Fréttablaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 64
8. desember 2005 FIMMTUDAGUR44
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.154 -0,07% Fjöldi viðskipta: 141
Velta: 1.562 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Bakkavör 49,70 -0,70% ... Flaga
5,01 +0,00% ... HB Grandi 9,50 +0,00% ... Íslandsbanki 16,80
+0,60% ... Jarðboranir 24,00 +0,00% ... KB banki 662,00 +1,10%
... Kögun 59,80 +1,00% ... Landsbankinn 24,00 +0,40% ... SÍF
4,15 +0,00% ... Straumur-Burðarás 15,50 +0,70%
MESTA HÆKKUN
Atlantis +2,53
Fl Group +1,22%
Össur +0,9%
MESTA LÆKKUN
Dagsbrún -1,77%
Marel -0,92%
Actavis -0,61%
�������������������������
������������������������������
�
�
��
��
�
������������
���������������������
�����������������������
������������������
�������
��������������������������
����������������������
����������������������
������������
������������
�����������������
��������������������������������������������
Verðmæti hlutabréfa orska
athafnamannsins Kjells Inge
Rökke í Aker-fyrirtækjasam-
steypunni eru orðin eitt hundruð
milljarða króna virði. Á árinu
hefur eignarhluturinn hækkað
um hvorki meira né minna en
360 prósent samkvæmt frétt
Aftenposten, eða sem nemur 80
milljörðum króna.
Á skömmum tíma hafa auð-
æfi kappans margfaldast. Fyrir
aðeins tveimur árum síðan
hefði engin getað
ímyndað sér að
veldi Rökkes næði
þessum hæðum,
enda stóð það á
brauðfótum þá.
A k e r -
f y r i r t æ k j a -
s a m s t e y p a n
samanstend-
ur af olíu- og
gasfélaginu
Aker og
d ó t t u r f é -
lögum þess
o l í u f y r i r -
tækinu Aker
K v æ r n e r ,
skipa- og flutn-
i nga félag i nu
Aker American
seafood, útgerð-
arfélaginu Aker
Seafood og Aker
Yards, skipasmíðastöðinni.
Rökke á um 68 prósent í Aker
en markaðsvirði þess fór í fyrsta
skipti yfir 150 milljarða
króna í gær. Félagið
er skráð í kauphöll-
inni í Osló.
- eþa
Á 100 milljarða í
Aker-samsteypunni
KJELL INGE RÖKKE
Eignarhlutur hans
í Aker-sam-
steypunni er
nú orðinn eitt
hundrað millj-
arða króna
virði.
Te- og kaffikeðjan hefur
fallið hratt niður á árinu.
Baugur Group og Pálmi Haralds-
son stefna að því að gera yfir-
tökutilboð í Whittard of Chelsea
eins og Markaðurinn greindi frá
í gær. Ef af kaupunum verður
hyggjast fjárfestarnir sameina
rekstur Whittard við sælkerakeðj-
una Julian Graves sem er í eigu
sömu aðila.
Fastlega er búist við að yfir-
tökuverðið verði á bilinu 85-95
pens sem þýðir að að markaðsvirði
félagsins er rétt um 2,3 milljarðar
króna.
Þetta er í annað skipti á skömm-
um tíma sem fjárfestarnir reyna
að komast yfir Whittard. Í júlí
tilkynnti stjórn Whittards að hún
ætti í viðræðum við nokkra aðila
um yfirtöku á verslunarkeðjunni
en þær fóru út um þúfur. Baugur
mun hafa verið einn þessara aðila.
Whittard stendur á gömlum
merg en fyrirtækið var stofnað
árið 1865. Það hefur átt undir högg
að sækja eftir spreningarnar í
London í júlí en þær höfðu neikvæð
áhrif á breska smásöluverslun.
Gengi bréfa í Whittard hefur lækk-
að mikið á þessu ári, meðal annars
vegna sölusamdráttar. Í upphafi
var gengi bréfanna um 190 pens á
hlut en standa nú í 90 pensum.
Fimmtungur 126 verslana
Whittard eru staðsettar í London.
Verslunarkeðjan sérhæfir sig í
sölu á kaffi og tei sem og sælkera-
varningi.
