Fréttablaðið - 08.12.2005, Qupperneq 82
8. desember 2005 FIMMTUDAGUR62
Aldarfjórðungur er í dag lið-inn frá því Bítillinn fyrr-verandi John Lennon var
myrtur fyrir utan Dakóta-bygg-
inguna í New York.
Lennon var aðeins fertugur
þegar ódæðið var framið. Söku-
dólgurinn var Mark Chapman,
sem fyrr um daginn hafði feng-
ið eiginhandaráritun hjá goð-
inu. Þegar Lennon sneri aftur
ásamt eiginkonu sinni Yoko Ono
úr upptökuveri seint um kvöldið
tók Chapman fram byssu sína og
hleypti fjórum skotum af. Þrjú
þeirra fóru í bak Lennons og
skömmu síðar lést hann á leiðinni
á sjúkrahúsið.
Þegar Lennon var myrtur hafði
hann nýlega fengið andann yfir sig
á ný og var farinn að semja tónlist
eftir fimm ára hlé. Platan Double
Fantasy sem hann gerði með Yoko
var gefin út mánuði fyrir dauða
Lennons. Vann hún Grammy-verð-
launin árið eftir sem besta platan.
Þykir fráfall Lennons sérlega
sorglegt af þessum sökum.
Einn af hötuðustu mönnum veraldar
Mark Chapman hefur verið einn
af hötuðustu mönnum veraldar
síðan hann skaut Lennon. Hvað
rak hann til verknaðarins er erfitt
að segja, en hann þjáðist af þung-
lyndi og virtist telja sig öðlast ein-
hvers konar sess í þjóðfélaginu
með morðinu.
Árið 1977 reyndi hann sjálfs-
víg með því að anda að sér eitur-
gufum úr bíl sínum og eftir það
fékk hann bók JD Salinger, The
Catcher in the Rye, á heilann. Sá
hann sjálfan sig í aðalpersónunni,
sem átti erfitt með að aðlagast
samfélaginu. Í kjölfarið fór hann
að hata Lennon. Eftir að hann sá
ljósmynd af Lennon þar sem hann
stóð á þaki Dakóta-byggingarinn-
ar gerðist eitthvað í hausnum á
honum. „Ég man að ég sagði við
sjálfan mig, „Hvað ef ég drep
hann“,“ sagði Chapman eitt sinn.
Í lögregluskýrslu hafði Chap-
man þetta að segja: „Lítill hluti af
mér skilur ekki heiminn og hvað
er að gerast í honum. Ég vil ekki
drepa neinn og ég veit eiginlega
ekki hvers vegna ég gerði þetta.“
Chapman játaði sig sekan í
réttarhöldum sem stóðu yfir í
stuttan tíma árið 1981. Hann var
dæmdur í tuttugu ára fangelsi
eða til lífstíðar fengi hann ekki
reynslulausn. Þrisvar sinnum
hefur honum verið neitað um
reynslulausn í Attica-fangelsinu í
New York þar sem hann dúsir og
kemur það fáum á óvart.
Sólóplötur í bílförmum
Þrátt fyrir ódæði Chapmans hefur
goðsögnin John Lennon haldið
áfram að lifa. Plötur Bítlanna
jafnt sem sólóplötur Lennons
halda áfram að seljast í bílförmum
auk þess sem reglulega koma út
safnplötur með bæði Bítlunum og
Lennon sem hafa einnig rokið út,
þar á meðal ein með Lennon fyrir
skömmu síðan. Lennon er næstum
daglega í fréttunum þótt hann sé
löngu dáinn. Segir það margt um
hversu mikil áhrif hann hefur haft
á heiminn með tónlist sinni og bar-
áttu fyrir friði í heiminum.
Chapman fær þó einnig sinn
skerf af athyglinni á næstunni
því ný kvikmynd um hann og
dagana sem liðu fram að morð-
inu á Lennon er væntanleg
með stjörnunum Jared Leto og
Lindsay Lohan í aðalhlutverkum.
Þá getur fólk glöggvað sig enn
frekar á tildrögum morðsins á
John Lennon. ■
Goðsögnin lifir áfram
MARK CHAPMAN Morðingi John Lennon er
einn hataðasti maður veraldar.
