Fréttablaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 90
8. desember 2005 FIMMTUDAGUR70
FÓTBOLTI Franska knattspyrnu-
félagið Lyon, sem hefur orðið
Frakklandsmeistari síðustu fjög-
ur ár, hefur ákveðið að höfða mál
á hendur Alþjóða knattspyrnu-
sambandinu, FIFA, og vonast til
þess að fá bætur vegna meiðsla
sem einn leikmanna liðsins, Eric
Abidal, varð fyrir í landsleik
Frakklands og Kosta Ríka í byrjun
nóvember.
Abidal fótbrotnaði og mun ekki
geta beitt sér neitt innan vallar
næstu fjóra mánuði.
Samkvæmt reglum FIFA er
félagsliðum skylt að leyfa leik-
mönnum sínum að leika lands-
leiki sem fara fram á alþjóðleg-
um leikdögum, sem eru fyrir
fram ákveðnir af FIFA.
Leikurinn sem Abidal meidd-
ist í fór ekki fram á alþjóðlegum
leikdegi FIFA og því telja for-
ráðamenn Lyon félagið eiga rétt
á bótum þar sem Abidal er vitan-
lega samningsbundinn Lyon.
Lyon fer fram á að FIFA greiði
Lille, sem Abidal lék með áður, tíu
milljónir evra og launagreiðslur
leikmannsins að auki.
Vel er fylgst með þessu máli
þar sem ekki hefur áður reynt á
mál af þessu tagi fyrir dómstól-
um hjá FIFA en félagslið hafa oft
kvartað undan því að samnings-
bundnir leikmenn þeirra komi
meiddir úr landsleikjafríum.
- mh
Lyon höfðar mál gegn FIFA vegna meiðsla Abidal:
Kærir meiðsli leik-
manns í landsleik
ERIC ABIDAL Abidal verður lengi frá vegna meiðslanna sem hann varð fyrir í landsleik
Frakka og Kostaríkumanna.
Meistaradeild Evrópu:
LEIKIR Í A-RIÐLI
CLUB BRUGGE - BAYERN MÜNCHEN 1-1
0-1 Claudio Pizarro (21.), 1-1 Javier Portillo (32.)
RAPID VÍN - JUVENTUS 1-3
0-1 Alessandro Del Piero (35.), 0-2 Zlatan Ibrahim-
ovic (42.), 0-3 Alessandro Del Piero (45.).
BAYERN MÜNCHEN OG JUVENTUS
KOMUST ÁFRAM Í KEPPNINNI.
SPARTA PRAG - THUN 0-0
ARSENAL - AJAX 0-0
ARSENAL OG AJAX KOMUST ÁFRAM
Í KEPPNINNI.
LEIKIR Í C-RIÐLI
UDINESE - BARCELONA 0-2
0-1 Santiago Ezquerro (85.), 0-2 Anders Iniesta
(90.).
WERDER BREMEN - PANATHINAIKOS 5-1
1-0 Johan Micoud, víti (2.), 2-0 Nelson Valdes
(28.), 3-0 Nelson Valdes (31.), 4-0 Miroslav Klose
(51.), 4-1 Nasief Morris (53.), 5-1 Torsten Frings
(90.).
BARCELONA OG WERDER BREMEN
KOMUST ÁFRAM Í KEPPNINNI.
LEIKIR Í D-RIÐLI
VILLARREAL - LILLE 1-0
1-0 Antonio Guayre (67.).
BENFICA - MANCHESTER UNITED 2-1
0-1 Paul Scholes (6.), 1-1 Geovanni (17.), 2-1 Beto
(34.).
VILLARREAL OG BENFICA KOMUST
ÁFRAM Í KEPPNINNI.
SS-bikar karla:
ÞÓR-STJARNAN 28-30
Mörk Þórs: Aigars Lazdins 12, Arnór Gunnarsson
7, Rúnar Sigtryggsson 5, Heiðar Aðalsteinsson 2,
Sindri Haraldsson 1, Þorvaldur Sigurðsson 1.
Mörk Stjörnunnar: Tite Kalandadze 7, Kristján
Kristjánsson 6, David Kekelia 6, Björn Friðriksson
5, Björn Guðmundsson 1, Þórólfur Nielsen 1.
Leik FH og ÍBV var frestað og fer fram í kvöld.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
Einkatónleikar
Sinfóníunnar
Ólafur, Dorrit
og fína fólkið
DV2x10 - lesið 7.12.2005 19:48 Page 1
FÓTBOLTI Keppt var um þrjú laus
sæti í gærkvöldi þar sem niður-
staðan í A- og B-riðli lá ljós fyrir
og Barcelona var búið að tryggja
sér sigur í C-riðli. Sú merkilega
staða var í D-riðli að öll liðin gátu
komist áfram og spennan því
magnþrungin allt kvöldið.
Manchester United byrjaði
með miklum látum í Lissabon og
Paul Scholes skoraði fyrsta mark
leiksins á 6. mínútu. United fór
fyrir vikið í toppsæti riðilsins.
Lærisveinar Fergusons voru ekki
lengi í paradís því Geovanni jafn-
aði leikinn með huggulegu marki
ellefu mínútum síðar.
United fékk síðan kalda tusku
í andlitið á 34. mínútu þegar Beto
skoraði með skoti utan teigs sem
fór í varnarmann United og þaðan
í netið. Þannig stóðu leikar í hálf-
leik og United var komið í neðsta
sæti riðilsins þar sem markalaust
var í leik Lille og Villarreal.
Staðan í leiknum kom veru-
lega á óvart, ekki síst í ljósi þess
að nokkra lykilmenn vantaði í lið
Benfica.
Það var ekki að sjá að United
væri að berjast fyrir lífi sínu í síð-
ari hálfleik og þurfti tvö mörk því
Benfica var mun sprækara fram-
an af.
Þegar tuttugu mínútur voru
eftir komst Villarreal yfir gegn
Lille og þar með nægði United
jafntefli.
Það var vonleysi í sóknarleik
United síðustu mínútur leiksins og
ekki síður getuleysi því liðinu gekk
ekkert að opna vörn heimanna.
Fögnuður Benfica í leikslok var
einlægur enda áttu fáir von á að
þeir kæmust áfram. United-menn
gengu hníptir af velli en þeir geta
lítið kvartað.Léleg spilamennska
varð liðinu að falli í keppninni og
liðið var einfaldlega ekki nógu til
þess að komast áfram.
henry@frettabladid.is
Man. Utd. komst ekki
áfram í Meistaradeildinni
Það var mikil spenna þegar riðlakeppni Meistaradeildarinnar kláraðist í gær.
Öll liðin í D-riðli gátu komist áfram en Villarreal og Benfica fóru áfram að lok-
um. Þetta var í fyrsta skipti sem United kemst ekki áfram eftir riðlakeppnina.
MARKIÐ DUGÐI EKKI TIL Paul Scholes kemur hér Man. Utd. yfir í leiknum í Portúgal. Markið dugði ekki til. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES