Fréttablaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 50
8. desember 2005 FIMMTUDAGUR
Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar
efnir til aðventukvölds í Hafnarfjarð-
arkirkju sem hefst kl. 20. Óperukór
Hafnarfjarðar syngur. Að athöfn-
inni lokinni er boðið upp á kakó,
piparkökur og konfekt í safnaðar-
heimilinu.
Köntrísveit
Baggalúts efnir
til stórhljóm-
leika á NASA
við Austurvöll í
tilefni af útkomu
hljómdisksins
Pabbi þarf
að vinna.
Tónleikarnir
hefjast kl. 22.00
stundvíslega. Sérstakur leynigestur er
Rúnar Júlíusson.
Skáld frá Bókaútgáfunni Sölku lesa
upp úr nýútkomnum verkum sínum
á Súfistanum kl. 20.
á jóladöfinni }
8. desember
Margrét Eir Hjartardóttir
söngkona eldar alltaf kalkún á
jólunum og með honum finnst
henni best að hafa kartöflumús
úr sætum kartöflum. Uppskrift-
ina að kartöflumúsinni fékk
hún í Bandaríkjunum.
„Jólamaturinn er undir áhrif-
um frá þakkargjörðarhátíðinni,“
segir Margrét, sem hefur verið
mikið í Bandaríkjunum. „Ég var
skiptinemi í Bandaríkjunum
og þar fékk ég fyrst að smakka
þennan gómsæta þakkargjörðar-
hátíðarmat. Mér finnst hann voða
jólalegur líka því þegar þakkar-
gjörðarhátíðin er eru alveg að
koma jól.“
Margrét hreifst greinilega af
Bandaríkjunum þegar hún var
skiptinemi þar því hún fór síðar í
leiklistarnám til Boston og núna
er hún í námi í Bandaríkjunum
og er þar með annan fótinn eins
og hún segir. Margrét er ennþá
í mjög góðu sambandi við fjöl-
skylduna sem hún var skiptinemi
hjá þó að það séu sextán ár síðan
hún bjó hjá henni. „Ég komst
reyndar ekki þangað á þakkar-
gjörðarhátíðinni núna en það var
upphaflega ætlunin,“ segir hún.
Fjölskyldan sem Margrét bjó
hjá sem skiptinemi notaði sætar
kartöflur mjög mikið. „Ég á mjög
sérstaka uppskrift þaðan að kart-
öflumús úr sætum kartöflum
sem ég hef með kalkúninum.
Það gerir þetta enginn nema ég
svo ég er strax farin að taka við
pöntunum frá vinum mínum sem
vilja fá að koma í mat um jólin,“
segir Margrét, sem ætlar að gefa
upp uppskriftina að sætu kartöfl-
unum.
Þakkargjörðarhátíðar-
matur á jólunum
Margrét Eir eldar jólamat eftir bandarískri þakkargjörðarhátíðaruppskrift. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
SÆT KARTÖFLUMÚS
3 bollar stappaðar soðnar
sætar kartöflur
1/2 bolli sykur
1/2 tsk. salt
2 egg
3 msk. smjör
1/2 bolli mjólk
vannilludropar
Öllu blandað saman og sett í
eldfast mót.
1 bolli púðursykur
1/2 bolli hveiti
2 1/2 msk. brætt smjör
Blandað saman og sett ofan
á kartöflublönduna í mótinu.
Bakað við 150-200 gráður í 30
mínútur.
Alla þriðjudaga til laugardaga
virka daga
frá kl.14
490 kr. 1 klst.
Opið