Fréttablaðið - 27.12.2005, Síða 17

Fréttablaðið - 27.12.2005, Síða 17
ÞRIÐJUDAGUR 27. desember 2005 17 BYGGÐAMÁL „Það er alltaf verið að reyna að flæma okkur burt og ætli það sé ekki einn liðurinn að rjúfa lífæð okkar við Ísafjörð,“ segir Ragnhildur Aðalsteins- dóttir, bóndi á Laugabóli við Ísa- fjarðardjúp. Nú hafa yfirmenn Íslands- pósts ákveðið að frá og með ára- mótum eigi pósturinn að koma að næturlagi að Rauðamýri við Ísafjarðardjúp þar sem hann verður geymdur í gám en ekið á bæi næsta dag. Hingað til hefur honum verið ekið frá Ísafirði. Þessi hagræðing Íslandspósts er algjört rothögg fyrir íbúa við Djúpið að þeirra sögn. „Þannig er að hann Gunnar Pétursson, sem kom með póst- inn okkar frá Ísafirði, var okkar samgönguleið við Ísafjörð,“ útskýrir Ragnhildur. „Þannig fengum við far með honum út á Ísafjörð og hann sinnti okkur með greiðasemi sinni og kom við hér eða þar til að færa okkur bæði nauðsynjavörur og sérvör- ur. Nú sé ég ekki hvernig við getum orðið okkur úti um þessa hluti eða komist til læknis. Svo er nú ekki alltaf gott símasam- bandið hérna svo það var öryggi í því líka að hafa hann Gunnar,“ segir Ragnhildur. Ragnhildur hefur ásamt Baldri Vilhelmssyni frá Vatns- firði haft samband við fjölda þingmanna vegna þessa máls og vænta þau viðbragða. „Þessi breyting bitnar ekkert á póstþjónustunni við bæina við Djúpið og það er þar sem okkar skylda liggur,“ segir Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri pósthúsasviðs. „Við höfum heyrt af því að hann Gunnar hafi verið með einhverja þjónustu við fólk- ið en fyrir utan okkar kerfi. Við erum alveg tilbúin að ræða það að þjónusta fólkið við Djúp með einhverjum hætti, til dæmis hafa vikuferðir til Ísafjarðar í samvinnu við Súðavíkurhrepp, en við verðum að fá einhverjar tekjur fyrir þá þjónustu, þannig er nú fyrirtækið rekið,“ segir Hörður. „Það er alveg ljóst að Súðavík- urhreppur mun vinna að þessu máli og við væntum þess að eiga gott samstarf við Íslandspóst eða annað ríkisfyrirtæki um það,“ segir Ómar Már Jónsson sveitarstjóri. Hann segir að um gríðarlegt hagsmunamál sé að ræða. Gunnar Pétursson mun fara á eftirlaun þegar breytingin tekur gildi. Hann segir að breyting- arnar muni bitna illa á póstþjón- ustu á svæðinu. jse@frettabladid.is Lífæðin við Ísafjörð rofin Póstferðir frá Ísafirði um bæina við Ísafjarðardjúp leggjast af og er fólk þar uggandi um hag sinn. Lífæð sveitunga við Ísafjörð rofnar. Súðavíkurhreppur og Íslandspóstur ræða um að leysa málið með öðrum hætti. GUNNAR PÉTURSSON PÓSTUR Gunnar hefur sinnt sveitungum við Ísafjarðardjúp af svo mikilli greiðvikni að hálfgert neyðarástand blasir við nú þegar hann fer á eftirlaun. SÆKJA VATN Aftur er hægt að sækja vatn í ánna Amur í Kabarovsk í Rússlandi. Í sex vikur var vatnið mengað vegna sprengingar í efnaverksmiðju í Kína og lak eiturúr- gangur í ána Songhuan sem barst þaðan í Amur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP HLUTAFÉLAGS HRUNADANS Íbúar við Ísafjarðardjúp eru margir hverjir hagmæltir og geta komið skoðunum sínum á framfæri í bundnu máli. Indriði Aðalsteins- son, bóndi frá Skjaldfönn, hafði þetta að segja um póstmálið eins og það er kallað við Djúpið. Hlutafélags hrunadans harðan veitir gjóstinn, alla leið til andskotans ætla þeir með póstinn.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.