Fréttablaðið - 08.12.2005, Qupperneq 86
66 8. desember 2005 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
34 6. október 2005 FIMMTUDAGUR
� � LEIKIR
� 20.30 Keflavík og Madeira eigast
við í Evrópukeppninni í körfubolta.
� � SJÓNVARP
� 16.30 Handboltakvöld á RÚV.
� 18.00 Íþróttaspjallið á Sýn.
� 18.30 Stump the Schwab á Sýn.
Spurningarþáttur um íþróttir.
� 19.30 Race of Champions 2005 á
Sýn. Bestu ökuþórar heimsins etja
kappi.
� 20.00 Tuttugu bestu atvik HM á
Sýn. Þáttur um minnistæð atvik í
sögu heimsmeistarakeppninnar.
� 21.30 Fifth Gear á Sýn.
� 22.00 Tiger Woods á Sýn.
� 23.35 Bestu bikarmörkin á Sýn.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
5 6 7 8 9 10 11
Fimmtudagur
DESEMBER
54-55 (34-35) Sport seinni 7.12.2005 18:29 Page 2
KÖRFUBOLTI „Við verðum að mæta
fullir sjálfstrausts í leikinn og það
verður nauðsynlegt fyrir okkur að
stjórna hraðanum í leiknum. Ef
okkur tekst það getur allt gerst,“
sagði Sigurður Ingimundarson,
þjálfari Keflavíkur, en lið hans
tekur í kvöld á móti portúgalska
liðinu Madeira í sextán liða úrslit-
um Evrópukeppninnar.
Keflavík hefur tvisvar áður
mætt liði Madeira í Evrópukeppn-
inni og hafa viðureignir liðanna
verið einstaklega jafnar. Keflavík
vann þá heimaleiki sína en tapaði
útileikjunum.
Sigurður er ekki í nokkrum
vafa um að Keflavík geti lagt
Madeira að velli, þótt nú sé meira
undir en í fyrri viðureignum. „Ég
held að það muni skipta miklu
máli í leikjunum gegn Madeira að
liðin ráði vel við spennustigið. Við
höfum undirbúið okkur vel fyrir
þennan leik og það er mikil til-
hlökkun í mannskapnum. Sterk-
ustu leikmenn Madeira eru ekki
sérstaklega fljótir og það ættum
við að geta nýtt okkur. Skytturn-
ar okkar þurfa að hitta vel og
áhorfendur verða að skapa mikla
stemningu. Við eigum að geta
unnið hvaða lið sem er á okkar
heimavelli og þó við séum í sex-
tán liða úrslitum í Evrópukeppni
gerum við kröfu um að vinna
heimaleiki okkar.“
Gengi Keflavíkur hefur verið
svolítið sveiflukennt upp á síð-
kastið í Iceland Express-deild-
inni. Sigurður segir leikinn gegn
Madeira hafa truflað leikmenn
sína. „Við erum í toppbaráttunni í
deildinni hér heima en við höfum
samt ekki spilað af fullum styrk
að undanförnu. Við náum yfirleitt
fram okkar besta í Evrópukeppn-
inni og nú er það undir okkur
komið að sýna að við getum kom-
ist lengra í keppninni. Við höfum
tvisvar áður komist þetta langt í
keppninni, en nú viljum við kom-
ast lengra.“
magnush@frettabladid.is
Viljum komast lengra
Keflavík mætir í kvöld Madeira í sextán liða úrslitum Evrópukeppninnar í
körfubolta. Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur, hefur fulla trú á liði
sínu og er ekki orðinn saddur. Hann gerir kröfu um sigur í kvöld.
SIGURÐUR INGIMUNDARSON Sigurður telur Keflavíkurliðið til alls líklegt í Evrópukeppninni,
en liðið er nú komið í sextán liða úrslit í þriðja skipti í sögu félagsins.
FÓTBOLTI Harry Redknapp var
í gær ráðinn knattspyrnustjóri
Portsmouth, en Milan Mandaric,
forseti Portsmouth, greindi frá
því fyrir nokkrum dögum að Red-
knapp myndi ekki taka við liði
félagsins.
Málin tóku óvænta stefnu í gær
þegar Redknapp lýsti því yfir að
hann vildi ólmur taka við starfi
knattspyrnustjóra hjá Portsmouth
og eftir fund með Mandaric í gær-
morgun var ákveðið að Redknapp
myndi taka við liði félagsins.
