Fréttablaðið - 27.12.2005, Page 28
27. desember 2005 ÞRIÐJUDAGUR28
fréttir og fróðleikur
Ár er nú liðið síðan gríð-
arstór flóðbylgja reið yfir
strandhéruð við Indlands-
haf á annan dag jóla. Flóð-
bylgjan hreif með sér allt
sem á vegi varð og 216.000
manns létust eða er saknað
eftir hamfarirnar.
Margt hefur áunnist á árinu og bera
litlir bæir við sjávarsíðuna sem
hægt og hægt hafa verið að rísa á
ný gjafmildi jarðarbúa vitni. Engu
að síður búa tugir þúsunda enn við
ófullnægjandi aðstæður í rústum
híbýla sinna eða skýlum sem reist
hafa verið til bráðabirgða.
Þó virðist sem svo að lífið sé
smátt og smátt að komast í fyrra
horf á flóðasvæðunum. Tveir af
hverjum þremur þeirra sem misstu
vinnuna í kjölfar flóðbylgjunnar
eru aftur komnir til starfa og er
talið að mikill meirihluti þeirra
verði aftur farinn að vinna í lok
næsta árs. Tvær milljónir manna
eru taldar hafa orðið fátækt að
bráð vegna náttúruhamfaranna.
Smábændur og fiskifjölskyldur
eru meðal þeirra sem verst urðu
úti og eru enn mjög viðkvæm fyrir
hvers kyns áföllum. Góður árang-
ur hefur þó náðst á mörgum svið-
um, tekist hefur að bæta nær alla
þá fiskibáta sem flóðbylgjan hrifs-
aði með sér og þúsundir hektara af
akurlendi hafa verið hreinsaðir og
þar verið sáð á ný.
Hægt hefði verið að bjarga
fjölda mannslífa, í Taílandi og Srí
Lanka til að mynda, ef gefin hefði
verið út viðvörun um að flóðbylgj-
an væri á leiðinni. Nú er unnið að
því að búa til gott viðvörunarkerfi
ef sagan endurtekur sig.
Margir einblína á hátæknibún-
að í því skyni, en bent hefur verið
á að slíkt sé gagnslaust ef ekki
takist að ná til fólksins í strand-
héruðunum fljótt og örugglega.
Taíland og Indland hafa komið
upp upplýsingamiðstöðvum í
því skyni og verið er að hanna
undankomuleiðir í Indónesíu.
Kerfin eiga þó enn langt í land.
Tveggja mánaða gömul stúlka,
sú fyrsta sem fæddist í flótta-
mannabúðunum í Jantho í Indón-
esíu, hefur jafnframt veitt konum
sem misstu börn sín í hamförun-
um mikla huggun. Fjölda barna
er vænst á flóðasvæðum á næstu
mánuðum þegar fórnarlömb ham-
faranna byggja upp fjölskyldur á
ný. Talið er að þriðjungur þeirra
sem fórust hafi verið börn.
Undir niðri lifir því flóðbylgj-
an enn, í minningum fólksins sem
upplifði hörmungarnar. Áhrif
náttúruhamfaranna má til að
mynda greinilega sjá á börnum
á flóðasvæðunum, þrátt fyrir að
uppbygging á svæðunum gangi
að öðru leyti vel.
Börn í Indónesíu, sem verst
varð úti, reyndust mun svart-
sýnni um framtíð sína en börn frá
Indlandi, Taílandi og Srí Lanka.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna
telur að það endurspegli þá erfiðu
lífsreynslu sem börnin urðu fyrir,
en meirihluti indónesísku barn-
anna missti að minnsta kosti einn
fjölskyldumeðlim í hamförunum.
Á árinu sem liðið er frá atburð-
unum hefur miklu verið komið
í verk og hafa mjög margir lagt
hönd á plóginn, bæði heimamenn
og mikill fjöldi sjálfboðaliða frá
öðrum löndum.
Margt vantar þó enn upp á en
sem betur fer bíður enn umtals-
vert fjármagn þess að hægt verði
að byggja hús, brýr, vegi og skóla
í stað þeirra sem skoluðust á haf
út. Ómögulegt er þó að bæta það
gríðarlega manntjón sem varð og
útilokað annað en að fórnarlömb
hamfaranna muni bera merki
þeirra til lífstíðar.
