Fréttablaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 4
4 8. desember 2005 FIMMTUDAGUR Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18 Opið virka daga: 10-18 laugardaga: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 SVÍÞJÓÐ Einn af leynilegum heim- ildarmönnum sænsku lögregl- unnar hefur verið handtekinn og ákærður fyrir þátttöku í árás á brynvarðan peningaflutningabíl Securitas í Stokkhólmi í lok ágúst. Ræningjarnir höfðu hátt í 250 milljónir upp úr krafsinu. Lögreglan hafði samband við heimildarmanninn eftir ránið til að fá hjá honum upplýsingar. Afton- bladet sagði í gær að fljótlega hefði vaknað grunur gegn manninum og sími hans því verið hleraður. Maðurinn og tveir aðrir unnu saman á bílaverkstæði og þaðan koma meðal annars nokkur sönn- unargögn. - ghs Árás á peningaflutningabíl: Heimildarmað- urinn ákærður FASTEIGNAMÁL Nýr eigandi Heilsu- verndarstöðvarinnar við Bar- ónsstíg, byggingafyrirtækið Mark-hús, vill ekki enn upplýsa hvað það hyggst fyrir með Heilsu- verndarstöðina. Eigandi Mark-húss, Markús Már Árnason, segir að upplýsing- ar um þeirra áætlanir séu í fyrsta lagi væntanlegar eftir áramót. Forsvarsmenn Mark-húss hafa hins vegar sagt að hugsanleg frið- un Heilsuverndarstöðvarinnar ætti ekki að hafa áhrif á þeirra fyrirætlanir. Reykjavíkurborg og ríkis- sjóður Íslands hafa mælst til að Heilsuverndarstöðin verði friðuð og hafa lagt á kvaðir þar til lög- formleg friðun, samkvæmt hús- friðunarlögum, hefur verið stað- fest. Óli Hertervig, deildarstjóri eignarumsýsludeildar skipulags- ráðs Reykjavíkurborgar, segir að ekki hafi verið settir neinir skilmálar í kaupsamninginn við Mark-hús um að skipulagsráð fengi að vita hvaða framkvæmd- ir væru fyrirhugaðar á Heilsu- verndarstöðinni. Skipulagsfulltrúi hjá skipu- lagsráði sem Fréttablaðið ræddi við sagði að það hefði verið snið- ugt að setja inn þessa skilmála í kaupsamninginn. „Við vorum ekki skyldugir til að gera það og geng- um ekkert eftir því,“ segir Óli. „Þetta var bara eins og venjulegt kauptilboð í íbúð eða hús.“ - sk Reykjavíkurborg og ríkissjóður vilja að Heilsuverndarstöðin verði friðuð: Var seld án skilmála um friðun HEILSUVERNDARSTÖÐIN Ekki er vitað hvað Mark-hús ætlast fyrir með Heilsuverndar- stöðina. VILJA EKKI ÞEKKJAST Norður-kóresku lið- hlauparnir á blaðamannafundinum í Seoul í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SUÐUR-KÓREA, AP Níu liðhlaupar frá Norður-Kóreu, sem segjast vera úr sérsveit hers norðanmanna, sögðu í gær að félagar þeirra í her alþýðulýðveldisins væru að missa móðinn vegna ástandsins þar, og myndu gera uppreisn nema kommúnistastjórnin í Pyongyang loki fangabúðum þar sem pólitísk- ur fangar eru geymdir og taki sig á í mannréttindamálum. „Við eigum okkur samherja í norðrinu og þeir munu rísa upp þegar þar að kemur,“ sagði Lim Chun Yong, en hann kveðst hafa þjónað í 14 ár í einni af sérsveitum hers Norður-Kóreu áður en hann flúði til Suður-Kóreu árið 2000. Lim lét þessi orð falla á blaða- mannafundi í Seoul í gær sem haldinn var í nafni Sambands frjálsra hermanna Norður-Kóreu sem stofnað var nýlega, daginn áður en alþjóðleg ráðstefna um mannréttindamál í Norður-Kóreu hófst í borginni. ■ Liðhlaupar frá N-Kóreu: Segja hermenn í uppreisnarhug Gassprenging í fjölbýlishúsi Sprenging sem rakin var til gasleka braut stórt gat á íbúðarhús í Moskvu í gær. Kona lét lífið og margar íbúðir eyðilögð- ust. Björgunarmenn sögðust síðar hafa fundið tvö önnur lík í rústunum. Fimm manns særðust en alls var 42 íbúum bjargað úr húsinu. RÚSSLAND GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 7.12.2005 Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur USD 64,66 64,96 Sterlingspund GBP 111,89 112,43 Evra EUR 75,76 76,18 Dönsk króna DKK 10,166 10,226 Norsk króna NOK 9,505 9,561 Sænsk króna SEK 8,06 8,108 Japanskt jen JPY 0,5338 0,537 SDR 91,77 92,31 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 107,0653 STJÓRNMÁL „Það liggur fyrir að staða ríkissjóðs er sterk. Tekjuafgangur er 19,5 milljarðar króna,“ sagði Magnús Stefánsson, formaður fjárlaganefnd- ar, við afgreiðslu fjárlagafrumvarps- ins sem varð að lögum frá Alþingi í gær. „Þetta eru nærri tvö prósent af landsframleiðslu sem er meiri afgangur en flestar Evrópuþjóðir geta státað af um þessar mundir. Það verður haldið áfram að greiða niður skuldir ríkissjóðs og má gera ráð fyrir að þær muni nema 10 pró- sentum af landsframleiðslu í árslok 2006 sem er gríðarleg breyting frá því sem var fyrir áratug þegar þetta hlutfall var nálægt því 50 prósent.