Mandaric sagði Redknapp
hafa verið fyrsta kostinn til þess
að taka við stöðunni. „Ég vildi fá
Redknapp til starfa hjá félaginu
að nýju enda er hann góður knatt-
spyrnustjóri og hann náði góðum
árangri þegar hann var hér. Ég er
viss um að Redknapp muni ná að
rífa liðið upp úr þeirri lægð sem
það hefur verið í. Það eru bjartir
tímar fram undan.“
Redknapp sjálfur, sem hefur
ekki verið í náðinni hjá stuðnings-
mönnum Portsmouth síðan hann
ákvað að fara til erkifjendanna í
Southampton, var rólegur og yfir-
vegaður á blaðamannafundinum
sem haldinn var í gær. „Ég hlakka
til þess að fara að vinna aftur sem
knattspyrnustjóri hjá Portsmouth.
Ég þekki félagið og ætla að gera
mitt besta.“ - mh
Portsmouth ætlar sér á beinu brautina að nýju:
Redknapp ráðinn stjóri
HARRY REDKNAPP Redknapp náði athygl-
isverðum árangri með Portsmouth þegar
hann starfaði hjá félaginu síðast en hans
bíður nú erfitt verkefni.
FÓTBOLTI Mikið hefur verið rætt og
ritað um holdarfar Waynes Roon-
ey frá því hann kom fram á sjón-
arsviðið. Mörgum hefur þótt hann
helst til digur og sú saga að hann
lifi á skyndibitafæði hefur verið
ansi þrálát.
Unnusta Rooneys, Coleen
McLouglin, segir að slíkar sögur
séu algjörlega ósannar enda lifi
Rooney ákaflega heilbrigðu lífi.
„Það halda allir að Wayne sé að
éta hamborgara allan daginn en
það er fjarri sannleikanum og ég
get ekki neitað því að þessar sögur
fara í taugarnar á mér. Sannleik-
urinn er sá að hann er sólginn í
grænmeti og honum finnst fátt
betra en að fá sér gott salat,“ sagði
McLoughlin, sem er fræg fyrir
lítið annað en kaupáráttu sína.
Á næstu dögum verður sýnd
heimildarmynd um líf hennar sem
konu knattspyrnustjörnu og þar
blæs hún á þær sögur að hún sé
verslunarfíkill en hún hefur helst
unnið sér það til frægðar hingað
til að versla meira en aðrir.
Wayne Rooney er ekki sólginn í skyndibitamat:
Grænmetisæta sem finnst
best að fá sér salat
ROONEY Á KASSANUM Er grænmetisæta og
ekki eins feitur og fólk vill vera láta.
FÓTBOLTI Það verður væntanlega
hart barist um hinn 21 árs gamla
Hollending Nigel de Jong, sem
hefur neitað að framlengja samn-
ing sinn við Ajax. De Jong er fjórði
leikmaðurinn hjá Ajax sem neit-
ar að framlengja en áður höfðu
Steven Pienaar, Hatem Trabelsi
og Maxwell hafnað samningstil-
boði frá hollenska félaginu.
„Mér finnst ég þurfa að taka
næsta skref á mínum ferli,“ sagði
de Jong en samningur hans renn-
ur út næsta sumar. Þess vegna
er ekki ólíklegt að Ajax reyni að
selja hann í janúar.
Manchester United er talinn
vera líklegur áfangastaður hjá de
Jong enda hefur Sir Alex Fergu-
son, stjóri Man. Utd., lengi haft
augastað á kappanum.
Nigel de Jong:
Á förum frá
Ajax
NIGEL DE JONG Fer hann til Man. Utd.?
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Rafael van der Vaart ökkla-
brotnaði leik með liði Hamborgar
gegn Köln en hann hefur leikið
frábærlega með liðinu á tímabil-
inu og hefur verið einn af bestu
leikmönnum þýsku úrvalsdeildar-
innar í vetur.
Thomas Doll, knattspyrnu-
stjóri Hamborgara, var að vonum
ósáttur við að missa miðjumann-
inn sterka í meiðsli. „Ég er von-
svikinn yfir því að Rafael van der
Vaart skuli hafa meiðst en von-
andi verður hann fljótur að jafna
sig. Hann er frábær leikmaður
og mun eflaust koma sterkari til
baka eftir þetta.“ - mh
Meiðsli hjá Hamborg:
Van der Vaart
ökklabrotinn
RAFAEL VAN DER VAART Hollendingurinn
snjalli hefur verið einn besti leikmaður
Þýskalands í vetur.