Í HANDJÁRNUM Chapman leiddur í burtu af lögreglunni eftir að hafa verið handtekinn fyrir
morðið.
FYRIR UTAN DAKÓTA Hátt í 5000 manns söfnuðust saman fyrir utan Dakóta-bygginguna
um leið og fregnir bárust af morðinu.
JOHN OG YOKO
Þessi mynd var
tekin af hjón-
unum í New
York í ágúst
1980.
Hópur fólks frá Skákfélaginu Hróknum, Barnaheillum á Íslandi, Rauða krossinum
og Kalak, vinafélagi Íslands og
Grænlands, hélt til Grænlands á
laugardaginn með heillaóskir frá
Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta
Íslands, í farteskinu. Þar fyrir utan
var hópurinn klyfjaður 500 skák-
settum, sælgæti og jóladagatölum
sem til stendur að færa grunn-
skólabörnum á Austur-Grænlandi.
Þegar hópurinn lenti í Kul-
usuk var liðinu skipt og Hrafn
Jökulsson, forseti Hróksins, og
Henrik Danielsen, skólastjóri
Hróksins, sigldu í gegnum ísinn
ásamt Sigurði Péturssyni, sem
jafnan er nefndur Ísmaðurinn,
til smábæjarins Kuummiit.
Gleðin í Kuummiit var mikil
þegar Hróksmönnum hafði tek-
ist að ryðjast með gjafirnar til
barnanna í gegnum skaflana og
einlæg gleðin skein úr hverju
andliti þegar skákborðin frá
Pennanum og jóladagatölin frá
Lyonshreyfingunni voru dregin
upp úr kössunum.
Höfuðstöðvar ferðalanganna
eru í Tassiilaq, höfuðstað Aust-
ur-Grænlands, og þar kennir
Henrik Danielsen börnunum
skák í grunnskólanum og er
áhuginn svo mikill að krakk-
arnir raða sér meðfram göng-
um skólans með nýju taflsettin
sín og tefla af miklum móð. Þá
var slegið upp barnaskákmóti í
skólanum og fór þátttakan fram
úr björtustu vonum. „Þetta er
stórkostlegur árangur,“ sagði
Henrik Danielsen að loknu mót-
inu. „Börnin skemmtu sér afar
vel í kvöld enda tel ég mikilvægt
að gefa krökkunum tækifæri til
að tefla og skemmta sér. Það var
einnig mikilvægt að allir fengu
verðlaun. Þannig fá krakkarnir
tilfinningu fyrir árangri.“
Henrik hefur sótt um íslensk-
an ríkisborgararétt og undirrit-
aði alla tilskylda pappíra vegna
þessa í grunnskólanum í Tass-
iilaq á þriðjudag. Hann hefur
búið á Íslandi undanfarin tvö ár
og sér þann draum heitastan að
setjast hér að og kenna íslensk-
um börnum að tefla.
thorarinn@frettabladid.is
Skákgleði á Grænlandi
FJÖR Í KUUMMIIT Krakkarnir í Kuummiit tóku Hróksliðinu fagnandi og þarna er Hrafn
Jökulsson í góðra vina hópi.
HENRIK DANIELSEN Kennir skák í grunnskólanum í Tassiilaq. „Tilgangurinn hér á Grænlandi
er ekki að búa til nýjan Kasparov heldur að hjálpa krökkunum að þroskast og læra. Gefa
þeim tækifæri til að prófa eitthvað nýtt. Að mínu mati er skákbyltingin hafin hér á Græn-
landi. Heimamenn hafa tekið risastórt skref.“
NAMMI Íslenska sælgætið vakti ekki minni
kátínu en skáksettin og klukkurnar enda
svona gúmmilaði sannkallur hvalreki í
þessu afskekkta þorpi.
ARNAR VALGEIRSSON STARFSMAÐUR VINJAR,
ATHVARFS RAUÐA KROSSINS FYRIR GEÐ-
FATLAÐA Fór með þyrlu til smáþorpsins Tin-
iteqillaq og færði krökkunum þar glaðning.