“ Magnús bætti við að vaxtagjöld ríkissjóðs væru nú sjöundi stærsti útgjaldaliður ríkissjóðs en hefði verið annar til þriðji stærsti útgjaldaliður- inn fyrir um áratug. Magnús sagði jafnframt að útgjöld til velferðar- mála væru aukin þvert á það sem stjórnarandstaðan héldi fram. Fram- lög til mennta- og menningarmála væru meira en 12 prósentum hærri en árið 2005 eða sem næmi 4,4 millj- örðum króna. „Hér er ellefta árið í röð verið að létta byrðum af þeim tekjuhæstu og leggja þær á hina tekjulægstu og auka þannig misskiptinguna í íslensku samfélagi,“ sagði Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylking- arinnar. „Aðaltekjur ríkissjóðs eru að verða skattar á viðskiptahallann og þensluna. Það eru ekki traustar tekjur,“ sagði Jón Bjarnason, vinstri grænum, í umræðunni og bætti við að hátæknifyrirtæki og aðrar útflutn- ingsgreinar blæddu fyrir stefnu stjórnvalda. Breytingatillögur stjórnarand- stöðunnar voru allar felldar. Má þar nefna, tillögu um lækkun matar- skatts og hækkun persónuafsláttar, aukin framlög til háskóla og fram- haldsskólanna. Felld var tillaga um að horfið yrði frá einkarekstri list- danskennslu. Skert framlög til Mann- réttindaskrifstofunnar voru harðlega gagnrýnd og hét stjórnarandstaðan því að fylgja því máli betur eftir. Til- laga um 600 milljóna króna framlag til efnda á samningi við Öryrkja- bandalagið var felld. Tillaga um 500 milljóna króna framlag til að endurreisa fjárhag Byggðastofnunar var einnig felld. „Þetta er gott frumvarp og hefur batnað,“ sagði Pétur H. Blöndal þing- maður Sjáflstæðisflokksins. johannh@frettabladid.is Verulega dregur úr vaxtabyrði ríkisins Fjárlagafrumvarpið varð að lögum á Alþingi í gær. Stjórnarandstaðan segir ójöfnuð og ójafnvægi einkenna fjárlögin en stjórnarliðar telja þau harla góð og benda á milljarða króna aukningu framlaga til mennta- og menningarmála. FJÁRLAGAUMRÆÐA Hart hefur verið deilt á menntamálaráðherra vegna erfiðrar fjár- hagsstöðu háskóla og framhaldsskóla. FJÁRLAGAUMRÆÐA Skuldir ríkissjóðs eru nú einungis 10 prósent af landsframleiðslu segir Magnús Stefánsson, formaður fjár- laganefndar. FJÁRLAGAUMRÆÐA Kristinn H. Gunnarsson, Framsóknarflokki, taldi rétt að vinstri grænir og frjálslyndir sameinuðust í einn flokk. BANDARÍKIN, AP Borgarstjóra Spokane í Washingtonríki í Band- aríkjunum hefur verið vikið úr embætti í sérstökum kosningum. Borgarstjórinn, sem heitir James E. West og er 54 ára, var sakaður um að hafa boðið ungum mönnum sem hann hitti á hommaspjallrásum netsins bæði störf og smágreiða. West lætur af embætti 16. þessa mánaðar þegar búið er að staðfesta úrslit kosninganna. Þegar rúmur helmingur 110 þúsund atkvæða hafði verið talinn var ljóst að um 65 prósent vildu að borgarstjórinn léti af störfum. „Ég sagðist mundu fara að vilja kjósenda og þeir hafa klárlega látið hann í ljós,“ sagði West. ■ Kynlífshneyksli í Spokane: Kjósendur ráku borgarstjórann LÆKKUN GJALDA Leikskólagjöld í borginni munu lækka um fimm þúsund á mánuði frá næstu áramótum. BORGARMÁL Gert er ráð fyrir í nýrri fjárhagsáætlun Reykjavíkurborg- ar sem samþykkt var í fyrradag að leikskólagjöld í borginni lækki strax eftir næstu áramót. Mun almennt leikskólagjald fyrir átta tíma vistun þannig lækka um fimm þúsund á mánuði eða 55 þúsund krónur á ári. Sem fyrr munu einstæðir for- eldrar, öryrkjar og námsmenn njóta hagstæðustu kjaranna og greiða milli 11 og 13 þúsund krónur hvern mánuð. ■ Fjármál Reykjavíkurborgar: Leikskólagjöld eiga að lækka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.