Fréttablaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 41
FIMMTUDAGUR 8. desember 2005
Komdu í Garðabæ
Ilse Jacobsen • Hornbæk er á skömmum tíma orðin ein umtalaðasta skó- og
kvenfataverslun á höfuðborgarsvæðinu. Skórnir og fötin frá Ilse Jacobsen
vekja verðskuldaða athygli og það sama gildir um fatnaðinn frá Baum und
Pferdgarten, Naja Lauf, Heart Made og Kathleen Madden.
Garðatorgi • Garðabæ • sími 517 4806
OPIÐ SUNNUDAGA KL. 13-17 FRAM TIL JÓLA
Ásnum - Hraunbæ 119 - Sími 567 7776
Opið virka daga kl. 11:00-18:00 • Opið laugardaga 11:00-14:00
er 2ja ára!
Afmælistilboð á öllum fatnaði
og snyrtilínu dagana til 10. des.
15-25% afsláttur
SKIPHOLTI 21 (NÓATÚNSMEGIN)
SÍMI 561 0847
TEXTÍLGALLERY
Fatamerkið víðfræga Fred Perry
býður nú upp á trefil í kaupauka
með öllum vörum á heimasíðu sinni.
Fred Perry er mörgum Íslendingum
að góðu kunnur enda afar flott
vörumerki. Á Íslandi er ekki hægt að
finna vörur frá Fred Perry á mörgum
stöðum en þó má finna einstakar
flíkur í búðunum Kronkron og Guer-
illa store. Fred Perry-merkið er hins
vegar afar vinsælt og því taka margir
upp á því að panta föt af heimasíðu
fyrirtækisins, fredperry.com.
Fyrir þessi jól býður
fyrirtækið upp á kaup-
auka með öllum
pöntunum en það
er fallegur trefill.
Það er þó betra
að hafa hraðar
hendur því
tilboðið
rennur
út 12.
desember.
kaupauki }
Trefill fylgir
FREDPERRY.COM BÝÐUR TREFIL Í
KAUPAUKA TIL 12. DESEMBER.
Jólin nálgast hratt að vanda, dagarnir virka einhvern veginn miklu
styttri í desember en endranær, bæði hvað varðar dagsljósið og svo
hvernig tíminn nýtist. Ekki er seinna vænna að huga að fataskápnum.
Dugir svarti kjólinn frá því í fyrra ein jól enn eða er hann orðinn of
þröngur? Dugar kannski að færa tölur? Eða þarf að „sörfa“ enn meira
en ella á vísakortinu til að vera almennilega til fara um hátíðarnar?
Möguleikarnir eru auðvitað margir. Allt frá fínum kjól frá tískuhúsi
sem getur kostað frá nokkrum tugum þúsunda, til hátísku sem getur
hlaupið á milljónum króna.
Vetrartískunni má lýsa með þremur lykilorðum, sixties, slavnesk
áhrif og rock. Sixties-tískan er líklega heldur glæsilegri fyrir jóla-
boðin en slavneski hippastíllinn þó yngri konur finni sig betur í þeim
stíl. Útlínur eru skarpar og mikið notað af svörtu og hvítu, til dæmis
hjá Givenchy og Balenciaga. Jakkar og dragtir eru hermannaleg og
jafnvel með hnöppum og borðum, dálítið í anda vinsælustu bíómynd-
arinnar um þessar mundir hér í landi, „Palais Royal“ eftir Valérie
Lemercier. Armelle prinsessa minnir óneitanlega á Díönu Spencer og
á hún vonda tengdamömmu. Hjá einu af stóru magasínunum, Galerie
Lafayette, eru jólin konungleg þetta árið með fylgihlutum sem hæfa
konungbornum. En hjá Lafayette eru jólakjólarnir á um hundrað
evrum og upp í átta hundruð eftir því hver hannar.
Svo er auðvitað sá möguleiki að kíkja í búðir sem selja gömul föt,
til gamallar frænku eða upp á loft hjá ömmu. „Vintage-tískan“ hefur
aldrei lifað betra lífi og því er upplagt að draga fram gamlar perlur og
um leið vera óumræðanlega frumlegur um jólin.
En ódýrari búðir eins og Zara, H&M og fleiri bjóða einnig upp á
lausnir í hátíðafatnaði á hóflegu verði. Hönnuðir þessara búða eru dug-
legir við að taka upp það sem sést á tískusýningum tískuhúsanna og
á þremur vikum getur eftirlíkingin verið komin í búðir. Hjá Zöru er
hægt að fá svart kúlulaga pils sem gæti allt eins verið frá tískuhúsi
Balenciaga og hjá H&M er flottur safírgrænn toppur með beru baki
sem passar vel við, alklæðnaður á innan við hundrað evrur. Vissulega
er ekki hægt að bera þessa framleiðslu saman við merkjavöru. Hún
stendur þó vel undir væntingum þeirra sem leita að ódýrum lausnum
og vilja skipta oft út fatnaði og er nákvæmlega saman þó endingin sé
aðeins nokkrir mánuðir. Þessi lausn smellpassar líka við „mastige-tísk-
una“ sem er sambland af fjöldaframleiðslu (mass) og hugmyndinni um
hágæðalúxusframleiðslu (prestige), þar sem öllu er blandað saman.
bergthor.bjarnason.wandoo.fr
Hver fer í jólaköttinn?
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Minnum á kynningu
á vörum okkar á
konukvöldi Heklu og Femin
í kvöld kl 20:00
Skráning á Femin.is
Verið Velkomnar
Opnunartími í desember:
1. – 22. desember 10 – 20
23. desember 10 – 22
24. desember 10 – 12
Alla þriðjudaga til laugardaga