FRJÁLSAR Breska hlaupadrottning-
in Kelly Holmes kom verulega á
óvart þegar hún tilkynnti að hún
hefði ákveðið að leggja hlaupa-
skóna á hilluna frægu.
Holmes segist ekki lengur hafa
löngunina til að keppa á meðal
þeirra bestu en hún vann til
tvennra gullverðlauna á Ólympíu-
leikunum í Aþenu. Einnig spilar
inn í að einstaklingur sem var
mjög náinn Holmes lést skyndi-
lega á dögunum en dauðsfall hans
hafði mikil áhrif á hana.
Hlaupakonan Kelly Holmes:
Hefur lokið
keppni
Íslenskir íþróttamenn hafa í gegnum
tíðina tekið upp á ýmsu til að safna
peningum fyrir keppnisferðalög og
handknattleikslið ÍR er þar engin undan-
teking. Strákarnir ætla í viku æfinga- og
stemningsferð til Kanaríeyja 4. janúar
næstkomandi og gera þeir ýmislegt til
að safna fyrir ferðinni.
„Við ætlum að bóna bíla um helgina
og svo eru fleiri fjáröflunarleiðir í gangi
sem allar eiga það sameiginlegt að vera
skemmtilegar,“ sagði Gísli Guðmunds-
son, fyrirliði og markvörður ÍR-liðsins.
„Stefnan er að ná fyrir allri ferðinni. Við
ætlum að gefa út spilastokk með mynd-
um af okkur fljótlega. Svo erum við með
happdrætti og einnig verðum við með
handboltaskóla í fjóra daga á milli jóla
og nýárs þar sem landsliðsmenn mæta
í heimsókn. Að lokum verðum við með
handboltadag þar sem við leikum við
gömlu kempurnar í ÍR og við sama tilefni
verður dregið í happdrættinu. Miðinn
gildir einnig inn á leikinn.“
Gísli segir að ekki hafi komið til greina
að fara klassískar fjáröflunarleiðir og selja
klósettpappír og rækjur. Hann segir auð-
veldara að virkja menn þegar fjáröflunar-
leiðirnar eru skemmtilegar. Menn nenni
ekki endalaust að troða klósettpappír
inn á mömmu sína.
„Þessi ferð á að þjappa hópnum saman
í þessu langa fríi sem verður í deilda-
keppninni. Ég fór þarna með Gróttu/KR
í fyrra og aðstæður eru verulega góðar,“
sagði Gísli en ÍR-strákarnir ætla að bóna
allan laugardaginn og þeir munu einnig
mæta á sunnudag ef þeir ná ekki að anna
e f t i r -
spurn á laugar-
deginum. Allar
upplýs ingar
má nálgast
á heimasíðu
ÍR, www.irsida.
is, en þeir sem mæta
með bíla gætu átt von
á óvæntri uppákomu.
„Það eru nokkrir
í liðinu sem þola
ekki að fara úr að
ofan. Hver veit
nema þeir píni
sig um helg-
ina,“ sagði
Gísli létt-
ur.
HANDKNATTLEIKSLIÐ ÍR: SAFNAR FYRIR FERÐ TIL KANARÍEYJA
Bóna bíla um alla helgina
Logi frábær gegn Lich
Logi Gunnarsson hefur leiki frábærlega
með liði sínu Bayreuth að undanförnu.
Hann er nú meðal tíu stigahæstu
manna í Þýsku 2. deildinni með 20,2
stig að meðaltali í leik. Logi átti einn
stórleikinn fyrir skemmstu þegar Bayr-
euth lagði Lich að velli, en þar skoraði
Logi 29 stig og var besti leikmaður
vallarins.
> Fimm félög vilja Pál
Páll Einarsson, sem á dögunum
hætti hjá Þrótti, er vinsæll meðal félaga
í Landsbankadeild-
inni en fimm félög
hafa þegar haft sam-
band við Pál. „Valur,
Fylkir, ÍBV, Grindavík
og Fram hafa öll haft
samband við mig.
Ég mun hugsa vel um
þetta um helgina og
taka svo ákvörðun fljót-
lega í kjölfarið.“ Fram er
eina fyrstu deildarfélag-
ið sem hefur haft
samband við Pál,
en fyrrum þjálf-
ari hans hjá Þrótti,
Ásgeir Elíasson, er nú þar
við stjórnvölinn.