMBLES: DOWN IN ALBION Niðurstaða: Pete Doherty, mest pirrandi persóna slúðurfréttanna, mætti einbeita sér meira að því að búa til tónlist því hann er hæfileikaríkur andskoti. Frum- raun Babyshambles er skítug og sveitt en hlaðin góðum melódíum og heiðar- legum textum. Leikkonan Sienna Miller hefur tekið til í fataskápnum sínum því hún segist skammast sín fyrir fötin sem hún gekk eitt sinn í. Hún segir það einnig koma sér mjög á óvart hversu margar konur herma eftir fatastíl hennar þar sem hún telur sig hafa litið hræði- lega út. „Ég var með hrikalegan fatastíl þegar ég var yngri. Ég var með bleikt og hvítt hár og gekk í síðum pilsum með ljóta klúta og plastskartgripi. Ég var svo klikkuð að þið eruð heppin að ég hef breyst,“ sagði Sienna. Breytt Sienna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.