Franski bankinn Credit Agri-
cole Cheuvreux, sem var þriðji
stærsti hluthafinn í Whittard, seldi
nær öll bréf sín í fyrradag eftir að
fréttir bárust af yfirtökuviðræð-
unum. Ekki er talið að Baugur og
Pálmi standi á bakvið þessi við-
skipti. - eþa
Önnur atlaga að Whittard
VILJA KAUPA SÆLKERAKEÐJU Baugur og Pálmi Haraldsson eiga í viðræðum við stjórn Whittard
of Chelsea um yfirtöku.
Samkeppnisyfirvöld, fjármála-
eftirlit og einkavæðingarnefnd
Búlgaríu hafa óskað eftir upplýs-
ingum um fyrirhuguð kaup Novat-
ors, félags í eigu Björgólfs Thors
Björgólfssonar, á eignarhaldsfé-
laginu Viva Ventures.
Viva Ventures eignaðist 65
prósenta hlut í búlgarska síma-
fyrirtækinu BTC við einkavæð-
ingu þess í fyrra. Novator hefur
samið um kauprétt á hlutum
breska Advent International í
Viva Ventures. Við einkavæðingu
BTC setti búlgarska ríkið ýmis
skilyrði. Voru viðskiptin meðal
annars háð samþykki fjármála-
eftirlitsins, samkeppnisyfirvalda
og einkavæðingarnefndar lands-
ins. Samkvæmt upplýsingum
Markaðarins kemur því óskin
eftir upplýsingum ekki á óvart.
Einfaldlega sé verið að kalla
eftir þeim til þess að viðkomandi
stofnanir geti yfirfarið málið og
veitt sitt samþykki. -hhs
Óska upplýsinga
BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON Búlgörsk yfirvöld óska eftir upplýsingum um kaup
Novators á Viva Ventures.
MARKAÐSPUNKTAR
Hrein kaup innlendra aðila á erlendum
verðbréfum hafa aldrei verið meiri en í
október. Þá námu þau tæpum 28 millj-
örðum króna. Fram til þessa námu þau
hæst 11 milljörðum í apríl 2005.
Landsbanki Íslands er orðinn kauphall-
araðili í OMX-kauphöllunum í Kaup-
mannahöfn, Stokkhólmi og Helsinki.
Aðildin öðlast gildi frá og með 12.
desember næstkomandi.
Actavis hefur skráð hlutafjáraukningu
um 16.025.823 krónur til að mæta
kaupréttarsamningum. Heildarhlutafé
félagsins er eftir framangreinda hækkun
alls 3.354.671.117 hlutir.
Spáð í næstu leiki
KB banki sótti sér hátt í hundrað milljarða á
Bandaríkjamarkað í skuldabréfaútboði. Bankinn
er því fullur af peningum þessa dagana og menn
spyrja sig eðlilega í hvað þeir eigi að fara. Það er
ekki líkt mönnum á þeim bænum að láta pening-
ana undir koddann, enda væru KB bankamenn þá
sennilega með dálítinn hálsríg
af því að hafa alltaf svona
hátt undir höfðinu.
Bankinn hefur reyndar
verið í stórum verkefnum
í Bretlandi með Tchenguiz
bræðrum og hefur einnig
verið orðaður við
þátttöku í kaupum á
Compass veitinga-
húsakeðjunni. Sú
keðja hefur ekki
gengið vel, en
bankinn hefur
yfirleitt haldið
sig við þá stefnu að kaupa vel rekin fyrirtæki
með sterkum stjórnendum. Hitt er svo að þegar
bankinn hefur lokið vinnu við að sameina rekstur
Singer og Friedlander inn í starfsemi
sína, þá er ekki ólíklegt að augu þeirra
fari að beinast að næstu kaupum á
fjármálafyrirtæki.
Atorkumaður í Landsbankann
Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri
Atorku, fékk ágætis starfslokasamning þegar
hann fór frá félagiun. Hann leiddi félagið með
góðum árangri um árabil og fáir velktust í vafa
um að eftir honum yrði sóst á öðrum vettvangi.
Hann fékk ekki langan tíma til að mæla göturnar,
því nú hefur heyrst að Landsbankinn hafi krækt
í hann. Hann hefur mikla reynslu af kaupum
og endurskipulagningu fyrirtækja frá Atorkuár-
unum og ekki að efa að sú reynsla geti komið
Landsbankanum að góðum notum í umbreyting-
arverkefnum.
Peningaskápurinn