Fréttablaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 46
8. desember 2005 FIMMTUDAGUR
Mikið úrval af keramiki, perlum,
föndurvörum og gjafavörum
Vinnustofan og verslun opin alla daga
Mikið úrval af burstasettum
og neistahlífa, ásamt ýmis
konar aukahlutum.
Opið laugardaga kl. 10-16 og
sunnudaga kl. 12-16 til jóla.
Arinbúðin
Stórhöfða 17 v/Gullinbrú (fyrir neðan húsið)
Sími 567 2133 · www.arinn.is
Listalagerinn
Mikið úrval af listmálaravörum
Járn og gler ehf - Skútuvogur 1
Barkarvogsmegin - S :5858900 www.jarngler.is
Nú er myrkasti tími ársins sem
er líka sá tími þegar hvað flestir
sækja hver annan heim. Þar sem
dagsljóssins nýtur ekki við nema
brot úr degi er lýsingin í jólaboðinu
þeim mun mikilvægari til að skapa
jólastemninguna. Gott er að nota
fleti sem endurvarpa ljósi, eins og
fallega silfurplatta eða spegla, til að
endurvarpa kertaljósi um herbergið
og ekki er verra að skreyta með krist-
öllum og jólakúlum sem endurvarpa
ljósi í sama tilgangi.
Það er líka flott að búa til miðpunkt
í herberginu með því að raða spritt-
kertum þétt saman á lítið borð, í
arininn eða á tilfallandi glerhillur eða
önnur brunatraust svæði.
Ekki má gleyma inniseríum sem gefa
einstaklega fallega birtu. Hægt er
að fá alls kyns inniljós, bæði kransa
og ákveðin form, en líka má leika
sér með langar seríukeðjur. Þær er
hægt að fá af öllu tagi og sumar geta
jafnvel blikkað, allt eftir því hversu
villt veislan á að verða.
Stórar stofur þar sem hátt er til lofts
verða notalegri ef margir litlir lampar
og kertastjakar eru látnir sjá um
lýsinguna frekar en loftljósið. Það
er líka gaman að velta skuggunum
fyrir sér þegar ljósum er stillt upp því
með réttri uppstillingu má búa til
listaverk á loft og veggi.
Alltaf þurfa einhverjir að fara út á
tröppur eða svalir í veislum til að
svala þörfum sínum og það er ekki
úr vegi að láta notalegu jólastemn-
inguna ná þangað. Hægt er að gera
garðinn fallegan með útikertum,
lituðum útiseríum í trjám og litlum
sprittkertum. Best er þó að kerti séu
í vari fyrir veðri og vindum.
Og svona gefur þú myrkrinu langt nef
á meðan við bíðum þess að birti á ný.
lýsing }
Myrkrinu gefið
langt nef
JÓLIN ERU ÁRSTÍÐ LJÚFRAR BIRTU.
Søstrene Grene er ný verslun
í Smáralind. Þar má finna
fallegar og vandaðar gjafa-
vörur á hagstæðu verði í þægi-
legu andrúmslofti.
Íslendingar stóðu í röðum fyrir
utan nýja verslun í Smáralind um
síðustu helgi. Verslunin sem er
svo vinsæl heitir Søstrene Grene
og á rætur sínar að rekja til Dan-
merkur og mörgum Íslendingum
sem þangað hafa komið að góðu
kunn. Búðin var opnuð síðastlið-
inn föstudag en þær Jóhanna Ein-
arsdóttir og Kristín Reynisdóttir
reka hana ásamt eiginmönnum
sínum.
„Eftir að búðin var opnuð hefur
það komið mér á óvart hversu
margir Íslendingar þekkja hana,“
segir Kristín, sem segir þær stöll-
ur hafa verið heppnar að fá leyfi
hjá eigendum til að opna Söstrene
Grene hér á landi. „Þau úti höfðu
neitað fullt af fólki en þau voru
ekki tilbúin til þess, ekki fyrr en
nú,“ segir Kristín og Jóhanna bætir
við: „Við fórum á námskeið í tvær
vikur í Danmörku líka. Þar sett-
um við meðal annars upp búð frá
grunni í Hróarskeldu. Það var mjög
lærdómsríkt.“
Þegar spurt er um sérstöðu
verslunarinnar segja Kristín og
Jóhanna samtímis að það séu fallega
hannaðir hlutir á mjög góðu verði.
Vinkonurnar segja að verðið komi
ekki niður á gæðunum því verðinu
sé haldið í lágmarki með magninn-
kaupum „Neytandinn fær að njóta
góða verðsins. Þetta er hálfgerð
hugsjónabúð og var opnuð sem slík.
Það sem er líka sérstakt við þessa
búð er að vörunum er raðað upp
eftir litum og það er reynt að halda
andrúmsloftinu rólegu, til dæmis
er bara spiluð klassísk tónlist hér
inni. Þetta er mjög neytendavæn
búð,“ segir Jóhanna. „Maður upp-
lifir svolítið listræna stemningu
inni í verslunni,“ bætir Kristín við.
Kristín og Jóhann stefna jafnvel
á að opna fleiri verslanir hér á landi.
„Okkar væntingar voru að Íslend-
ingar myndu taka okkur vel og það
hafa þeir svo sannarlega gert.“
steinthor@frettabladid.is
Biðröð við Søstrene Grene
Kristín og Jóhanna reka Søstrene Grene í Smáralindinni og eru ánægðar með viðtökurnar það sem af er. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BORÐ FYRIR TVO
K R I N G L A N
GLEÐILEGA AÐVENTU