Uppbygging í skugga hamfaranna
ÁRI EFTIR HAMFARIRNAR Fiskimaður lagar net sín við bráðabirgðaskýli fyrir fórnarlömb flóðbylgjunnar á Indlandi. Réttu ári eftir hamfarirn-
ar hefur tekist að bæta nær alla fiskibáta sem sjórinn hreif með sér.
HEIMILIÐ ENN RÚSTIR EINAR Kona hengir
upp þvott á rústum húss síns á flóða-
svæðum nærri Madras á Indlandi. Ári eftir
flóðbylgjuna býr fimmtungur þeirra sem
misstu heimili sín ennþá í bráðabirgðahús-
næði við lélegar aðstæður.
LÍFIÐ HELDUR ÁFRAM Nýir bátar og iðandi
mannlíf við höfnina í indversku hafnar-
borginni Kasimedo, sem varð mjög illa úti í
náttúruhamförunum fyrir réttu ári síðan.
FRÉTTASKÝRING
HELGA TRYGGVADÓTTIR
helgat@frettabladid.is
„Stærsta vandamálið einmitt
núna er að byggja aftur upp
sterk samfélög,“ segir Bergur
Finnbogason, nemi í arkítektúr,
sem staddur er á flóðasvæðum í
Taílandi.
Bergur er skiptinemi í höfuð-
borginni Bangkok. Þar hefur
hann unnið að verkefni um upp-
byggingu í litlu þorpi, skammt
norður af eyjunni Phuket, sem
jafnaðist við jörðu í hamförun-
um.
Fyrsti áfangi verkefnis bekkj-
ar Bergs snerist um að aðstoða
íbúa við að byggja hús og nú eru
þau að hanna, teikna og munu
einnig vinna að byggingu sam-
skiptamiðstöðvar fyrir þorpið.
Bergur segir gríðarlegan
áhuga á svæðinu og og mikið
fjármagn hafi streymt að í kjöl-
far hamfaranna á síðasta ári.
Mikill fjöldi sjálfboðaliða sé
á svæðinu og uppbygging þar
gangi vel.
„Eyðileggingin af völdum
flóðbylgjunnar var auðvitað
gríðarleg. Það fóru ekki bara
hús og bílar í sjóinn heldur höfðu
atburðirnir líka áhrif á annað,
til dæmis sjálfstraust fólksins,“
segir Bergur.
Bergur segir stemninguna á
flóðasvæðunum nokkuð góða og
ekki jafn mikil sorg yfir fólki og
hann hefði talið. „Ég held að fólk
hafi tekið ákvörðun um að halda
lífinu áfram og taka hamförun-
um eins og hverri annarri áskor-
un sem takast þarf á við.“
Nemi í Taílandi segir uppbyggingu flóðasvæða ganga vel:
Fólk ákveðið að halda lífinu áfram
BERGUR FINNBOGASON Vinnur að
endurbyggingu þorps á flóðasvæðunum
í Taílandi með samstúdentum sínum í
Bangkok, þar sem hann er við skiptinám í
arkítektúr.
Svona erum við
1994 2004
24
7.
24
5
25
0.
66
1
24
4.
92
5
1999
> Fjöldi skráðra meðlima í þjóðkirkjunni
Heimild: Hagstofa Íslands
Almenn sala flugelda hefst á morgun
og hefur starfsfólk Landsbjargar haft
í nógu að snúast undanfarið við
undirbúninginn. Talið er að upphæð
flugeldasölu slysavarnafélagsins þetta
árið komi til með að vera einhvers
staðar í kringum fimm til sex hundruð
milljónir. Leiðinlegur fylgifiskur
áramóta er slysin á hverju ári. Til að
stuðla að slysalausum áramótum
er nauðsynlegt að fara að öllu með
gát. Jón Ingi Sigvaldason er sölu- og
markaðsstjóri flugeldasölu Slysavarna-
félagsins Landsbjargar.
Hvernig á að meðhöndla flugelda?
Fólk þarf að meðhöndla flugelda með
mikilli varúð og fara eftir þeim reglum
sem standa utan á flugeldunum. Það
er afar mikilvægt að nota hlífðargler-
augu og vettlinga í öllum tilfellum.
