Fréttablaðið - 08.12.2005, Page 51
[ ]
Dreifingaraðili
Enginn getur betur
Leyfðu viðskiptavininum að velja!!!
Þarasósa, grasasósa og
sölvasósa eru nýkomnar á
markaðinn í snyrtilegum neyt-
endaumbúðum, ásamt kryddi
úr ýmsum fjörugróðri. Þetta er
næringar- og steinefnarík vara.
„Þari og söl eru fjársjóður sem
vert er að gefa gaum, enda liggur
hann við fætur okkar. Þessi sjávar-
gróður var nýttur hér á landi strax
við upphaf byggðar og langt fram
eftir öldum en neysla hans lagðist
af nema hvað söl hafa verið snædd
sem snakk. Það er fyllsta ástæða
til að endurvekja neysluna enda er
ört vaxandi áhugi á sjávargróðri í
heiminum sem hágæðahollustu-
vöru,“ segir Eyjólfur Friðgeirsson
líffræðingur, sem stendur bak við
fyrirtækið Hollustu úr hafinu ehf.
Hann segir nýju þaravörurnar
komnar í Heilsuhúsið, Melabúðina
og Fjarðarkaup og að til standi að
dreifa þeim víðar. En hvert er inni-
hald þeirra? „Grunnurinn í þarasós-
unum er sojasósa, eplaedik og fleira
sem er síðan kryddað með þara og
fjallagrösum,“ segir hann og bætir
við að hressandi sjávarkeimur sé
af þarasósunum en grasabragðið
sé mildara. Krydd úr þurrkuð-
um fjörugrösum segir hann gott
í brauð, pottrétti og salatsósu en
helsti kosturinn sé samt hollustan.
„Þetta er ómenguð náttúruvara því
fjörugrös eru rík af próteini, A- og
B-vítamíni, joði, járni og fleiri lífs-
nauðsynlegum steinefnum,“ segir
líffræðingurinn Eyjólfur.
Forláta heilsuvörur úr hafinu bláa
Sósur og krydd úr sjávargróðri og
fjallagrösum.
Afslöppun er nauðsynleg annað slagið. Það þarf ekki endilega
að nota allar helgar til þess að taka til og fara í búðir og heimsóknir.
Það getur líka verið gott að slappa bara af heima með fjölskyldunni.
Bjargey Ingólfsdóttir,
iðjuþjálfi og hönnuður,
segir að hendurnar séu
okkar dýrmætustu verkfæri
og nauðsynlegt að hlúa
almennilega að þeim. Hún
hefur í því skyni hannað Bara-
heilsupúðana.
„Ég hef verið að þróa þessa
heilsupúða í þrjú ár,“ segir
Bjargey Ingólfsdóttir iðjuþjálfi,
sem hannar og selur þessa
skemmtilegu heilsupúða. „Ég
hef aldrei getað gleymt orðum
bæklunarlæknisins sem kenndi
mér í Þrándheimi sem sagði að við
værum illa hönnuð til að sitja.“ Og
hún skýrir málið nánar.
„Forfeður okkar ferðuðust um
með láréttan hrygg þangað til
einhverjum datt í hug að rétta sig
upp. Þá hefst saga tvífætlingsins
Homo Erectus. En nú erum við
orðin Homo Kyrrseticus því svo
mörg störf í okkar samfélagi eru
unnin af sitjandi fólki. Mannslík-
aminn er ekki búinn að laga sig
að þessari sitjandi stöðu og mjög
margir eiga við bakvandamál að
stríða, þjást af vöðvaspennu og
verkjum. Húsgögn eru sjaldnast
hönnuð til að veita góðan stuðning
við bak og handleggi og við erum
alltaf að leita leiða til að halda
bakinu beinu.“ Hugmynd Bjarg-
eyjar með heilsupúðanum er að
bæta setstöðuna því stuðningur
undir framhandleggina auðveldar
okkur að sitja betur og slaka á í
herðum og handleggjum. „Bara-
heilsupúðum er ætlað að minnka
og fyrirbyggja verki í herðum,
handleggjum og höndum og auð-
velda okkur að stunda ýmsa iðju.
Það er svo nota-
legt þegar maður
er kominn með
þennan stuðning
undir hendurnar,
bæði til að slaka á
og líka til að geta
unnið. Mér finnst
mikilvægt að
við hlúum vel að
okkar dýrmætustu
verkfærum sem
eru hendurnar og
einnig að við slök-
um vel á þegar við
sitjum.“
Bara-heilsupúðarnir fást í
þremur stærðum og gerðum og
eru eftir því kallaðir 1, 2 og 3.
„Eitt líkist banana í formi og er
nokkurs konar björgunarhring-
ur þannig að maður getur hvílt
framhandleggina og hefur frítt
vinnupláss fyrir framan sig. Hann
nýtist til dæmis við prjónaskap og
tölvuvinnu. Einnig er hægt að nota
hann sem stuðning við mjóbakið.
Tvö er stærsti púðinn og hann er
góður til að hvíla hluti á því það
er nokkurs konar „vinnuborð“ á
honum. Hentar vel við bóklestur,
sitjandi og í rúmi. Þrjú er minnsti
púðinn og passar inn í þröngan
stól eins og hjólastól eða leikhúss-
tól. Þeir hjálpa allir til við að hvíla
hendurnar og slaka á.“
Bjargey segir að púðarnir séu
ekki hugsaðir fyrir neinn sérstak-
an hóp heldur fyrir alla þá sem
kenna verkja í öxlum eða höndum.
„Púðana eiga allir að
geta nýtt sér, hvar og
henær sem er. Mér
fannst mikilvægt
í hönnun þeirra að
hafa þá fallega svo
fólk geti hugsað sér
að hafa þá í sófan-
um heima. Þetta eru
ekki einhvers konar
heilsuvara sem þú
stingur undir stól af
því að þí vilt ekki láta
hana sjást heldur er
bæði notagildi og fal-
legt útlit.“
En af hverju heita þessir heils-
upúðar þessu nafni?
„Þegar við lyftum öxlunum
segjum við oft - bara - og það er
gott fyrir axlirnar að lyfta þeim.
Það eru púðarnir líka. Svo notum
við orðið bara líka á svo marga
vegu og notkunarmöguleikar púð-
anna eru margvíslegir líka.“
Bjargey hefur þróað púðana
í samvinnu við notendur og heil-
brigðisstarfsfólk, sem hefur hvatt
hana til að koma þeim á fram-
færi.
Hægt er að fá meiri upplýsing-
ar um bara-púðana og panta þá á
heimasíðunni www.bara123.is.
Bara-heilsupúðarnir fást í þremur
ólíkum stærðum og gerðum.
Bara-heilsupúðinn fyrir
Homo Kyrrseticus
Hér vinnur Bjargey að handverki sínu á
púða númer tvö en hún er líka listakona
og vinnur meðal annars hluti í vír.