Flugeldar eru umfram allt ekki barna-
leikföng.
Hvað ber að varast?
Áfengi og flugeldar fara aldrei saman.
Varast skal að sprengja flugelda í
nágrenni við húsnæði, elliheimili,
húsdýr eða bensínstöðvar og alls
ekki beina þeim að neinum. Einnig
er mikilvægt að huga vel að því að
undirstaðan sé trygg.
Hver er vinsælasta bomban?
Það selst mest af bardagakökunum
sem eru stærstu kökurnar. Þær eru
nefndar eftir frægum bardögum í
Íslandssögunni og er Grundarfjarð-
arbardagakakan vinsælust enda
stórfengleg. Kappakökurnar, sem eru
að sama skapi nefndar eftir frægum
köppum, eru líka mjög vinsælar, en
þar er Grettir karlinn fremstur meðal
jafningja.
SPURT OG SVARAÐ
FLUGELDAR
Aldrei barna-
leikföng
JÓN INGI SIGVALDASON
Sölu- og markaðsstjóri flugeldasölu
Algengt er orðið að Íslendingar flytji inn hunda
og önnur gæludýr en það getur verið flókið ferli.
Margt spilar inn í við slíkan innflutning og á kom-
andi ári verða nokkrar breytingar á þessu sviði
þar sem einangrunarstöðinni í Hrísey hefur verið
lokað og ný stöð opnuð á Reykjanesi.
Hver er kostnaðurinn?
Eftir að umsókn um innflutning er samþykkt, en
umsóknareyðublöð má finna á vefsíðu embætt-
is yfirdýralæknis, þarf að greiða 19.684 krónur í
staðgreiðslugjald. Innifalið í því er heilbrigðis- og
upprunavottun yfirdýralæknis og eftirlit dýralækn-
is á komustað og vistunarstað hundsins meðan
hann er í sóttkví. Kostnaður við fjögurra vikna dvöl
í einangrunarstöð, auk blóðprufa og rannsókna er
svo mismunandi eftir stærð dýrsins, en er á bilinu
140.000 til 170.000 krónur. Við þetta allt bætist
svo flugfar og önnur gjöld í útflutningslandinu
sem fara eftir því hvert það er. Óhætt er þó að
segja að kostnaður sé ekki undir 200.000 krón-
um þar til hundurinn er kominn til eiganda og er
sennilega allavega 350.000 ef um hreinræktað dýr
er að ræða.
Hve langan tíma tekur ferlið?
Panta þarf dvöl á einangrunarstöð með fyrirvara,
en bið eftir plássi er oft þrír til fjórir mánuðir. Stöðv-
arnar taka við dýrum aðeins tvisvar í mánuði og
því er einungis hægt að flytja dýr inn til landsins á
þeim dögum. Hundarnir þurfa svo að vera minnst
fjórar vikur í einangrun, en það getur lengst komi
eitthvað upp á varðandi heilsufar þeirra.
Hvaða tegundir eru leyfilegar?
Lista yfir bannaðar tegundir má finna á vef land-
búnaðarráðuneytisins, og á honum eru meðal
annars Bull Terrier, eða Pit Bull hundar og Arg-
entínuhundar auk úlfblendinga. Þó að tegund sé
ekki á lista má yfirdýralæknir meina innflutning
á einstökum hundum og hefur hann lokaorð
varðandi allan innflutning. Auk þess þarf hund-
urinn að vera minnst 5 mánaða gamall og fleiri
skilyrði þarf að uppfylla sem sjá má á fyrrnefndri
heimasíðu.
Hvað ef hundurinn stenst ekki skoðun? Ef
hundurinn stenst ekki skoðun við komu á Kefla-
víkurflugvöll þar sem dýralæknir fer yfir pappíra
og grunnskoðun er honum annaðhvort vísað til
baka, og þarf þá innflytjandi að borga farið til
baka, eða honum er lógað. Ef hundurinn hins
vegar verður veikur á einangrunarstöð er reynt að
meðhöndla það í samráði við eiganda.
FBL GREINING: INNFLUTNINGUR Á HUNDUM
Kostar allt að 350 þúsund krónur